Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008

Þetta kallar maður alvöru!

Alvöru íslenskt djamm. Man ekkert , veit ekkert. Never been there, never done that.

Æi, auðvitað er þetta ekkert fyndið að lenda í þessu en þetta er nú nú skondið að lesa um.Alltaf verð ég jafnfegin þegar ég les svona djammsögur að  vera löngu hætt öllu þessu bulli.


mbl.is Fastur í skotti bifreiðar við Miklubraut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju Grímseyingar.

Langþráður draumur orðinn að veruleika. Mikil held ég að sé gaman að vera Grímseyingur í dag.


mbl.is Stór stund fyrir Grímseyinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Föstudagsbrandari.

það var einu sinni kona sem átti þrjár dætur.

Í hvert skipti sem einhver af dætrum hennar gifti sig bað mamman þá
dótturina sem var að gifta sig í það skiptið, að vera fljóta að skrifa heim
eftir að hún fluttist að heiman og segja gömlu konunni hvernig kynlífið væri
hjá hinni nýgiftu.



Jæja sú elsta gifti sig fyrst og aðeins tveimur dögum seinna barst gömlu
konunni bréfið frá dóttur sinni.

Á því stóð aðeins "Myllukökur Myllubrauð".

Gamla konan átti bágt með að skilja þetta en fyrir einhverja rælni tók hún
eftir auglýsingu frá Myllunni þegar hún vað að blaða í Dagblaðinu síðar um
kvöldið.

En þar stóð "Myllukökur Myllubrauð...... ávallt seðjandi".

Gamla konan sá nú að hún þyrfti engar áhyggjur að hafa að elstu dóttur
sinni, henni væri vel sinnt.







En þar kom að miðdóttirin gifti sig og leið vika frá brúðkaupinu þar til
gömlu konunni barst bréfið frá dóttur sinni.

Þar stóð aðeins "Ingvar og Gylfi". Kella var nú fljót að leita að
Dagblöðunum og fann að lokum auglýsingu frá Ingvari  og Gylfa þar sem stóð
"Nýi rúmgaflinn frá okkur......King size og extra langur".

Vissi nú kella að hún þyrfti heldur engar áhyggjur af hafa af þessari dóttur
sinni.







Jæja bréfið frá yngstu dótturinni var lengi á leiðinni en barst loks kellu
fjórum vikum eftir brúðkaupið.

Í bréfinu stóð aðeins eitt orð "Flugleiðir".

Kella leitaði nú ákaft að auglýsingu frá Flugleiðum í Dagblaðinu og á
endanum fann hún eina.

En eftir að hafa lesið auglýsinguna leið yfir kerlinguna því þar stóð:

"Þrisvar á dag, sjö daga vikunnar, á alla áfangastaði!!!!!!!!


 


Helga mágkona aftur komin á kreik.

Veit ekki alveg hvort það er einhver annar húmör sem virkar í BorgarfirðinumWink en allavega eru flestir brandarar sem hún mágkona mín sendir bróður sínum(takið eftir, ekki mér. Veit hvað ég er viðkvæm sál.) Nosex


Enn að virka

Svolítið merkilegt að þetta sé enn að skila. Var svo heppin að vera boðið  til Eistlands ásamt fjórum öðrum, frá Danmörk,Svíþjóð,Finnlandi og Noregi. Þetta var haustið 1991. Mikið var vel tekið á móti okkur, í ráðherraviðtal og veislur. Keyrt út um alla Vilinius og einnig til Kaunas. Farið var með okkur að útvarpsturninum þar sem allur óhugnaðurinn átti sér stað. Er búin að gleyma, kannski man það einhver. Er ekki matsölustaður efst í turinum? Sem snýst í  hringi eins og Perlan? Minnir að við höfum borðað þar. En einnig á ég einhvernstaðar mynd af götuskiltinu Íslandsstræti eða gata (man ekki hvort var). Sem þeir skýrðu sem þakklætisvott fyrir stuðninginn. Þarf að fara að rifja þessa ferð upp. Það var margt merkilegt  sem ég upplifði 1991. Fór þrjár ferðir til útlanda, eyddi samfellt þrem mánuðum í það og heimsótti 6 lönd, þar af til Svíðþjóðar í öll þrjú skiptin.


mbl.is Eistar hjálpa til
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann er bara flottur.

Hár eða ekki hár. Trúlega þætti mér hann ekki flottur skollóttur enda finnst mér hárleysi yfirleitt ekki fara neinum vel. En Clooney er bara allur flottur. Augun og brosið maður bræði heldur betur og svo er hann skrambi góður leikari líka og ekki skemmir það.
mbl.is „Hárið er málið"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Strumpaprófið.

Papa Smurf

Þetta er minn stumpur og mikið er ég ánægð með hann.

http://bluebuddies.com/smurf_fun/smurf_personality_test/smurf_personality_test.htm

ef þú vilt prófa.


Hverjir sitja í þessari nefnd?

Það væri nú gaman að heyra ef einhver veit, hverjir sitja í nefndinni. Þetta hljómar mjög  fallega og verður spennandi að sjá hvað kemur út úr störfum nefndarinnar.
mbl.is Stefnt að samræmingu kynningarstarfs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju með það.

Mikið finnst mér huggulegt að fá eina svona fallega og venjulega frétt. Af venjulegu fólki senm tekst á við óvenjulegar aðstæður. Og ef einhverjum finnst hún/hann hafa upplifað jafnmerkilegt en nota bene verður að vera jákvætt þá endilega komið með það hérna.Mér finnst nefninlega fólki almennt finnast jákvæðar fréttir verða að vera svo stórar og miklar til að vera viðurkenndar sem frétt. Og allir vita jú að okkur veitir ekki af fleiri jákvæðum fréttum.Er einhver að fatta þetta hjá mér?
mbl.is Giftist inn í indverska fjölskyldu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sunnudagur til sælu II. hluti.

Já, eins og ég sagði í fyrri færslu , þá var mjög gaman hjá okkur hjónunum. En ýmislegt gerðist hér heima á meðan við vorum í burtu. Mæðgurnar Breiðfjörð voru sem sagt að passa. Og ég get alveg sagt ykkur það að ef þær mæðgur eru góðar í einhverju, sérstaklega sú eldri , þá er það í því að sofna. Þær eða hún getur sofnað hvar sem er bara ef það fer þokkalega vel um hana. Ég leit á símann hjá mér svona um ellefuleytið um kvöldið og sá þá að það hafði verið reynt tvisvar að hringja í mig að heiman. Ok, ef tvisvar þá þarf eitthvað að tala við mig svo ég hringdi  til baka en rétti eiginmanninum símann, oft betra að hann  tali þegar svona stendur á. Kemur hann svo hlægjandi til baka og segir að þau hafi bara ætlað að láta  okkur að þau væru bæði vakandi en mæðgurnar báðar sofnaðar. En allt í góðu samt. Svo líður og bíður og aftur kl. 01.30 þá sé ég að aftur hafði verið hringt og þegar ég hringi til baka þá er það gaurinn sem svarar og segir að þær allar séu sofnaðar og hann einn vakandi. Og svo kom: En hvenær ætlið þið eiginlega að koma heim? Við sömdum um það að hann myndi fara inn í rúm með símann og ef ég væri ekki komin heim fyrir kl. 02.00 þá mætti hann hringja aftur. En við vorum svo komin heim korteri seinna. Þá lá þessi elska steinsofandi í öllum fötunum með símann í hendinni.  Búið var að útbúa flatsæng í sofunni og þar lágu valkyrjan og frú Breiðfjörð en ungfrú Breiðfjörð í sófanum. Unglingurinn var ekki heima. Var að passa í fyrsta sinn hjá ókunnugri konu svona langt frameftir. Ég átti alveg eins von á að þurfa að sækja hana. Það var svo hrikalega kalt úti og eflaust margir að bíða eftir leigubíl. En sem betur fer þá reddaðist það og ég slapp við að fara út í kuldann. Eins og þið getið ímyndað ykkur var ég ekki alveg að nenna því. En svo rumska ég við það að hún kemur heim og þá snéri ég mér á hina hliðina. Takið eftir , ég er sem sagt að upplifa það í fyrsta skipti að barnið mitt er að koma heim seinna en ég. Ég  hrekk svo upp stuttu seinna  við að eitthvað lendir í hausnum á mér og það var sárt. Ég stökk upp og leit upp í gluggann og situr þá ekki Kisa þar og ég átta mig á því að hún hefur hrint einhverju niður. Lít niður á gólf og haldiði að myndin af henni ömmu minni Önnu Guðrúnu liggi ekki þar. Og sko, hún var í ramma. Þess vegna var þetta sárt.

Dagurinn í dag hefur farið mest í rólegheit.  Við hjónakornin vorum hálfþreytt þarna um hádegisbilið. Ákváðum að leggja okkur og gáfum unglingnum leyfi til leiks í eldhúsinu. Hún hefur svo gaman af að baka og í dag bauð hún upp á brauðbollur með sesamfræjum og osti. Ljúffengar. Þau ætla öll að hafa með sér bollur í nesti á morgun. Eiginmaðurinn ætlaði að vera í fríi þennan túr en var beðinn að fara svo hann fór í dag. Nú sagðist hann vera að fara í frí út á sjó. Ég held að þetta hafi verið sneið á mig. Ég er nefninlega búin að þræla honum út þessa daga en ég hélt að hann yrði heima næstu viku og gæti þá slappað af. En ég er nú samt fegin að við erum búin að breyta. Og mér tókst meira að segja að henda helling. Það er algjörlega óskiljanlegt hvað maður geymir margt sem maður hefði átt að vera búin að henda fyrir löngu. Við skruppum í sveitina seinni partinn. Var búin að lofa að sækja reiðhjólin í geymslu. Á meðan þau sóttu hjólin sín fór ég í kaffi til familien Brekkulæk. Þar hitti ég fyrst pólverjana sem lentu í slysinu í Öxnadalnum. Kom í ljós að þetta voru engir pólverjar heldur var þetta hann Egill frændi minn og bloggvinur og Ellý kona hans sem lentu í þessum hremmingum. Ellý var sú sem hafði slasast mest og var hún að útskrifast af sjúkrahúsinu í dag og var ja svona hálf eitthvað eiginlega bara slösuð. Við vorum svo heppin að vera boðið í  sunnudagslambasteikina og mikið var það gott. Unglingurinn var alveg til í að gera þetta að hefð.

Er nú er dagur að kvöldi kominn og allt að komast í ró. Stór dagur hjá börnunum á morgun. Allur skólinn eða allavega nemendurnir í Hlíðarfjall með skíði og skauta ja kannski frekar sleða.

Nóg í bili.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Anna Guðný
Anna Guðný

Langar að æfa mig í að setja saman texta. Sé til hvað ég gef mér mikinn tíma í það.

Sjálfstæður Herbalife dreifingaraðili. www.heilsufrettir.is/anna

Þeir sem vilja hafa samband má benda á netfang sem er: ollana@simnet.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Um bloggið

ollana

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband