Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2009

Mótmælendur komnir í lögregluna?

Ekki átti ég nú von á því að eiga eftir að afsaka Hannes Hólmstein. En einhverntímann er allt fyrst. 

Síðan hvenær geta mótmælendur lagt blátt bann við einhverri athöfn fyrir utan Alþingishús Íslendinga? Þarf eitthvað leyfi fyrir viðtali þar?  Og hverjir veita þá það leyfi? Varla mótmælendur.

Og annað, hverjir ákveða hverjir mega mótmæla?

Á frelsið þá bara að virka fyrir suma?


mbl.is Aðsúgur að Hannesi Hólmsteini
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þörf á stuðningi á fleiri á stöðum?

Nú er stóra spurningin. Mér sýnist á fréttinni að þessi aðstoð sé bara bundið við Reykjavík. Allt í góðu með það en þýðir það að ekki þurfi að aðstoða fólk á fleiri stöðum eða heyrist bara svona lítið í þeim? Ég er búin að athuga með minn skóla og þar virðist allt vera í þokkalegu lagi en við fréttum kannski ekki af þörfinni á fleiri stöðum. Hvernig væri nú að fleiri létu heyra í sér. Ég, persónulega væri alveg til að að gefa einhverja upphæð. Datt helst í hug að miða við verð á einni málningarfötu. Það myndi nú duga langt upp í bókakostnað hjá sumum. Þeir sem hefðu meira auka fé á milli handanna gætu þá fengið uppgefið hjá tryggingarfélagi hvað kostaði að þrífa eitt stykki hús eftir málningarsletturnar og gætu þá gefið þá upphæð.

Eígiði góðan dag.

 


mbl.is Skólabörn studd til náms
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjörnuspáin

Naut: Einhver getur gefið þér góð ráð varðandi fjárhagslega framtíð þína. Núna gerist eitthvað óvænt sem færir þig nær ástinni - því dásamlega fyrirbæri.

 

Þetta með ástina, hélt ég væri í fínum málum þar.

En með fjárhagslegu framtíðina: Ég bíð eftir að þú hringir. Wink


Stjörnuspá dagsins.

Naut: Gefðu einhverjum sem á það ekki skilið annað tækifæri. Kannski áttu eftir að eiga í djúpum samræðum við þinn innri mann í dag og gætir jafnvel ákveðið að eyða meiri tíma með þér og honum.

 

 


Heilbrigð skynsemi

segir mér að ef okkur er ætlað að borga meira en við ráðum við, sama hversu mikið við skuldum, þá geti bara farið illa.

Er þetta þá rétt leið?

 Vonandi


mbl.is Fleiri fari að dæmi Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggarar hittast að Laugum. Myndir.

Picture 187Picture 167

Veit ekki hvernig Erna kom tvöföld inn en það verður bara að hafa það.

Axel Þór fyrir framan dyrnar hjá Dóru.

 

Picture 168

Frúin tekur á móti okkur.

 

Picture 169

Nú vitum við hvernig við sjáum þær fyrir okkur.

 

Picture 170

Eh,eh, eh þú sást mig ekki. Hvað þarf ég að gera næst, keyra á þig? 

 

Picture 173

Þau halda sem sagt með sitt hvoru liðinu.

 

Picture 177

Eru samt alveg vinir.

 

Picture 180

Dóra gestgjafi að redda grillinu.

 

Picture 181

Skvísur Anna Elísabet og Sigurbjörg

 

Picture 184

Á leið í sund.

 

Picture 187

Skál.

 

Picture 191

 

Picture 192

Grillað rúgbrauð með rjóma. Hverjum datt þetta yfirleitt í hug?

 

 

Picture 194

Gaman saman.

 

Picture 195

 

Halli grillmeistari og Huld grilluðu fiskispjót. Fannst það misgott en mjög gaman að smakka.

Picture 197

Picture 198

 

Picture 199

Kveðjustund.

Picture 201

Komin heim í kaffi til Dóru aftur.

 

Picture 202

Halli og Huld.

 

Picture 203

Ásgerður, Unna Mæja og Helgi.

 

Upplifði þó eitt á leið heim sem ég er ekki að skilja hvað ég komst vel út úr því. Þar sem ég er að keyra yfir brúnna við Fosshól, þá sé ég að maður stendur inn á brúnni hinu megin. Við erum að tala um einbreiða brú, niðamyrkur, mann í dökkum fötum með engin ljós og hann stendur þarna út á brúnni með myndavél um hálsinn. Er ekki allt í lagi með svona lið? Það var allavega ekki honum að þakka að ég keyrði ekki yfir hann. En þarna vakti einhver yfir mér.

 

Takk fyrir frábæra samveru í dag og kvöld öllsömul.

 


Loksins!!!

Loksins sé ég frétt frá Bretlandi þar sem þeim finnst að einhver ábyrgð liggi á þeim sem létu plata sig. Það er nefninlega eins og með lánin hér heima. Það var enginn sem sneri upp á hendina á þeim.

 

Setningar eins og:

 

Hann segir að Bretar hafi beitt Íslendinga hörku, eitthvað sem þeir hefðu aldrei gert gagnvart stóru ríki, til að mynda Indlandi. En indverskir bankar hafi á sama tíma og þeir íslensku verið að bjóða upp á útblásna vexti í Bretlandi.

Það voru sem sagt ekki bara íslendingar.

 Hill segir að þeir sem áttu innistæður á Icesave-reikningum í Bretlandi hafi fengið þær að mestu greiddar. Hann telur að breskir sparifjáreigendur eigi að gera sér grein fyrir sínum hlut sorgarsögunni. Eftir allt þá hafi enginn neytt þá til þess að leggja inn á reikningana. 

 

Heldur hafi greinarskrifin beinst gegn þeim sem áttu hærri fjárhæðir inni á reikningunum sem buðu upp á óeðlilega háa vexti. Þeir sparifjáreigendur höfðu fallið fyrir kænskubragði markaðsmanna og stjórnvöld hafi ekki þurft að leysa þá úr snörunni.

 Flestir þessara viðskiptavina vildu kenna öllum öðrum nema þeim sjálfum fyrir klípuna sem þeir voru í.

Þeim var gert að greiða háar stríðsskaðabætur til Bandamanna, láta lönd af hendi til Frakklands og Póllands, nýlendur voru teknar af þeim og takmarkanir voru settar á heimild Þjóðverja til að halda úti herliði.

Hvað ætli við þurfum að láta af hendi? Getur einhver ímyndað sér það?

 

Over and out

 

 


mbl.is FT: Ábyrgðin sameiginleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Anna Guðný
Anna Guðný

Langar að æfa mig í að setja saman texta. Sé til hvað ég gef mér mikinn tíma í það.

Sjálfstæður Herbalife dreifingaraðili. www.heilsufrettir.is/anna

Þeir sem vilja hafa samband má benda á netfang sem er: ollana@simnet.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 201260

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Um bloggið

ollana

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband