Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008

Sunnudagur til sælu.

Sunnudagur eftir árshátíð. Hálf er ég nú úldin.Cool Þoli ekki svona vökur. SleepingHefði ekki boðið í það að eitthvað sterkt hefði verið í glasinu. En er sem betur fer löngu hætt því.

Þegar á heildina er litið var þetta sú skemmtilegasta árshátið sem ég man eftir að hafa farið á.Wizard 780 manns voru á hátíðinni og er það nú alveg ágætis fjöldi. En Mái sagði þó í sinni ræðu að ef allir starfsmenn Samherja í öllum löndum kæmu saman yrðu það um 3000. Eðli starfsseminnar samkvæmt er ekki hægt að koma öllum starfsmönnum saman á sama stað á sama tíma. Kannski eins gott, því erfitt væri að finna húsnæði fyrir svoleiðis hátíð. Það er ekkert sjálfgefið að maður sé ánægður með alla borðfélagana enda fólk misjafnt, bæði ég og hinir.En þessir félagar voru fínir og mikið helgið. Það er eins með veislustjórann, mér finnst ekkert allir veislustjórar skemmtilegir og sumir bara hálfleiðinlegir en í þetta skiptið var ég mjög ánægð.  "Rándýr skemmtikraftur að sunnan"Smile var fenginn í hlutverkið. En sleppur þó því hann er hálfgerður Hríseyjingur. Og hvað eru Hríseyjingar í dag? Jú, Akureyringar. En þetta var enginn annar en Örn Árnason. Hann var alveg frábær í einu orði sagt. Algjör proffs orðinn í veislustjórn. Þræddi þessa fínu línu "hinn gullna meðalveg" allan tímann og fær 10 í einkun frá mér. Skemmtiatriði voru nokkur og alveg frábær líka. Bæði tónlistaratriði og svo fólk tekið utan úr sal og þá sérstaklega nýttir sönghæfileikar þeirra. Nema sjávarútvegsráðherrann, hann fékk að gjöf veiðikort. Hvað hann má veiða verður hann að svara.

En þá er það matseðillinn. Bautinn,Einar Geirs. og hans fólk töfruðu fram þvílíkur kræsingarnar að ég man ekki eftir öðru eins .

Forréttur.

Léttsaltaður þorskhnakki og gljáður humar með gulrótat-appelsínu compot og humarfroðu.

Milliréttur.

Bleikja ballontine með drekasalsa og pipar bleikja með limónusósu.

Aðalréttur.

Lambafillet crepes með jerúsalemætiþystlakartöflu, myrkisveppum, aspas og perlulauk.

Eftirréttur.

Tonka panna cotta með hvítu súkkulaði og vanillu-rómaosti.

Kaffi og koníak eða líkjör

Svo var þessu skolað niður með dýrindis hvítvíni með þeim tveim fyrstu og rauðvíni með lambinu.Sýndist mér á fólki að vínið smakkaðist með ágætum.

Ég gæti skrifað í allan dag um matinn en læt duga að segja að þetta var hin besta upplifun. Mér fannst ekki allt jafngott en veit þó að þar er einungis bragðskyni mínu að kenna en ekki matnum.Hann var í alla staði 100% flottur.

Hvanndalsbræður stigu á stokk og ég er ekki frá því að þeir hafi verið í extra góðu formi. Svo góðir voru þeir.Alveg brilliant. Svo sungu og spiluðu þeir í restina Magni,Matti og Eyþór. Og mér hefði nú ekki dottið í hug að setja þess menn saman í tríó en þökk sé þeim sem fékk þá hugmynd. Ekki var nú verra að þeir tóku svo mörg lög sem maður þekkti og gat sungið með. Ég hitti  hana Maríu frænku mínu  þarna og sagði hún mér að þessi skemmtun minnti hana á sjómannadagsböllin fyrir svona 10 árum og hún var alveg með stjörnur í augum því að það var víst svoleiðis ball sem unnustinn hafði boðið henni á þegar þau voru að byrja saman. En þau eru löngu gift í dag. En stjörnurnar eru enn til staðar.

Auðvitað hitti ég fullt af fólki þarna. Stínu granna til dæmis. (ekkert að gera með holdarfar, hún býr bara við hliðina á mér)Hún var jafn hress og venjulega.Svo hittum við Guðmundu frænki úr höfuðborginni. Hún er starfsmaður dóttufélags Samherja.

Engin alvöruslagsmál sá ég þarna. Smá púst en það sást ekki einu sinni blóð. Það er af sem áður var. Sjómenn orðnir svo dannaðir í dag.Wink

Eins og þið sjáið þá er ég alveg einstaklega ánægð með kvöldið. Kannski líka að ég fer svo sjaldan út á skemmtanir almennt og þessi heppnaðist svo vel. Nú er ég alveg róleg fram að næsta ári. 

Ætli þetta sé ekki nóg í bili.

Eigið góðan dag.


Lengi vitað þetta.

Þessi frétt verður prentuð út og hengd upp á vegg fyrir ofan eldhúsborðið. Gaman að benda bara í stað þess að halda fyrirlesturinn þennan venjulega. Annars eru mín börn mjög dugleg að borða fisk. Það er fiskur tvisvar í viku í skólanum.Hér heima er alltaf eldaður þorskur og unglingurinn borðar hann eintóman frekar en með kartöflum og er það bara hið besta mál. Þau yngri eru enn í tómatsósunni.
mbl.is Fiskur gerir börnin greindari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afi og amma á leikvellinum!

old age gym

 

old age gym

 

adult playground old age gym

 

 

Leikvöllur fyrir ja allavega ömmur. Kannski vildu karlmennirnir bara ekki sitja fyrir.

En svona vellir eru sem sagt komnir í Bretlandi, Þýskalandi og Kanada.

Sjá hér:

http://www.canada.com/vancouversun/news/story.html?id=5c3b0e77-3853-4be4-93a9-05821e234dc4&k=92978

 

Hvar haldiði að ég hafi séð þessa frétt ef ekki hjá henni Sylviu vinkonu minni í BNA.

Hvenær skildu svona vellir koma hér?


Reiðistjórnun, framhaldsnámskeið.

Spurning hvort ekki sé í boði framhaldsnámskeið. Ég bíð eftir svona fréttum af Tyru Banks. Hún virkar á mig eins og hún gæti tekið kast ef hún kæmi í þessa nýju flugstöð þarna á Heathrow sem er að gera alla vitlausa.


mbl.is Campbell handtekin á Heathrow
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fimmtudagur til frama.

Sit hér og aðstoða gaurinn  við stærðfræði heimanámið. Deiling er það í dag. Eiginmaðurinn er í stofunni með 1. bekkinginn og þar heyrir ég að hún er farin að lesa þannig að þau eru á undan okkur. Fullt hús af krökkum í dag. Held að það hafi verið ða  tímabili 10 aukabörn sem bættust við mín 3. Ein 8 af þeim fóru í Eye Toy og það var mikið stuð. Annars er alveg ótrúlega fróðlegt að fylgjast með þeim i fjarska. Skapseinkennin koma svo vel í ljós. Eitt barnið var t.d. já og er alveg ótrúlega tapsárt og það eru alltaf einhverjir að svindla. Svo var eitt barnið þarna óvant og hafði held ég aldrei eða allavega mjög sjaldan spilað leikinn og þá ætlaði annað barn að hjálpa til þá fór þetta tapsára í fýlu. Þannig að það gekk ýmislegt á . Reyni að hafa þetta í hvorukyni , svo erfiðara sé að þekkja.

Þeir sem hafa komið í heimsókn til okkar hérna með ja svona nokkurra mánaða tímabili hafa tekið eftir því að við erum svolítið óákveðið í herbergjaskipulagi hérna. Ég held að gaurinn sé búinn að sofa nánast í öllum herbergjum og tvisvar í einu þeirra.Og nú á sem sagt að breyta einu sinni enn. Tveir næstu dagar fara í þetta . Ekkert smáræði sem þarf að færa á milli. En stóra málið er að það þarf að færa sjónvarpið á milli herbergja og það þýða snúrur. Tölvan mín fer líka í annað herbergi og það þýða enn fleiri snúrur.

Svo er komið að árshátið ársins, allavega hjá mér.Hún verður á laugardagskvöldið ætli maður verði ekki að skoða hvort hægt sé að gera eitthvað fyrir útlítið. Hef hugsað mér að gefa Völu vinkonu skotleyfi á hárið. Held hún muni klippa frekar stutt.

En svona er nú dagurinn í dag. Hann verður örugglega jafngóður á morgun.


Fylla takk!!!

Get rétt ímyndað mér að allt verði fullt hjá  N1 í dag. Og það er ekkert annað að gera en á fylla.Svo væri fínt ef Olís eða Skeljungur kæmu  í næstu viku.Smile  Allt í lagi að vera bjartsýn.
mbl.is N1 veitir 25 króna afslátt á eldsneytisverði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bara mínútur eftir og ég slepp ennþá.

Ég átti nú ekki von á að ég slyppi við gabb í dag. Ég er svo gott fórnarlamb. Ég gleymi þessu alltaf. Börnin höfðu meiri áhuga á því hvað gerðist í skólanum heldur en að plata mig.

Annars hefur dagurinn í dag helst farið í bókhaldið. Alltaf jafngóð tilfinning þegar búið er að ganga frá reikningskrifum mánaðins og virðisaukaskattinum og skattinum. Færi svo bókaranum allt heila klabbið á morgun og auðmingja Gulla fær það verkefni að greiða úr flækjunni. Segi svona. Hún er svo klár, getur allt. Er að upplifa það í fyrsta skipti að fara með launamiða barns.Skrýtið að börnin skuli eldast svona, ég sem yngist bara.

Það var virkilega gaman að sjá mótmælin hérna í dag. Hjalteyrargatan örugglega aldrei verið svona þéttsetin bílum.Svo eru margar hliðar á þeim pening eins og öllum. Sumum finnst  nú hálfhallærislegt að sjá jeppakallana á leiktækjunum sínum og svolítið fyndið að ég kíkti svo á  myndbandið frá mbl og er þá ekki talað við mágkonu mina þar. Má því trúlega ekki segja neitt slæmt  um jeppakallana.Smile Jú,jú hún þolir það.

En  nú er ég búin að sitja við tölvuna á fundum í allt kvöld svo það er víst best að fara að kíkja á koddann.

Góða nótt þið sem enn eruð vakandi.

Eigið ljúfa drauma þið sem eruð sofandi.

 


Nýr sveitarstjóri í Eyjafjarðarsveit.

Ætlaði að vera búin að skoða nöfnin betur á þeim sem sóttu um og svona kynna mér. En kemst heldur betur að því núna að ég gerði ekki. Ég hafði ekki einu sinni áttað mig á því að Guðmundur hefði sótt um. Trúlega séð nafnið en ekki fattað hver hann væri. En mér líst vel á hann. Til hamingju Eyfirðingar með nýja sveitarstjórann.
mbl.is Sveitarstjóraskipti í Eyjafjarðarsveit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tilbúinn,viðbúinn, nú.

Eins gott að gleyma sér ekki á morgun. Ekki trúa neinu nema því sem maður vill.
mbl.is Salernisgjald hjá Ryanair
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Höfundur

Anna Guðný
Anna Guðný

Langar að æfa mig í að setja saman texta. Sé til hvað ég gef mér mikinn tíma í það.

Sjálfstæður Herbalife dreifingaraðili. www.heilsufrettir.is/anna

Þeir sem vilja hafa samband má benda á netfang sem er: ollana@simnet.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Um bloggið

ollana

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband