Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2009

Hvert fer orkan okkar?

Ég hef oft verið að velta því fyrir mér hvernig við nýtum orkuna okkar. Nýtum við hana til góðs? Eða eyðum við henni í reiði og pirring?

Það sem fær mig til að hugsa meira um þetta núna er fréttin um manninn sem hafði brotið á stúlku fyrir 14. árum.

Fólk rýkur upp og sumir segja að hann eigi að fá meiri refsingu og aðrir að það eigi að telja honum til tekna að hann sé orðin að betri manni í dag. Allir hafa skoðanir og flestir tjá sig.

En hver skyldi það vera sem virkilega þarf á okkur að halda? Er það ekki brotaþolinn?

 Ég veit að konur og karlar sem hafa verið nauðgað bera þess aldrei bætur. Get alveg lofað ykkur að það skiptir engu máli hvort gerandinn situr inni í x mörg ár fleiri eða færri.

Það eina sem getur hjálpað þolandanum er viðurkenning á því að þetta sé ofbeldisglæpur og eigi að viðurkenna hann sem slíkann.

Þessir þolendur þurfa meðferð í mörg ár, jafnvel tugi ára.

En gefum við þessu fólki tækifæri á þeirri meðferð sem þau þurfa á að halda?

Er það rétt sem ég hef heyrt að þolendur þurfi sjálfir að sækja bæturnar? Að einhverjum hluta eða öllum?

Ef um líkamsárás er að ræða þá t.d.  slær einn maður annan og tönnin brotnar. Þá fara bæturnar í gegnum tryggingafélagið. Búið mál. Ekki satt?

Það getur enginn verið tryggður fyrir nauðgun. Sönnunarbyrðin er svo mikil að aðeins lítill hluti kærir. Mér finnst  trúlegt að enn minna hlutfall karlmanna kæri.

Ef svo manneskjan þorir að kæra og eru dæmdar bætur í framhaldi af því fyrir hverju duga þessar bætur?  Og hvað líður langur tími frá glæp og þangað til dæmt er? Er einhver að hugsa um þolandann á þeim tíma? Það er þá sem allt hrynur. Það hreinlega hrynur allt í kringum manneskjuna. Afneitun,  sjálfsásökun, sorg o.s.frv. Eflaust fleiri erfiðar tilfinningar sem bærast í huga fórnarlambsins.

Og skömm. Þau skammast sín fyrir að hafa gert eitthvað sem varð til þess að þeim var gert þetta. Þau skammast sín fyrir að hafa orðið fyrir þessu. Þau skammast sín fyrir að hafa ekki komið í veg fyrir þetta. Þau skammast sín.

Þessar tilfinningar fylgja þeim langan tíma, mörg ár. Kannski losa þau aldrei við hana. Hvað getum við hin gert til að gera þeim þennan tíma léttbærari?

Við getum t.d. lánað öxlina. Held að margir geri sér enga grein fyrir því hvað það er stór og mikil gjöf. Þú getur ljáð eyra. Bara það að hlusta gefur heilmikið. Stubbaknús virkar líka vel.

Bara vera til staðar.

Verum til staðar.

 

 


Nafli alheimsins.

Það er kannski í Reykjavík. En ekki hér hjá mér. Var að panta mér tíma og það er vikubið.
mbl.is Biðtími eftir bólusetningu gegn svínaflensu er nú ríflega tvær vikur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Myndablogg á sunnudegi!

Alveg með ólíkindum hvað maður getur alltaf fundið sér eitthvað skemmtilegt að gera. Hvort sem það er með börnunum eða með öðru fólki.

Til að byrja með set ég inn mynd að þeirri yngstu þar sem hún var að fara á Hrekkjavökuball í síðustu viku. Stóra systir málaði og mamma keypti búning.

 

Picture 063

Tilbúin í slaginn.

 

Í dag fór ég svo til Hríseyjar með Corinne. Þetta var planað fyrr í vikunni og við vorum svona passlega bjartsýn á veður. En þvílík lukka. Það var ekki hægt að fara fram á betra veður. Frábært í sjóinn, bjart og fallegt. Sólin skein. Allt eins og eftir pöntun.

 

Picture 072

Á leið út í eyju.

 

Móttökunefndin tók á móti okkur á bryggjunni.

Picture 075

Alli og sir Svartur.

 

Rjúpnaveiðimenn athugið.

 

Picture 076

Sjáiði þetta hvíta í garðinum.

 

Set þessa síðustu með. Vond birta út af glugganum en sjáum til.

Picture 077

Setið yfir kaffi og sögum, mörgum sögum. Skemmtilegum sögum. Fyndnum sögum, sorglegum sögum. Sögum.

Eins og birtan í dag var skemmtileg til gönguferða þá var hún ekki skemmtileg til myndatöku.

Best að fara í koju núna og undirbúa sig fyrir vinnuvikuna.

Sofið rótt

 

 


Karlmenn og farartæki!

Hér er enn ein sönnun þess hversu stórhættulegir karlmenn eru við stjórnun ökutækja - alveg dæmalausir klaufabárðar LoLWink
mbl.is Grófst undir koníaki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alveg að fara í gang.

Góðan dag hér á fallegum degi á Akureyri. 4 gráður í - í morgun. Veturinn aðeins að minna á sig. Annars er óskaplegt myrkur þessa dagana. Vorum að koma heim hér á laugardagskvöldið, ég og börnin og fannst okkur hann ansi svartur.

Lítið hef ég bloggað nú síðustu mánuði. Eins og svo margir er ég föst á Fésinu. Þar hef ég fundið fólk, gamla vini og kunningja út um allan heim. Er virkilega gaman að endurnýja kunningsskapinn. Var t.d. að tala við hana Heiðu frá Dalvík  í gærkveldi. Hún  býr í bandaríkjunum og hefur búið í yfir 15 ár minnir mig. Hún var að koma því í verk að fá sé skype og því gátum við spjallað eins lengi og við vildum án þess að hugsa um kostnað. Þvílíkur munur.

Ég tók upp á því í haust að skella mér í skóla. Byrjaði í VMA. Tek til að byrja með 6 einingar eða tvær námsgreinar. Íslenska og stærðfræði varð fyrir valinu. Mikið var nú skrýtið að setjast á skólabekk aftur eftir 30 ár. Ég byrjaði í 102 í báðum greinum en komst svo að því að stærðfræðin var of erfið fyrir mig og færði mig í 193. Það voru  góð skipti. Ég hef nægan tíma og er því best að ná grunninum eins vel og ég get. Er ég búin að komast að því að það að fara í stærðfræði 193 er það gáfulegasta sem ég hef gert lengi. Alveg sama þó ég fari ekki áfram þá á þessi önn eftir að nýtast mér mikið í sambandi við heimanám hjá börnunum. Ég gat aldrei aðstoðað elstu mín eftir að hún fór í 7. bekk. Núna aftur á móti er ég búin að læra smávegis um flest það sem kennt er í grunnskólanum og er því mun betur undirbúin til að aðstoða strákinn þegar hann fer svo í 7. á næsta ári. Mín ráðlegging er sú að allir þið foreldrar sem hafið tök á  og langar til að efla sjálfstraustið í sambandi við stærðfræðina og viljið getað aðstoðað börnin ykkar við heimanámið endilega takið eina önn í framhaldsskóla. 193 er léttasta námið og það dugar langa leið.

Það er búið að vera virkilega skemmtilegt að glíma við íslenskuna. Ég kveið fyrir því að lesa heila bók og þurfa svo að taka krossapróf upp á einar 40 spurningar minnir mig. En það fór vel . Við erum svo búin að læra heilmikið í ritgerðarskrifum t.d. taka viðtöl og breyta þeim í ritgerð. Þetta er eitthvað sem hentar mér vel. Svo þegar kemur að t.d. ljóðagreiningu þá fer í verra. Mér finnst það ægilegt torf. Er þó aðeins farin að skilja þetta en svo á eftir að koma í ljós hvernig mér gengur á prófi.

Krakkarnir sem eru með mér í tíma eru flest 16. ára og gætu því verið börnin mín miðað við aldur. Ég var smá stressuð fyrst en svo hefur held ég bara gengið mjög vel. Það er þó bara að hafa áhrif í íslenskunni þar sem við vinnum ekkert í hópvinnu í stærðfræðinni. Þetta eru auðvitað allt meira og minna frábærir krakkar. Þó er þarna einn sem ég væri til í að hann fattaði að heimurinn snúist ekki um hann einan. Tengingarnar við suma krakkana eru skemmtilegar. T.d. er ein stóra systir bekkjarbróðis sonar míns. Önnur er svo dóttir gamallar skólasystur minnar.

Ég gæti sagt margar skemmtilegar sögur af náminu en ætli ég láti það ekki bíða betrri tíma. Nema jú að ég er mjög ánægð með báða kennarana sem ég fékk. Ekki það að þau eru örugglega öll mjög góð en auðvitað er misjafnt hvað passar hverjum.

Læt þetta dug í bili. Er svo stolt af því að hafa drifið mig af stað aftur í skrifin. Er alveg viss um að bloggskrifin hér síðasta ár er búið að hjálpa mér mikið í íslenskunni.

 

Hafið það gott í dag og aðra daga.


Og engir íslendingar nálægir?

Þeir í ameríkunni eru ekki jafnheppnir og bretar og hollendingar. Þeir hafa enga íslendinga til að kenna um og borga brúsann.
mbl.is 9 bandarískir bankar féllu í gær
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Anna Guðný
Anna Guðný

Langar að æfa mig í að setja saman texta. Sé til hvað ég gef mér mikinn tíma í það.

Sjálfstæður Herbalife dreifingaraðili. www.heilsufrettir.is/anna

Þeir sem vilja hafa samband má benda á netfang sem er: ollana@simnet.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Um bloggið

ollana

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband