Leita í fréttum mbl.is

Strumpaprófið.

Papa Smurf

Þetta er minn stumpur og mikið er ég ánægð með hann.

http://bluebuddies.com/smurf_fun/smurf_personality_test/smurf_personality_test.htm

ef þú vilt prófa.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Ég hjálpaði þér við að setja myndina inn, ég fæ þann heiður! En voðalega eru margir Papa Strump... stjórnsama fólk!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 8.4.2008 kl. 00:12

2 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Hæ hæ Anna Guðný og takk fyrir að bjóða til bloggvináttu

Ég tók strumpaprófið og út úr því komu 3 mismunandi strumar þannig að ég hlýt að vera ga gaaa

Kærar kveðjur á Akureyri

Guðrún Þorleifs, 8.4.2008 kl. 08:03

3 Smámynd: Anna Guðný

Róslín: Já , ég veit þú hjálpaðir mér. Þurftirðu að auglýsa vankunnáttu mína hér?

Guðrún: Bara gaman að fá þig fyrir bloggvin.

Hmm..,. þrír strumpar kannski Gunnar verði að sálgreina þetta

Anna Guðný , 8.4.2008 kl. 08:42

4 identicon

Með kveðju:

Sigling inn Eyjafjörð


Loks eftir langan dag
lít ég þig, helga jörð.
Seiddur um sólarlag
sigli eg inn Eyjafjörð.
Ennþá, á óskastund,
opnaðist faðmur hans.
Berast um sólgyllt sund
söngvar og geisladans.

Verja hinn vígða reit
varðtröllin klettablá,
máttug og mikilleit,
Múlinn og Gjögratá.
Hljóti um breiða byggð
blessun og þakkargjörð
allir, sem tröllatryggð
taka við Eyjafjörð.

Blika sem brennheitt stál
björgin og djúpin köld.
Bjart var um Austurál
oftar en þetta kvöld.
Blástur frá bláum hval
blandast við fuglaklið.
Blævakið bylgjuhjal
boðar mér drottins frið.

Ástum og eldi skírð
óskalönd birtast mér.
Hvílíka drottins dýrð
dauðlegur maður sér!
Allt ber hér sama svip;
söm er hin gamla jörð.
Hægara skaltu, skip,
skríða inn Eyjafjörð.

Allt það, sem augað sér,
æskunnar hörpu knýr,
syngur og segir mér
sögur og ævintýr.
Mild ertu, móðir jörð.
Margt hefur guð þér veitt.
Aldrei ég Eyjafjörð
elskaði nógu heitt.

Þó finnst mér ást mín öll,
unaður minn og þrá
tengd við hin fögru fjöll,
fjörðinn og sundin blá.
Hvar sem ég flótta fer
friðlaus um ókunn lönd,
bið ég til bjargar þér,
blessaða Galmarsströnd.

Bænin og barnsins trú
betra hinn týnda son.
Gleðin og guð og þú
gefa mér nýja von.
Stráin, sem blærinn braut,
blessar þín líknarhönd.
Mjúk er sem móðurskaut
moldin á Galmarsströnd.

Faðmaðu, blíði blær,
byggðir og sundin víð ...
Sé ég hvar bóndabær
brosir í vesturhlíð.
Þó komi ég sár frá sæ,
sekari en áður fyr,
á þessum bóndabæ
bíða mín opnar dyr.

Áfram – og alltaf heim,
inn gegnum sundin blá.
Guðirnir gefa þeim
gleði, sem landið sjá.
Loks eftir langan dag
leit ég þig, helga jörð.
Seiddur um sólarlag
sigli eg inn Eyjafjörð.

Davíð Stefánsson

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 8.4.2008 kl. 14:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Guðný
Anna Guðný

Langar að æfa mig í að setja saman texta. Sé til hvað ég gef mér mikinn tíma í það.

Sjálfstæður Herbalife dreifingaraðili. www.heilsufrettir.is/anna

Þeir sem vilja hafa samband má benda á netfang sem er: ollana@simnet.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 201354

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Um bloggið

ollana

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband