Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008
30.4.2008 | 16:57
Manndómsvígsla.
Jæja, þá er ég búin að upplifa það að einhver nafnlaus óskráður dóni kúki yfir mig. Hann hafði alveg gleymt að þrífa skóna áður en hann steig á mig. Auðvitað henti ég því út sem hann skrifaði en eftir stendur að loksins hef ég skrifað eitthvað sem stuðar einhvern svo mikið að hann sér ástæðu til að commentera svona hjá mér. Átti að vísu ekki von á því að það myndi gerast þegar ég skrifaði um amerískan CSI leikara en svona er lífið, you never know. Manninum óska ég alls hins besta og vona að hann hafi þá fengið sína útrás í dag sem hann þurfti og komi því glaður og ánægður heim til fjölskyldunnar í kvöld.
Kveðja
Anna Guðný
p.s. Hvar fæ ég skírteinið?
Hér er hann, vill einhver bjarga honum?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
30.4.2008 | 10:36
Hann mætti of seint i vinnuna í gærkveldi!
Sá part úr þætti í gærkveldi. Þar var hann líka í vandræðum í einkalífinu. Nýskilinn og í basli við að ja bara langa til að lifa. Mætti of seint á vakt og fékk snurpur fyrir.
En mér finnst þetta skemmtilegur leikari eins og mér finnst þau yfirleitt öll í þessum þáttum. Þau verða hálfgerðir heimilisvinir. Og ég sem gef mér yfirleitt ekki tíma til að kíkja á sjónvarp fyrr en seint sé oft part úr þáttum en sest oftast og klára þá. Bara misjafnt hversu snemma ég dett inn.
CSI leikari handtekinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
30.4.2008 | 08:17
Búin að panta minn.
Vissi ekki að hægt væri að fá mismunandi liti. En bíð spennt eftir mínum. Samt væri gott að vita hvað hann kostar.
Varagljái fyrir gott málefni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
29.4.2008 | 21:43
Sendum jákvæðar hugsanir!
Eyðum ekki dýrmætri orku okkar í karlinn. Hvað hann fær langan dóm, hvort hann sér eða sér ekki eftir þessu, hvort hann yfirleitt lifir eða deyr. Honum er nokk sama hvað við hugsum.
Hvernig væri að yfirfæra orkuna í jákvæðar hugsanir og senda öllum fórnarlömbunum í þessu máli. Við gætum meira að segja skrifað bréf og látið ganga, skrifað undir og sent til þeirra. Elisabeth Mamma hennar (á meðan ekkert annað kemur í ljós) og börnin hennar öll eru hetjur að hafa yfirleitt haldið þetta út.
Það er ótrúlegt hversu auðvelt börnin áttu með endurfundina og sömuleiðis hversu auðvelt móðir þeirra og amma áttu með að hittast á ný," sagði Berthold Kepplinger forstjóri sjúkrahússins.
Þau eru öll í bænum minu. Er að reyna að koma karlfauskinum þar fyrir líka en gengur ekki vel.
Endurfundir Fritzl-barnanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.4.2008 | 09:02
Strákar í hasarleikjum.
Hér fyrir nokkrum dögum skrrifaði ég færslu um trukkabílstjóra og fleira. Var ánægð að flestu leyti með hana en þó fannst mér eitthvað vanta. Er þó ekki orðin nógu þjálfuð í skrifunum til að geta breytt því en það kemur. Datt svo niður á blogg skrifað af Stefáni Þór Sæmundssyni
http://ss.hexia.net/faces/blog/entry.do?id=2886&entry=83239
Sem ég bið ykkur endilega að kíkja á og lesa. Hann er betri penni en ég en þessu er ég alveg ótrúlega sammála.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.4.2008 | 08:36
Láta þá þrífa upp eftir sig.
Röktu slóð krotaranna frá miðborg upp í Hlíðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.4.2008 | 23:23
Halda bara tónleika.
Farþegar strand vegna vélarbilunar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.4.2008 | 22:59
Ætla rétt að vona.
Hef verið að velta fyrir mér öllum þessum sterku lýsingarorðum sen notuð hafa verið um föðurinn. Og finn í hjarta mínu ekkert orð sem ég gæti lýst honum með. Og hef eiginlega engan áhuga á að tala um hann. Það sem mér finnst meira áríðandi er að fórnarlömbin fá eins mikla og góða hjálp og mögulegt er .
Svo eru það örugglega margir aðrir , eins og t.d. nágrannar, bæði fyrrverandi og núverandi sem eru í sjokki yfir því sem gerst hefu. Eins go t.d. maðurinn sem hafði leigt í nokkur ár íbúð í húsinu. Hann skilur margt í dag sem hann skildi ekki fyrir nokkrum árum. eins og t.d. að hann hafði séð karlinn keyra hjólbörur með mat niður í kjallara og eins heyrt hljóð eins og bank. Eins var öllum hótað öllu illu ef þau kæmu nálægt dyrunum. Þetta fólk er allt að upplifa í dag: Bara ef ég hefði......
Píslarvættið í hryllingshúsinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.4.2008 | 22:41
Grjótharðar perur.
Held að þetta hafi alltaf verið til staðar en við tölum bara um svo margt núna sem þótti engin ástæða til að nefna hér áður fyrr.
Var alveg í vandræðum á minni annarri meðgöngu með perur. Varð að fá allavega eina grjótharða og lítið þroskaða peru á hverjum . Man að maðurinn þurfti stundum að fara út að kveldi og redda mér. Alveg ótrúlegt hvað þessi elska lagði á sig til að halda mér góðri. Var eiginlega fegin að þetta var þó eitthvað hollt fyrst það þurfti að vera. En enn þann dag í dag finnst mér óþroskaðar vel grænar og harðar perur algjört lostæti.
Skrýtnar kenndir á meðgöngu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.4.2008 | 16:09
Heimanám
Réttið upp hendi foreldrar, sem finnst gaman að vera með börninum ykkar við heimanám. Það er nú svo skrýtið á þessu heimili að mér finnst valkirjan sem er í 1.bekk vera með mest heimanám. ´
En ég get alveg sagt ykkur að þetta er ekki og hefur aldrei verið mitt uppáhald. Og það hefur ekkert með tíma að gera. Er svo heppin að hafa verið heimavinnandi með börnin mín flest árin og hef því nægan tíma. Með þessu er ég ekki að segja að heimanámið sé of mikið, heldur bara finnst mér leiðinlegt að gera það með þeim. Yfirleitt allavega. Nema lestur . Alltaf verið gaman að hlusta á þau lesa. Enda báðar stelpurnar læsar þegar þær mættu í skóla og gaurinn var fljótur að ná lestrinum. Nú situr hann við hlið mér og les bókina Eva og Adam eftir Mans Gahrton. Ekki seinna vænna að lesa smá rómantík , hann sem er kominn á tíunda ár.
En það væri gaman að heyra skoðanir foreldra á heimanámi.
Eigiði góðan seinnipart.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Eldri færslur
- Febrúar 2014
- Desember 2013
- Apríl 2013
- Ágúst 2012
- Apríl 2012
- Júní 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
Tenglar
Herbalife
Vinnan mín og aðal áhugamálið.
Áhugaverð skrif.
Bloggarar sem ég vil eiga greiðan aðgang að.
Frændgarður
Familien bloggar
Lífið og tilveran
Local
- Bærinn
- Dagskráin
- N4 og Extra
- Sálarrannsóknarfélagið á Akureyri
- http://nordurland.is
- http://akureyri.net
- N4 Norðlenskar fréttir
Matur
- http://matseld.is Jens og maturinn
Persónuleg uppbygging
Vítamín fyrir heilann.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Um bloggið
ollana
Bloggvinir
- alberta
- amsa
- anitabjork
- annambragadottir
- arniarna
- atvinnulaus
- dagny65
- baldher
- bestalitla
- binnag
- daggardropinn
- drum
- duna54
- egillsv
- godinn
- gunnurr
- frost
- heidathord
- himmalingur
- hk
- ingabaldurs
- jakobk
- jeg
- jodua
- jokapje
- jonaa
- juljul
- kafteinninn
- krummasnill
- landsveit
- lauola
- ljosmyndarinn
- maggatrausta
- magnolie
- neytendatalsmadur
- mammann
- osland
- rannug
- ringarinn
- roslin
- sifjan
- 58
- snjokall
- strumpurinn
- tara
- topplistinn
- ziggi
- zeriaph
- vala
- vogin
- jona-maria
- kolbrunj
- gattin
- gledibankinn
- robertb
- bjarnijonsson
- ernadua
- curvychic
- gillimann
- minos
- hordurj
- naflaskodun
- joklamus
- vallyskulad