Færsluflokkur: Bloggar
30.10.2008 | 15:21
Ætli ég sé á hálfu?
Sé að það á að fella þetta gjald niður. Sjálf löngu búin að láta skíra en er rétt að byrja að láta ferma. Er eins og flestir trúlega búin að borga fyrrihlutann. Ætli við sleppum þá ekki bara við seinni?
![]() |
Fermingarfræðsla og skírnir gjaldfrjálsar 2010 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.10.2008 | 14:18
Bræður okkar og systur.
Nú keppst allir við að dásama Færeyjar og Færeyjinga vegna þess að þeir vilja lána okkur. Og er það vel, þeir eiga það allt skilið. En það er annað sem gerist og það er að fólk fer að rifja upp ferðir sínar þangað. Flestir eiga örugglega góða minningu um heimsókn þangað, hvort sem það var að fara á Ólafsvöku, heimsækja ættingja en bara sem ferðamaður. Ég þarf eiginlega að drífa mig þangað aftur til að búa til betri minningu um Færeyjar. Ég get að vísu hlegið að þessu í dag, en lofa ykkur því að mér fannst það ekkert fyndið þegar það gerðist.
1981 er ég 18.ára gömul að flytja til Svíþjóðar með kærastanum mínum þáverandi, honum Max. Við tökum Smyril út. Það er 2. klukkutíma stopp í Færeyjum og við ákváðum að skreppa í land á kaffihús. Þar sem við erum að yfirgefa skipið lendi ég í þessari lífsreynslu sem ég hef hvorki upplifað fyrr né síðar. Þeir tóku mig afsíðið og leiðuðu á mér vegna gruns um að ég væri að smygla eiturlyfjum. Þetta var að vísu mjög lauslega leit. Þurfti ekkert að fletta fötum eða neitt svoleiðis. En þetta er nú samt eina skiptið sem yfirvöldum í einhverju landi hefur þótt ég dópistaleg. Og ég hef komið til margra landa.
Er ekki málið að drífa sig sem fyrst og búa til betri minningu?
Hafið það gott í dag.
![]() |
Þingmenn ánægðir með Færeyinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
29.10.2008 | 08:58
Auðvitað er hollt að knúsast!
Fékk þetta af síðunni hanns Júlla Júl. Hann hafði náð í þetta á bb.is. Þetta niðurstöður koma mér alls ekki á óvart. Ég veit bara hvað mér finnst gott að fá knús.
Knús er hollt
Almennilegt faðmlag getur dregið úr hættu á hjartasjúkdómum, að því er ný bandarísk rannsókn sýnir. Berlingske tidende greinir frá því að vísindamenn við Háskólann í Norður-Karólínu hafi skipt 38 pörum upp í tvo hópa. Helmingur paranna fékk þau fyrirmæli að setjast niður og rifja upp góðar stundir sem þau hefðu upplifað saman, horfa í fimm mínútur á rómantíska kvikmynd og að lokum faðma hvort annað í 20 sekúndur. Í hinum hópnum sat fólkið eitt síns liðs og hugsaði um hvað það myndi gera ef það hefði daginn alveg fyrir sig sjálft. Eftir það stóð það á fætur og var þannig í tuttugu sekúndur án þess að fá knús.Að því loknu átti fólkið í báðum hópunum að greina frá upplifun sem leiddi til þess að það varð stressað eða reitt. Meðan á því stóð var blóðþrýstingur og púls fólksins mældur. Í ljós kom að þau pör sem höfðu faðmast mældust með miklu lægri tölur en hinir. Að auki var minna magn af streituhormóninu cortisól hjá þeim sem höfðu knúsast.
Hár blóðþrýstingur og hraður púls eru dæmigerð einkenni streitu. Vísindamennirnir líta því á niðurstöðurnar sem vísbendingu um að pör sem faðmast mikið séu minna móttækileg fyrir streitu og séu þar með í minni hættu á að fá hjartasjúkdóma.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
28.10.2008 | 21:26
Hvað eiga hundar mörg líf?
![]() |
Schaffer hundur slapp eftir 10 metra fall |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.10.2008 | 19:13
Með ólíkindum.
Ég vissi ekki hvort ég ætti að gráta eða hlægja þegar ég las þessa frétt og varð að lesa hana tvisvar til að virkilega. Samt er ég talin þokkalega greind.
Tillagan er liður í nýjum mælikvarða Heilbrigðiseftirlitsins sem á að tryggja að Víetnamskir ökumenn séu við góða heilsu. Óljóst er við hvað var miðað þegar ráðuneytið ákvarðaði æskilega stærð, en ljóst er að fólkið í landinu er ekki sátt.
Þannig að þeir telja þá að þeir sem séu undir þessari viðmiðunartölu séu þá of slappir til að vera treystandi á faratæki út á götu. Ekki satt?
Jahérna flest er nú til.
![]() |
Brjóstasmáum bannað að keyra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
27.10.2008 | 23:31
Eigum við að skilja þetta?
Það er eitthvað Bandarískt stórfyrirtæki sem hefur tapað 16.5 milljarða ísl. kr. núna á þriðja ársfjórðungi. Þar af eru jafnvirði 6.9 milljarða kr. sem þeir hafa tapað á kaupum á skuldabréfum sem íslenskir bankar gáfu út. Er ekki allt í lagi? Mér sýnist það vera ungir menn í Matador í fleiri löndum en á Íslandi.
Loews Corp. rekur m.a. fjármálaþjónustu, hótel og er umsvifamikið í gas- og olíuleit og lagningu gasleiðslna.
Og svo er fólk hissa á að þessir strákar hér hafi látið glepjast.
Ég þakka enn og aftur fyrir það að þegar bæði bílasalinn og þjónustufulltrúinn í bankanum ráðlögðu okkur í fyrra að endilega taka erlent lán til að endurnýja bílinn, þá hugsuðum við okkur um, hlustuðum á innri rödd og sögðum nei, það er ekki gott mál. Bílinn gengur, að vísu ári eldri en stendur fyrir sínu.
Hafið það gott
![]() |
Tapaði miklu á skuldabréfum íslenskra banka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
26.10.2008 | 21:07
Kvennabolti á Írlandi.
Ef málið að þannig að Ríkissjónvarpið hér á landi hafi gert allt sem í þeirra valdi stóð til að sýna þennan leik og ekki tekist það vegna áhugaleysis á Írlandi, ja hvernig er þá hlúð að kvennabolta þar í landi? Og við sem héldum að það slæmt hér.
Áfram stelpur
![]() |
Ísland færðist skrefi nær EM |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
26.10.2008 | 19:26
Eða læðan?
![]() |
Gætti nýfæddra kettlinga uns hjálpin barst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.10.2008 | 23:52
Laugardagskvöld
Var búin að skrifa helling áðan og kemur þá ekki unglingurinn til að sýna mömmu sinni að hún sé byrjuð að blogga og búin að skrifa það fyrsta. Haldiði að hún hendi ekki öllu út. En hún bað svo aumkunarlega afsökunar (skellihlægjandi að vísu) að ég varð að fyrirgefa henni.
Ég sit nú ein hér á laugardagskvöldi og hef það náðugt. Eiginmaðurinn fór á sjóinn í dag. Hann hringdi áðan. Brjálað veður en hann bjóst við að veður yrði orðið þokkalegt þegar hann kæmi á miðin. Við hin, ég og börnin þrjú sátum hér yfir virkilega skemmtilegri bíómynd í kvöld. Sjaldan þegar það er sýnd mynd sem hentar öllum og þá er um að gera að njóta þess. Við ætlum svo að horfa á Spaugstofuna og skemmtiþáttinn á morgun. Mikið að gera í sjónvarpsglápi. Um leið og myndin var búin fóru þau yngri að sofa og vá hvað þau voru fljót að sofna. Og skyldi engann undra. Gaurinn var mættur á rúmstokkinn hjá mér kl. 6. í morgun. Ég man þá daga að ef svoleiðis gerðist þurfti annað okkar hjóna að fara á fætur með, oftast ég auðvitað hann er það sjaldan heima. Það er alveg yndislegt að sá tími sé liðinn. Nú segir maður bara: Já elskan, fáðu þér að borða og kveiktu svo á sjónvarpinu og ég kem svo á eftir. Þetta eftir getur alveg verið eftir tvo tíma eins og var hjá okkur í morgun. Annars var ég að hlusta á valkirjuna tala við vonkonu sína í síma í dag og það var alveg yndislegt. Vinkonan gat ekki leikið og þá vildi min auðvitað halda henni aðeins lengur í símanum og þær fóru að ræða þjóðmálin. Vinkonan er að segja henni að hún eigi 5001 krónu. Vá segir mín og kemur frá tólinu til að segja mér frá þessu, en segir síðan: Og er ekki ríkisstjórnin búin að taka peningana? Mikil speki hjá minni. Verð að spjalla aðeins við hana. Nóg hafa þeir nú fengið á sig þingmennirnir svo ég fari nú ekki að saka þá um að stela peningum frá litlum stelpum.
Annars eru þessi börn alltaf að koma manni á óvart. Unglingurinn minn eyddi t.d. síðustu nótt í skólanum. Foreldraráðin í bekkjunum setja alltaf upp fyrir krakkana nokkrum sinnum á ári eitthvað skemmtilegt að gera. Í fyrra þegar hún var í sjöunda bekk þá voru þau beðin um að skrifa niður á óskalista eitthvað að gera. Nr. 1 á listanum var að sofa í skólanum.Enmitt, þau eru þarna alla virka daga en þetta var það flottasta. OK, það var farið í það núna. Þrjár mömmur tóku að sér að gista með þeim en svo vorum við tvær í viðbót sem aðstoðuðum við matinn og sátum svo fram eftir kvöldi. En þetta gekk svo vel og þetta eru svo flottir krakkar að ég fékk að fara heim snemma. Náði svo í hana aftur í morgun. Sum voru svona aðeins syfjuð en það var svo gaman að þau voru öll með bros út að eyrum sýndist mér.
Dagurinn í dag flaug áfram eins og venjulega. Það var vinnufundur hjá mér í Herbalife í dag. Hún Sylvía leggur á sig að koma alla leið frá Selfossi á 1-2 mánaða fresti og vera með okkur. Frábært hjá þér Sylvía. Egil kom líka og talaði hjá okkur áður en hann fór að keppa á Takevondo(er ekki alveg viss hvernig á að skrifa) mótinu sem haldið var hérna, seint og um síðir. Það var auðvitað ófært að sunnan og vesen að komast norður.
Svo eftir fundinn voru það fastir liðir eins og venjulega, keyra í og úr dansæfingu, snúllast eitthvað hérna heima. Pöntuðum okkur pizzu í kvöldmatinn. Í fyrsta skipti sem við pöntunum frá Bryggjunni, sem er nýr staður í sama húsi og Subway. Það eru eldbakaðar pizzur þar og held ég í fyrsta skipti sem allavega þau yngri smakka svoleiðis. Og ekki var nú beint bros á valkirjunni sem hún tók fram fyrstu sneiðina. Mamma, þetta er eins og úldið. Hvaða vitleysa sagði mamman. Jú, ég meina eins á litinn undir.Ok gat ekki rökrætt það. En þau kláruðu svo góð var hún.
Er svo að fara á vakt í fyrramálið í sáló. Kem heim um hádegi og meiningin er að gera eitthvað skemmtilegt með börnunum ef viðrar. Við kíkum allavega smá út.
Svo erum við búin að bjóða þeim á frumsýningu á High School Musical á morgun. Engin smá ánægja þegar ég kom með miðana í kvöld. Við hjónin keyptum þá á netinu fyrir nokkrkum dögum án þess að þau vissu. 1 og 2 erum búnar að ganga hér út í eitt og fínt að fá nýja. Ég er alltaf að upplifa oftar of oftar þessa dagana eitthvað sem þeim finnst öllum meiriháttar gaman öllum. Hef t.d. aldrei áður keypt miða handa þeim öllum án þess að taka við þau. En veit í þessu tilfelli að öllum finnst hún góð. Þetta þýðir víst að börnin séu að eldast. Og mikið finnst mér það gott. Veit að það verða erfiðleikar þar líka en ég verð alltaf ánægð þegar ég uppgötva að einu skeiði sé lokið og annað byrjað. Þið getið ekki ímyndað ykkur hvað ég er ánægð með að geta gengið framhjá ungbarnaverslunum. Það eru freistingarnar, maður minn.
Jæja held ég ætti að kíkja á koddann.
Eigiði ljúfa helgarrest
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
25.10.2008 | 19:16
Las þetta fyrst sem hækkun.
![]() |
Bað um launalækkun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Eldri færslur
- Febrúar 2014
- Desember 2013
- Apríl 2013
- Ágúst 2012
- Apríl 2012
- Júní 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
Tenglar
Herbalife
Vinnan mín og aðal áhugamálið.
Áhugaverð skrif.
Bloggarar sem ég vil eiga greiðan aðgang að.
Frændgarður
Familien bloggar
Lífið og tilveran
Local
- Bærinn
- Dagskráin
- N4 og Extra
- Sálarrannsóknarfélagið á Akureyri
- http://nordurland.is
- http://akureyri.net
- N4 Norðlenskar fréttir
Matur
- http://matseld.is Jens og maturinn
Persónuleg uppbygging
Vítamín fyrir heilann.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.9.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Um bloggið
ollana
Bloggvinir
-
alberta
-
amsa
-
anitabjork
-
annambragadottir
-
arniarna
-
atvinnulaus
-
dagny65
-
baldher
-
bestalitla
-
binnag
-
daggardropinn
-
drum
-
duna54
-
egillsv
-
godinn
-
gunnurr
-
frost
-
heidathord
-
himmalingur
-
hk
-
ingabaldurs
-
jakobk
-
jeg
-
jodua
-
jokapje
-
jonaa
-
juljul
-
kafteinninn
-
krummasnill
-
landsveit
-
lauola
-
ljosmyndarinn
-
maggatrausta
-
magnolie
-
neytendatalsmadur
-
mammann
-
osland
-
rannug
-
ringarinn
-
roslin
-
sifjan
-
58
-
snjokall
-
strumpurinn
-
tara
-
topplistinn
-
ziggi
-
zeriaph
-
vala
-
vogin
-
jona-maria
-
kolbrunj
-
gattin
-
gledibankinn
-
robertb
-
bjarnijonsson
-
ernadua
-
curvychic
-
gillimann
-
minos
-
hordurj
-
naflaskodun
-
joklamus
-
vallyskulad