Leita í fréttum mbl.is

Klónuð útgáfa af mér.

Stundum þyrfti ég að geta átt eitt svona klónað eintak af sjálfri mér. Ekki það að ég sé svona merkileg, heldur er ég kannski búin að skipuleggja eitthvað með löngum fyrirvara og hlakka mikið til. Svo sé ég eitthvað stórmerkilegt auglýst á akkúrat sömu mínútunni. Eitthvað sem alls ekki má missa af. Núna er það Páll Óskar. Hver reynir að keppa við Pál Óskar? Ekki ég. Hann er auglýstur með barnaball og áritun í Sjallanum á sömu mínútu og bloggarakaffið okkar á morgun. Ég ætla sjálf að mæta í kaffið en senda klónaða eintakið í Sjallann með börnin.

Annars er þessi vika búin að vera þéttsetin líkt og þær flestar eru. Alveg ótrúlegt hvað ég get alltaf tekið að mér eitthvað skemmtileg verkefni sem fá tímann til að fljúga áfram.

Nú eru framundan Opnir dagar hjá Sálarrannsóknarfélaginu hér í bæ og hef ég verið að taka þátt í undirbúningi þar. Verð svo að vinna þar seinna í dag og á morgun. Fór á algjörlega frábæran fund í gærkveldi. Var sjálf með kynningu þar en á eftir fengum við svo meiriháttar upplifun sem ég fer ekkert nánar í hér.

Síðan er meiningin að fjölskyldan skelli sér til Dalvíkur annað kvöld í leikhús. Segi ykkur betur frá því eftir sýningu. Sólveig vinkona er með puttana í því verki og hlökkum við til að sjá það.

Um síðustu helgi komum við saman nokkur sem höfðum verið að vinna saman á gamla ÚA.  Þeir sem ekki þekkja til þá var það Útgerðarfélag Akureyrar. Hún Harpa okkar sem býr á Arnarnesinu sem á Akureyska vísu telst sem sveitarómantíkursvæðið í nágrenni borg óttansWhistling Wink er með facebook eins og svo mörg okkar og hóaði hún saman grúbbu þar. Þar sem hún skrapp norður um helgina setti hún á kaffihúsaferð á föstudagskvöldið.

PB140002

Jónas, Anna Dísa, Linda, Harpa sjálf og Guðný Björk.

Veit ekki hvort þið þekkið hana Hörpu en það sem hún hefur sér aðallega  til frægðar unnið fyrir utan að hafa unnið á ÚA í gamla daga og bara að vera frábær er að hún er nuddari og það góður nuddari og sem slíkur var viðtal við hana í DV. Vitiði af hverju? Jú, hún nuddaði nebblega Fjölni Þorgeirsson. Með fullri virðingu fyrir Fjölni, þá hefði ég nú miklu frekar viljað vera í hlutverki hans en Hörpu.WhistlingHafiði farið í nudd til hennar? En svona er lífið, hún var vakið upp einn morguninn af blaðamanni DV sem þurfti endilega að fá þetta nánar útskýrt. Bíddu við, nánar útskýrt? Afhverju pantaði maðurinn ekki bara tíma hjá henni?DevilWhistlingTounge Ég held að það hafi enginn blaðamaður vakið upp Völu, nuddarann minn hérna á Akureyri og spurt hana nánar út í nudd hennar á mér. Hvað segir þetta mér? Jú, blaðamenn DV telja meiri líkur á að Fjölnir Þorgeirsson og frétt um hann selji blaðið heldur en ef fréttin hefði verið um mig.Blush  Auðvitað hlógum við af þessu þarna um kvöldið. En staðreyndin er nú samt sú að þetta er það lengsta sem þessi hópur hefur náð í frægð.

PB140003

Bíddu, er hún líka fyrir miðri mynd hérna? Smile Anna Geirlaug, Geirdís Hanna og Jónas.

Við hittumst fyrst á Bláu Könnunni snemma um kvöldið. Svona 12-14 manns mættu. Þrír sem eru að vinna þar ennþá. Eljan í strákunum. Við stelpurnar allar hættar, mislangt síðan.

Mikið ótrúlega hlógum við mikið. Enda bera myndirnar á fésbókinni hjá Hörpu þess merki. Þegar lokaði á Bláu fóru sumir þeir sem vorum búnir með útivistartímann heim en við hin skelltum okkur á Kaffi Karolínu. Þar fengum við sæti á efri hæðinni og héldum áfram að spjalla. Rifjaðar voru upp ýmsar sögur. Sumar þeirra fengu suma til að roðna og er það hið besta mál, svo lengi sem engin nöfn eru nefnd. Sagan af ævisögum og kærustum og kærustum og heimsóknum og so videre. Ég hló svo mikið að nokkrir magavöðvar sem höfðu verið í slökun lengi tóku sig til og fóru í gang.

PB140001

Þarna eru strákarnir þrír: Jónas, Óskar og Agnar. Jónas svolítið upplýstur, en það er eitthvað sem ég þarf að læra að breyta. Svo er Hekla þarna innanvið þá og svo Anna Dísa og Harpa.

Meiningin er að endurtaka leikinn þegar Harpa kemur næst norður. Ef þið eruð einhver að lesa þetta sem voruð að vinna með okkur á ÚA, þá endilega skráið ykkur inn á fésið og verið með næst.

 

Það er langt síðan fréttir af hundi og ketti á þessu heimili hafa verið. Get sagt ykkur að gengið hefur á ýmsu. Hélt á tímabili að kötturinn væri að flytja út. Hún var ótrúlega móðguð yfir þessari heimsókn hundsins. En hundurinn var og er ótrúlega hrifin af kettinum, sem á það alls ekki skilið. Það er mikið búið að hlægja að þeim síðustu daga og viku. Hundurinn fór til helgarafa um síðustu helgi og fer aftur í dag. Mikið var  nú kötturinn ánægður með það. Hún spígsporaði hér um íbúðina og lét eins og hún ætti allann heiminn.

PB210002

Tók þessa mynd áðan. Svona hafa þær smásaman verið að nálgast hvor aðra. Hundurinn Arabia er löngu tilbúin en kötturinn Kisa er ekki alveg búin að viðurkenna hana en eins og þið sjáið er þetta alveg að koma.

Hafið það gott í dag.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: JEG

Já það er ekki bara mikið að gera í sveitinni .....heheheh nei því að þéttbýlið býður upp á dáldið sem við í sveitinni sleppum dáldið við og það er þetta að þvælast í allan fjandann sem er í boði hahahahah....

Knús og kossar essgan og farðu vel með þig skvís og kannski spurning um að fara að taka sér einn rólegheitardag ....???? 

JEG, 21.11.2008 kl. 11:42

2 identicon

Anna mín þú ert svo vel að Guði gerð.það hjálpar þér að gera þetta allt. Þú er svo bóngóð og ólöt og enginn fyrirstaða.Þú brosir með

hafðu góða helgi kv Bögga.

Bögga (IP-tala skráð) 21.11.2008 kl. 12:12

3 Smámynd: Anna Margrét Bragadóttir

'Eg er alveg sammála því að það væri stundum gott að eiga svona vara eintak af sjálfum sér,þegar margt er að gerast á mörgum stöðum í einu

það er sko altaf nóg að gera hjá þér.

'Eg held að kisi eigi eftir að samþykkja hundin og þau að verða perluvinir.

Góða helgi nafna mín ;)

Anna Margrét Bragadóttir, 21.11.2008 kl. 14:03

4 Smámynd: Sifjan

Ég fór með alla krakkana ... já ALLA krakkana mína (unglinginn líka) til Dalvíkur um síðustu helgi á leiksýninguna.... það var bara ægilega gaman... meira að segja Siggi Tumi skemmti sér ótrúlega vel :=) 

Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna sem ég mæli með ..

Sifjan, 21.11.2008 kl. 19:45

5 Smámynd: Guðrún Jónína Eiríksdóttir

Hey ég var ekki með, ég þekkti allavega Hörpu og Jónas á myndunum og líka Agnar. Sumir unnu á Ú.A. Ég er allveg að verða móðguð yfir að hafga ekki vitað af þessu(en nei djók) Írisi hitti ég á Kópaskeri í fyrra og þekkti hana. Ójá ég man eftir mörgum frá Ú.A til dæmis þér. Knús og kveðja.

Guðrún Jónína Eiríksdóttir, 21.11.2008 kl. 19:57

6 identicon

já gat skeð að þú héldir áfram með að tala um gæjann ;)

skemmtileg frásögn af kvöldinu Anna, verður endurtekið stærra og meira seinna!

Harpa (IP-tala skráð) 22.11.2008 kl. 12:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Guðný
Anna Guðný

Langar að æfa mig í að setja saman texta. Sé til hvað ég gef mér mikinn tíma í það.

Sjálfstæður Herbalife dreifingaraðili. www.heilsufrettir.is/anna

Þeir sem vilja hafa samband má benda á netfang sem er: ollana@simnet.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 201289

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Um bloggið

ollana

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband