Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009
31.1.2009 | 23:48
Árshátíð í dag
Árshátíðin í skólanum var í dag. Setti inn fullt af myndum á hina síðuna mína sem er: www.123.is/ollana.
Annars hef ég það fínt, hef bara svo mikið að gera að ég gef mér ekki meiri tíma í bloggið.
Er þó eins og flestir landsmenn spenntir yfir því hvernig stjórnin kemur út. Er þó bjartsýn og vona það besta.
Hafið það gott elskurnar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
31.1.2009 | 23:41
Eurovision
Þetta er Jade, sú sem vann í Bretlandi. Tekur hér gamalt og gott lag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.1.2009 | 21:53
Klaufalega orðað!
Og ekki í fyrsta skipti. Ætli mamma hans hafi aldrei kennt honum að telja upp að tíu. Eða hann hafi bara gleymt því.
![]() |
Berlusconi vekur hneykslan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
24.1.2009 | 23:53
Úff!!
Mikið er ég fegin að vera ekki í hlutverki þess sem þarf að taka ábyrgð á þessari ákvörðun.
Ef hún/hann tekur þá ákvörðun að senda ávarpið út kemur einhver hópur og fordæmir það. Ef hann/hún hins vegar heldur sinni ákvörðun til streitu að senda ekki út, þá verður annar hópur brjálaður.
Hvað á að gera?
![]() |
Þúsundir mótmæla ákvörðun BBC |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.1.2009 | 12:43
Allir geta skemmt sér.
Það geta allir skemmt sér á Akureyri þessa dagana.
Það er frítt í jóga, það er frítt í leikfimi, það er frítt i krullu, í stafagöngu, gönguhópa, það er meira að segja frítt í fjallið þessa helgi. Enda skilst mér að allar vélar í gær hafi verið meira og minna fullar.
Þetta er frábært afrek þeirra sem að þessu standa.
Njótið þess
![]() |
Skíðað fyrir norðan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
23.1.2009 | 23:48
Krúttlegt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
23.1.2009 | 16:51
Ennþá flottur í læknaslopp?
![]() |
Snýr Clooney aftur í ER? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.1.2009 | 14:54
Hvaða tími væri betri?
Hörður minn, þú kannski lætur okkur vita hvaða tími hentar ykkur best ef þarf að koma með tilkynningar.
Hrædd um að hann hafi aðeins hlaupið á sig núna. En það er einmitt svo auðvelt þegar einhver kemur rjúkandi með mikrafón, treður upp í andlitið og vill fá svar núna.
![]() |
Hænuskref í rétta átt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
23.1.2009 | 14:51
Ég vil, kannski fæ ég ekki allt sem ég vil!!
Auðvitað vill hann halda kosningar fyrr. Hann veit sem er að nú í augnablikinu er staða þeirra sterk. En um leið og fólki er gefinn tími til að hugsa og kanna hvað annað er í boði , þá á það eftir að breytast.
Svona um það bil vildi ég sjá þetta.
Ég get sætt mig við kosningar í maí en þó með því skilyrði að tíminn fram að þeim sé vel nýttur. Það á að nota tækifærið og stokka þetta kerfi okkar upp. Ég vil ekki þurfa að kjósa heilan flokk, bara af því að mér finnst einhver frábær manneskja vera í honum. Heldur vil ég getað kosið persónur sem ég treysti til starfsins.
Það sem ég vildi sjá núna er að sjónvarpið verði notað mikið til kynningar. Öll framboð geri kynningarþætti þar sem koma fram helstu áherslumál þeirra , hvernig þeir líti á ástandið í dag og hvaða lausnir þeir séu með. Ég nenni ekki að hlusta á 150 fréttatíma og umræðuþætti til að ná að heyra aðalatriðin. Ég vil að sömu spurningar séu lagðar fyrir öll framboð og vil að þau svari þeim svo ég geti námundað mig við það framboð sem er næst minni skoðun. Ég vil ekki x á happdrættismiða. Ég vil líka fá að vita hvaða einstaklinar séu í framboði.
Ég vil svo margt, hvað viljið þið?
![]() |
Steingrímur J.: Sleginn út af laginu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
23.1.2009 | 11:10
Föstudagur til fjár!
Hm.. ekki málið hér.Frekar til eyðslu hér í dag en það er auðvitað fjárfesting til framtíðar.
Allt í gangi hér eins og venjulega.
Yngri börnin í skólanum. Aðalmálið þar þessa dagana er undirbúningur fyrir árshátíð sem verður um næstu helgi. Mér skilst að ég eigi að fjárfesta í englavængjum í dag. Er kannski einhver Ak. sem les þetta og á vængi sem getur lánað okkur? Frekar stór fjárfesing fyrir ekki lengri tíma. Vængir eru sem sagt ekki notaðir mikið hér svona dags daglega.
Unglingurinn liggur í tannlæknastólnum á meðan ég skrifa þessi orð. Verið er að setja á hana spangir. Hún er búin að vera með beisli í tæpt ár minnir mig og hefur staðið sig eins og hetja. Bitið sem átti að rétta sem mest er orðið rétt. Þannig að hún fær 10+.
Eiginmaðurinn var að vakna á Landspítalanum. Svaf að vísu ekki mikið í nótt. Líf og fjör á deildinni. Hann var í skurðaðgerð þar í gær. Allt gekk vel og hnífurinn virkaði vel. Hann kemur heim með flugi í kvöld. Það þýðir að við bjóðum vonandi upp á ný líf á þessu heimili hér eftir, líf án verkja. Mikið hlakka ég til. Strengirnir voru heldur betur farnir að styttast. Verð samt að viðurkenna að ég er ekkert viss um að hann verði skemmtilegur sjúklingur.Hann á nefninlega eftir að vera heima í 6-8 vikur. Talið við mig eftir 4. Nú, eða hann. Við erum vön því að hann sé á sjónum og því er þetta alveg ótrúlega mikil breyting. Og þá af því hann getur svo lítið gert.
Ég fór á fund í Brekkuskóla hér á Ak. í gærkveldi og segi betur frá honum seinna i dag ef ég gef mér tíma. En mikið gerði hann fyrir mig. Ég náði að fylla á bjartsýnistankinn. Það var eitthvað farið að minnka í honum. Aðallega er það vegna þess að ýmislegt sem gengur hefur á í þjóðfélaginu síðustu daga hefur gert mig sorgmædda. Þeir sem hafa fylgst með blogginu mínu og athugasemdum hjá öðrum vita hvað ég er að tala um. En þarn kom saman, veit ekki hversu margir, kem með tölu í dag. Allir jákvæðir og brosandi tilbúnir í að taka á málum.
Hafið það gott í dag
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Eldri færslur
- Febrúar 2014
- Desember 2013
- Apríl 2013
- Ágúst 2012
- Apríl 2012
- Júní 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
Tenglar
Herbalife
Vinnan mín og aðal áhugamálið.
Áhugaverð skrif.
Bloggarar sem ég vil eiga greiðan aðgang að.
Frændgarður
Familien bloggar
Lífið og tilveran
Local
- Bærinn
- Dagskráin
- N4 og Extra
- Sálarrannsóknarfélagið á Akureyri
- http://nordurland.is
- http://akureyri.net
- N4 Norðlenskar fréttir
Matur
- http://matseld.is Jens og maturinn
Persónuleg uppbygging
Vítamín fyrir heilann.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.3.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Um bloggið
ollana
Bloggvinir
-
alberta
-
amsa
-
anitabjork
-
annambragadottir
-
arniarna
-
atvinnulaus
-
dagny65
-
baldher
-
bestalitla
-
binnag
-
daggardropinn
-
drum
-
duna54
-
egillsv
-
godinn
-
gunnurr
-
frost
-
heidathord
-
himmalingur
-
hk
-
ingabaldurs
-
jakobk
-
jeg
-
jodua
-
jokapje
-
jonaa
-
juljul
-
kafteinninn
-
krummasnill
-
landsveit
-
lauola
-
ljosmyndarinn
-
maggatrausta
-
magnolie
-
neytendatalsmadur
-
mammann
-
osland
-
rannug
-
ringarinn
-
roslin
-
sifjan
-
58
-
snjokall
-
strumpurinn
-
tara
-
topplistinn
-
ziggi
-
zeriaph
-
vala
-
vogin
-
jona-maria
-
kolbrunj
-
gattin
-
gledibankinn
-
robertb
-
bjarnijonsson
-
ernadua
-
curvychic
-
gillimann
-
minos
-
hordurj
-
naflaskodun
-
joklamus
-
vallyskulad