Leita í fréttum mbl.is

Fékk þetta í pósti.

Ég, eins og margir fengu þennan póst í dag og þetta er bara skemmtileg lesning.
SÓSÍALISMI 
Þú átt 2  kýr. 
Þú gefur nágranna þínum aðra þeirra. 

KOMMÚNISMI 
Þú átt 2  kýr. 
Ríkið tekur þær báðar og gefur þér mjólk. 

FASISMI 
Þú átt 2  kýr. 
Ríkið tekur þær báðar og selur þér mjólk. 

NASISMI 
Þú átt 2  kýr. 
Ríkið tekur þær báðar...og skýtur þig svo. 

SKRIFRÆÐI 
Þú átt 2  kýr. 
Ríkið tekur þær báðar, skýtur aðra þeirra, mjólkar hina og hellir svo  allri mjólkinni. 

HEFÐBUNDINN KAPITALISMI 
Þú átt 2 kýr. 
Þú selur  aðra þeirra og kaupir naut. Þú stofnar kúabú og hagnast vel. Þú hagnast vel,  selur kúabúið og sest í helgan stein 

SÚRREALISMI 
Þú átt 2  gíraffa. 
Ríkið krefst þess að þú farir í harmonikkunám. 

BANDARÍSKA  FYRIRTÆKI 
Þú átt 2 kýr. 
Þú selur aðra þeirra og þvingar hina til að gefa  af sér mjólk á við fjórar kýr. Þú ræður svo sérfræðing til að komast að því  hvers vegna hún datt niður dauð. 

ÁHÆTTUFJÁRFESTINGAR 
Þú átt 2  kýr. 
Þú selur 3 þeirra til fyrirtækis á opnum markaði með veði í  gervifyrirtæki mágs þíns, gengur svo frá yfirtöku með vísan í skráningu á  markaði þannig að þú færð allar 4 kýrnar tilbaka og skattaívilnanir vegna einnar  til viðbótar. Afurðarétturinn af kúnum 6 er færður yfir á fyrirtæki í  Karíbahafinu, en leynilegur meirihlutaeigandi þess selur þér aftur réttinn að  öllum 7 kúnum. Samkvæmt ársskýrslu á fyrirtækið nú 8 kýr, með eigendarétti að  einni til viðbótar. Þú selur eina kú til þess að þóknast ónefndum  stjórnmálamanni og átt þá níu kýr. Rétturinn að nautinu er seldur almenningi í  hlutafjárútboði. 

FRANSKT FYRIRTÆKI 
Þú átt 2 kýr. 
Þú ferð í  verkfall, skipuleggur mótmæli og tefur umferð...vegna þess að þú vilt eiga þrjár  kýr. 

JAPANSKT FYRIRTÆKI 
Þú átt 2 kýr. 
Þú endurhannar þær þannig að þær verða tíu sinnum minni, en framleiða tuttugu sinnum meiri mjólk. Þú markaðssetur svo nýja teiknimyndahetju, „Kúmann“, sem nær miklum vinsældum um allan heim. 

ÞÝSKT FYRIRTÆKI 
Þú átt 2 kýr. 
Þú endurhannar þær þannig  að þær lifa í 100 ár, éta einu sinni í mánuði og mjólka sig sjálfar.   


ÍTALSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr. 
Þú veist ekki hvar þær eru  niðurkomnar. Þú ákveður að fá þér að borða.

RÚSSNESKT FYRIRTÆKI 
Þú átt  2 kýr. 
Þú telur þær og kemst að því að þú átt 5 kýr. 
Þú telur þær aftur og  kemst að því að þú átt 42 kýr.
Þú telur þær enn og aftur og kemst að því að  þú átt 2 kýr. 
Þú hættir að telja og opnar aðra vodkaflösku. 

SVISSNESKT  FYRIRTÆKI
Þú átt 5000 kýr. Engin þeirra tilheyrir þér í raun. 
Þú rukkar  eigendurna fyrir geymsluna. 

KÍNVERSKT FYRIRTÆKI 
Þú átt 2 kýr. 
Þú  ræður 300 manns til að mjólka þær. Þú segir atvinnuleysi í lágmarki og  blómstrandi landbúnað. Þú handtekur fréttmanninn sem sagði frá stöðunni eins og  hún er í raun og veru. 

INDVERSKT FYRIRTÆKI 
Þú átt tvær kýr. 
Þú  tilbiður þær. 

BRESKT FYRIRTÆKI
Þú átt tvær kýr.
Báðar eru með  gin-og klaufaveiki 

ÁSTRALSKT FYRIRTÆKI 
Þú átt 2 kýr. 
Bissnessinn  gengur vel. 
Þú lokar skrifstofunni og færð þér nokkra kalda til að halda upp  á það. 

NÝ-SJÁLENSKT FYRIRTÆKI 
Þú átt tvær kýr. 
Sú til vinstri er  asskoti löguleg. 

ÍRASKT FYRIRTÆKI
Allir virðast  eiga fjölda kúa. 
Þú segir öllum að þú eigir enga. 
Enginn trúir þér svo  þeir sprengja þig í tætlur og ráðast inn í landið. 
Þú átt enn engar kýr, en  þú býrð þó amk í lýðræðisríki núna.. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Jónína Eiríksdóttir

Ég fékk þetta líka og setti það á hina

http://www.123.is/kopaskerskerling síðuna mína áðan.

Knús og kveðjur.

Guðrún Jónína Eiríksdóttir, 23.10.2008 kl. 23:26

2 Smámynd: Erna

Þessar beljur eru barasta vaðandi um allan bloggheimin  

Erna, 24.10.2008 kl. 00:09

3 Smámynd: Anna Guðný

Erna: Ég verð eiginlega að vera sammála þér en þær eru nú svolítið skemmtilegar

Halldóra og Dúna: Takk fyrir innlitið.

Anna Guðný , 24.10.2008 kl. 08:36

4 Smámynd: Renata

hihihi...  







Renata, 24.10.2008 kl. 08:41

5 identicon

Segi eins og Erna beljurnar fljúga um allan bloggheim .  Góður samt..

Unnur María Hjálmarsdóttir (IP-tala skráð) 24.10.2008 kl. 09:06

6 Smámynd: Skákfélagið Goðinn

Fyrstu 6 dálkarnir eru reyndar eldgamlir, líklega 15 ár frá því að ég þá fyrst.   Restina hef ég ekki séð áður.

Skákfélagið Goðinn, 24.10.2008 kl. 16:21

7 Smámynd: JEG

Muuuuu.................

KNús á þig essgan og vona að þú eigir ljúfa helgi.

JEG, 24.10.2008 kl. 17:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Guðný
Anna Guðný

Langar að æfa mig í að setja saman texta. Sé til hvað ég gef mér mikinn tíma í það.

Sjálfstæður Herbalife dreifingaraðili. www.heilsufrettir.is/anna

Þeir sem vilja hafa samband má benda á netfang sem er: ollana@simnet.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Um bloggið

ollana

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband