Leita í fréttum mbl.is

Dagurinn í dag.

Líf og fjör á heimilinu þessa dagana. Mother's Day 2 

Við dreifingaraðilar fengum góða heimsókn á gær, laugardag., Sylvia okkar alla leið frá Selfossi og svo austfjarðardrottningarnar Diana Mjöll frá Eskifirði og Solla frá Stöðvarfirði. En einnig skjellti Halldóra Ósk sér yfir fjöllin norður um heiðar frá borg óttans. Hún er heppin kona og hún veit af hverju. En frábært að fá þær í heimsókn. Takk fyrir okkur stelpur. Shaking Hands 

Ég skrapp heim í hádeginu og hitti þá á leiðinni fermingarbarnið sem við vorum að fara í veisluna til seinni partinn.

P5100001

Athöfnin í kirkjunni var búin að hún beið eftir veislunni. May Day 

Eftir fundinn hittumst við Akrueyrarmeyjar og réðum ráðum okkar.

Veislan var auðvitað frábær, eins og við var að búast.

Komum heim eftir kvöldmat og þá var lítið annað en sjónvarpsgláp, Recliner 

 allavega hjá hluta af fjölskyldunni. Ég er að upplifa það oftar og oftar nú seinni partinn í vetur að gaurinn situr við bíóáhorf á laugardagskvöldum. Ekki gerst áður. En þetta fylgir því víst að eldast. Í gærkveldi var það Herbie. Voru ekki liðnar margar mínútur af myndinn þegar ég var farin að heyra hlátur. Segiði svo að það sé ekkert gaman að Rúv.

Mikið var yndislegt að geta sofið út i morgun. Sleeping  Gaurinn var vaknaður um áttaleytið og ég var nú fljót að leyfa honum að fara í tölvuna. (stundum eru þær til góðs .   Computer 

 Sofnaði sjálf aftur og vaknaði svo upp við gemsann.  On The Phone Svaraði og fékk:  Hver er þetta? Nei blessaður ...... Fékk sms stuttu seinna: Sorry ..... Var að fikta í símanum. Næs takk fyrir að vekja mig. Bubbles

En allt í góðu, var kominn tími á að fara á fætur.

Við , ég og unglingurinn fórum í þvottadeildina.  Ironing 

Nú er byrjað að skoða hvað á að nota á Tenerife og hvað ekki. Þær systur eiga að passa að setja ekki neina leiðinlega bletti í neitt sem á að fara með út. Annars bíð ég eftir því sem ég keypti á kynningunni í síðustu viku. Á víst að vera algjört galdratæki í sambandi við leiðinlegu fitublettina sem ég er stundum í svo miklum vanræðum með að ég hef hent flíkum sem ég gefst upp á.

Skruppum á rúntinn um hádegið. Ætluðum að skoða hvað væri opið og hvort eitthvað spennandi væri að sjá. Enduðum inni í Jólahúsi. Wreath 

 Notaði tækifærið að kaupa tvo jólasveina. Ég nenni ekki að kaupa bara einn á ári og svo loksins eftir tíu ár  og ég er komin með alla sveinana, þá eru börnin farin að heiman, allavega þau fyrstu.

Við vorum komin með hjónakornin og köttinn og nú var fjárfest í tveim fyrstu sveinunum.

Svo er það önnur fermingarveisla í dag. Og þá eru þær nú búnar þetta árið.

Gaman að sjá hvernig kemur út að setja svona marga kalla. Bara að prófa.

Hafið það gott í dag.






« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga skjol

Helga skjol, 11.5.2008 kl. 22:52

2 Smámynd: Anna Margrét Bragadóttir

Anna Guðný það er stundum hægt að ná fitublettum með rúðuúða setja smá í blettinn og þvo svo,,það er líka hægt að nota uppþvottlög þennan sem er fitulosandi,,svo er hægt að labba inn í næstu efnalaug og biðja þá að skjóta aðeins á blettin og fara heim að þvo og allt farið.

Það þarf alls ekki að henda flík sem kemur fitublettur í,,smá þvottaupplýsingar

Knús til Akureyrar

Anna Margrét Bragadóttir, 12.5.2008 kl. 01:21

3 Smámynd: Linda litla

Til hamingju með mæðradaginn (sem er reyndar búinn núna, ég er alltaf svo sein að öllu)

Ég er líka búin með fermingarnar þetta árið, sem betur fer. Þvílíku útgjöldin í þetta. Held sem betur fer að það sé bara ein veisla á næst ári jibbí.....

Góða nótt og dreymi þig fallega.

Linda litla, 12.5.2008 kl. 02:19

4 Smámynd: Anna Guðný

Takk fyrir kveðjurnar stelpur minar.

Anna Margrét: Takk kærlega fyrir þetta. Erfitt að geta ekki sent þér kveðju á þinni síðu. Reyndi það er tíminn útrunninn.Ég verð örugglega orðin fitublettaséný eftir sumarið.

Linda: Já það er satt,mikil útgjöld. En það á bara eftir að aukast hjá mér, Er sjálf að fara að ferma í fyrsta skipti næsta ár.

Annars  You Rock 





Anna Guðný , 12.5.2008 kl. 21:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Guðný
Anna Guðný

Langar að æfa mig í að setja saman texta. Sé til hvað ég gef mér mikinn tíma í það.

Sjálfstæður Herbalife dreifingaraðili. www.heilsufrettir.is/anna

Þeir sem vilja hafa samband má benda á netfang sem er: ollana@simnet.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 201283

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Um bloggið

ollana

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband