Leita í fréttum mbl.is

Kominn 1. maí eitt árið enn.

Hvað þýðir það? Jú, kröfuganga í tilefni dagsins. Er þó löngu hætt að starfa sem verkamaður. Hef verið sjálfstæð í þó nokkur ár. En finnst alltaf viss sjarmi yfir því að mæta fyrir utan Alþýðuhúsið og ganga með fólkinu þennan spöl. Þekki marga, var mjög virk hér áður fyrr. Var trúnaðarmaður á fleiri en einum stað sem ég vann á. Var svo heppin að komast á mörg námskeið, bæði hérlendis og erlendis. Var t.d.  á Grænlandi í hálfan mánuð einu sinni. Upplifði helling þar sem ég á aldrei eftir að gleyma.

Það voru þrjú aukabörn í gistingu hér í nótt, Tvö í pössun og ein svona auka.

Prinsinn, 6.ára vinur okkar fær stundum að koma í heimsókn og gista.Og svo kemur hann líka annað slagið ef mamma þarf að fara á fund og svona. Hann á rosalega duglega mömmu sem fór í gærkveldi út með vinnufélögunum í keilu.Vona að henni hafi gengi vel. Hann var ekkert yfir sig ánægður með mig í gærkveldi. Hann kom nefninlega ekki fyrr en tölvutími barna var útrunninn hér á heimili. Og var ja við skulum segja ekki alveg sáttur. En hann borgaði mér það þrefalt til baka í morgun með að vera vaknaður kl. 06.20. Hallóóóó það er enn nótt. Og þvílíkt tilbúinn í tölvu. En sem betur fer náði ég að leggja mig aftur, og hálf dormaði svona. Gaurinn og valkirjan fóru hins vegar seint að sofa í gærkveldi og vöknuðu svo með prinsinum í morgun. Hmm... ætli verði nokkuð þreyttur seinni partur.

Er farin í kröfugöngu.

Eigiði góðan dag.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga skjol

Var einmitt vöknuð kl 5.30 hér í morgun og er að leka niður af þreytu nennti þar af leiðandi ekki í kröfugöngu.

Eigðu góðan dag Anna mín.

Helga skjol, 1.5.2008 kl. 14:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Guðný
Anna Guðný

Langar að æfa mig í að setja saman texta. Sé til hvað ég gef mér mikinn tíma í það.

Sjálfstæður Herbalife dreifingaraðili. www.heilsufrettir.is/anna

Þeir sem vilja hafa samband má benda á netfang sem er: ollana@simnet.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 201291

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Um bloggið

ollana

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband