18.1.2010 | 14:41
Góðir punktar þarna....
sem mér finnst alveg vantar þegar ég hlusta á þá sem finnst að við ættum að borga.
breskir og hollenskir innstæðueigendur völdu sjálfir að taka áhættu með því að leggja peninga sína inn á íslensku netreikningana. Þeir voru lokkaðir með loforð um háa vexti, en á móti kom að áhættan var einnig há og það hefðu þeir átt að gera sér grein fyrir.
Trúlega er þetta það sem ég er ósáttust með. Ég hef ekkert, ekki orð heyrt frá bresku eða hollensku stjórninni um að þeir innistæðueigendur hafi á neinn hátt borið ábyrgð þó svo að þeir hafi vitað að þetta væri áhætta. Held að þetta sé skoðun margra. Það hleypur í mann kergja og nautið í mér spyrnir við og vill þá ekki borga.
Ég held að það væri allt önnur almenn skoðun í landinu í dag vegna Ice save ef bretar og hollendingar hefðu strax tekið á sig hluta af ábyrðinnni í orði.
Hvað segið þið hin?
Norðmönnum ber að aðstoða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Febrúar 2014
- Desember 2013
- Apríl 2013
- Ágúst 2012
- Apríl 2012
- Júní 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
Tenglar
Herbalife
Vinnan mín og aðal áhugamálið.
Áhugaverð skrif.
Bloggarar sem ég vil eiga greiðan aðgang að.
Frændgarður
Familien bloggar
Lífið og tilveran
Local
- Bærinn
- Dagskráin
- N4 og Extra
- Sálarrannsóknarfélagið á Akureyri
- http://nordurland.is
- http://akureyri.net
- N4 Norðlenskar fréttir
Matur
- http://matseld.is Jens og maturinn
Persónuleg uppbygging
Vítamín fyrir heilann.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Um bloggið
ollana
Bloggvinir
- alberta
- amsa
- anitabjork
- annambragadottir
- arniarna
- atvinnulaus
- dagny65
- baldher
- bestalitla
- binnag
- daggardropinn
- drum
- duna54
- egillsv
- godinn
- gunnurr
- frost
- heidathord
- himmalingur
- hk
- ingabaldurs
- jakobk
- jeg
- jodua
- jokapje
- jonaa
- juljul
- kafteinninn
- krummasnill
- landsveit
- lauola
- ljosmyndarinn
- maggatrausta
- magnolie
- neytendatalsmadur
- mammann
- osland
- rannug
- ringarinn
- roslin
- sifjan
- 58
- snjokall
- strumpurinn
- tara
- topplistinn
- ziggi
- zeriaph
- vala
- vogin
- jona-maria
- kolbrunj
- gattin
- gledibankinn
- robertb
- bjarnijonsson
- ernadua
- curvychic
- gillimann
- minos
- hordurj
- naflaskodun
- joklamus
- vallyskulad
Athugasemdir
Jú alveg rétt hjá þér, þeir Bretar sem ég hef talað við segja þetta líka : þetta fólk var að taka áhættu og vissi það alveg!
Erna Evudóttir, 18.1.2010 kl. 14:52
Já einmitt. Á ekki von á að þú þekkir marga í bresku ríkisstjórninni svo ég geri ráð fyrir að þetta sé almenningur sem þú talar um. Svo hafa komið ýmsu fræðimenn og eitthvað svipað. Eru þá bara ríkisstjórnir landanna eftir?
Anna Guðný , 18.1.2010 kl. 15:26
Já, Trúlega mikið til í þessu. Viðhorfin væru önnur er bretar og hollendingar hefðu strax tekið á sig hluta af ábyrgðinni, ekki bara í orði, heldur líka í verki.
Í rauninni alveg stórmerkilegt að þessir bresku og hollensku Icesaveinnistæðueigendur skuli hafa haldið að hægt væri að treysta útibúum Íslenskra banka erlendis.
Það hefði kannski verið rétt mátulegt á þá ef ríkisstjórnir þeirra hefðu látið sig innistæðutap þeirra engu skipta.
Ég er samt fegin að þessi litla innistæða sem ég á í íslenska bankaútibúinu sem ég skipti við virðist vera tryggt enn sem komið er.
Agla, 18.1.2010 kl. 15:30
Kannski treystu þeir ekki endilega betur. Er það ekki gamla góða græðgin sem var að völdum þarna eins og á svo mörgum öðrum stöðum. Sé svo sem ekki mikinn mun á þeim eða pappírspésunum okkar , nema þá helst upphæðir.
Anna Guðný , 18.1.2010 kl. 15:47
Auðvitað var þetta fólk að taka áhættu með peningarna sína vitandi vits, í von um skjótfenginn gróða....
Jónína Dúadóttir, 18.1.2010 kl. 15:49
Það vill svo til að ég þekki nokkra Hollendinga sem settu pening inn á Icesavereikninga í Hollandi en það voru bara Íslandsvinir sem héldu sig vera að styðja útrás íslenskra fyrirtækja og höfðu líka heyrt að vextir á Íslandi væru almennt mikið hærri en þeir voru vanir í Hollandi svo þeim fannst þetta ekkert skrýtið, bara gott að fá háa vexti og versla við íslenskt fyrirtæki.
Þessir kunningjar mínir eru bara vanaleg fólk, sem lagði inn smáupphæðir, svo ég er fegin að þau fengu inneigninga greidda af hollenska ríkinu. Það er náttúrulega verra ef við, börn okkar og barnabörn þurfum að borga þetta allt til baka með vöxtum og vaxtavöxtum
Agla, 18.1.2010 kl. 16:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.