Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Líf og fjör.

Eins og ég sagði í færslu fyrr í vikunni, þá var heilmikið prógramm hjá mér í vikunni. Á þriðjudagsmorgun fórum við að hjálpa Guggu frænku og fjölskyldu við að flytja úr bænum.

P8120002

Kannast einhver við svona?

P8120005

Hér er Gugga sjálf og fleiri.

Svo seinni part dagsins skelltum við okkur út á Svalbarðsströnd. Þar komu saman hópur fólks sem hafði verið á sama hóteli á Tenerife í vor. Ég hafði nú rekist á flesta síðan þá en þó ekki alla.

P8120009

Það þurfti ekki teppi á Tenerife.Smile Heiða, Hreiðar og Harpa.

P8120021

Gaurinn og Neró í leik.

P8120028

Flott umhverfi.

P8120037

Alltaf gaman í pottinum.

P8120051

Tveir alveg búnir á því.

 

Á miðvikudagskvöldið var ég svo heppin að vera boðin í kvöldverð. Hér á landi eru í heimsókn fólk frá vesturheimi. Eini karlmaðurinn í  hópnum er sem sagt frændi minn, Hann Eric.

P8130062

Eric og Karin. Við Eric erum þannig skyld að langa- langafi minn, Jón Jónsson frá Mýri í Bárðardal flutti til Kanada með átta af níu börnum sínum. Dóttir hans, Áslaug, er amma Erics. Elsta dóttir Jóns, Aðalbjörg var gift og hafði hafið búskap á Mýri svo hún varð eftir. Það er langamma mín. Karin þessi er ættuð frá Borgarfirði.

P8130058

Hér kemur svo Joan. Mjög flott kona. Getur rakið ættir sínar til Helga magra. Hún starfar sem rithöfundur og sagnaþulur.

P8130064

Ég náði ekki nafninu á þessari en þær tvær síðast nefndu eiga ættir sínar að rekja hingað til Akureyrar.

Virkilega skemmtilegt kvöld. Mikið spjallað og mikið hlegið.

Í gær fimmtudag átti svo gaurinn minn afmæli. 10. ára. Til hamingju með daginn í gær kallinn minn. Valkirjan á afmæli seinna í mánuðinum, svo við slógum saman í eina veislu fyrir fjölskylduna. Fullt af gestum. Mikið borðað, mikið spjallað, mikið hlegið.

Krakkana langaði svo í flottar afmælistertur, svo leitað var til vinkonu í hverfinu sem er snillingur að baka. Og þetta er útkoman. Takk kærlega fyrir okkur Guðrún.

P8140066

Gaurinn valdi þessa.

P8140068

Þessa fékk valkirjan.

P8140072

Afmælisbörnin.

P8140075

Afmælissöngurinn tekinn.

P8140097

Líf og fjör í útileikjum.

 

P8140103

 

P8140122

Leikurinn berst yfir á næstu lóð. Af hverju? Jú, þau eiga stærra trampólín. Stína min, komu margir?

Alltaf líf og fjör í Ránargötunni.


Hjúkk, ég er búin.

Það er orðið svo flókið núna Devil Var einfalt ennþá meðan ég var að þessu.Smile Það er það búið að gera svo margar rannsóknir í sambandi við þetta að fólk er oðrið alveg ruglað.FootinMouth
mbl.is Hr. Rangur valinn vegna pillunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hmm... Gústi frændi??

Neee Ég á sem betur fer engan frænda sem kallaður er Gústi. En ég er sammála lögreglumanninum;  hann er frumlegur.
mbl.is Kvaðst vera klámeftirlitsmaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vissi þetta nú.

Er ein af þeim sem er í yfirvikt og það nokkuð mikið. Er samt ein af þessu 51% þar sem allar mælingar koma vel út. Svolítið fyndið að sjá þess grein eftir daginn í gær þar sem yfir bloggheim valtaði stór hópur snillinga og sérfræðinga, ja og sérstaklega dóna. Mikið held ég að þeim aðilum líði vel í dag eftir að hafa hellt úr viskubrunni sínum hér í gær. Mér líður vel, kannski vegna þess að ég tók þá ákvörðun að reyna ekki að rökræða. Það er eitt af því fyrsta sem maður lærir hér á blogginu. Rökræða ekki við sjálfskipaða sérfræðinga.
mbl.is Helmingur feitra hefur hraust hjarta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fiskidagurinn mikli á Dalvík, myndir.

Er búin að setja myndirnar inn og var svo að klára að merkja þær.

Svo þarna í restina eru þrjár myndir frá Handverkssýningunni að Hrafnagili. Fyrir ykkur sem skoðuðuð myndaalbúmið frá Verslunarmannhelginni á Akureyri og sáuð þar mynd af glæsilegri konu í glæsilegum kjól. Jú, það er Beate sem er að vinna við eldsmíðina á sýningunni. Fjölhæf kona. Ég sá þennan hníf sem hún gerði og hann var flottur.

Sæl að sinni.


Nóg að gera!

Ætla að setja inn myndir frá helginni. Auðvitað frá fiskideginum mikla og svo skruppum við á Handverkssýninguna að Hrafnagili í dag. Set það bara í sér albúm. Ég er búin að skemmta mér alveg ótrulega vel þessa helgi. Eins og sést á myndunum vorum við með Adda í sölubás á Dalvík. Hann og moster Inga  byrjuðu með svona bás á fyrsta fiskidaginn sem var haldinn og sagði Inga mér að þvílík breyting hefði orðið á þessum árum. Stemmningin í ár var svona lige glad. Lítið um spennu. Og tilfellið er að ég fann þessa sömu tilfinningu á Einni með öllu á Akureyri um síðustu helgi. Það var bara gaman.

Svo er heilmikil dagskrá út vikuna. Mánudagsvaktin mín byrjar í fyrramálið. Frú formaður hringdi í mig áðan , sem var eins gott því ég var enn í sumarfríi og áttaði mig ekkert á að vetrarverkin færu að byrja. Svo er það grillveisla á þriðjudaginn, matarboð á miðvikudag, fjölskylduafmælisboð á fimmtudag og svo fer eiginmaðurinn að fara á sjóinn upp úr því. Mikið hefur nú verið gott að hafa hann svona lengi heima. Ég held að hann hafi aldrei síðan við kynntumst eytt svona löngum tíma með fjölskyldunni, fyrst í þrjár vikur í vor og svo núna í mánuð. Og við erum ekkert á leiðinni að skilja þannig að við gætum bara trúlega vanist því ef hann kæmi nú einhverntímann í land.Smile 

Önnur haustverk eru að byrja þessa dagana og það er að koma börnunum í rúmið á eðlilegum tíma. Ég nenni ekki að reyna það fyrr en eftir fiskidag.

En hafiði það gott í vikunni sem er að koma. Það ætla ég að gera.


Bannað innan 18.

Sá frétt í gær um ilmvatnsauglýsingu frá Calvin Klein, þar sem sýnilegt brjóst varð til þess að myndbandið er bannað í Bandaríkjunum. Auðvitað mátti ég til með að kíkja á það. Þurfti  að samþykkja að ég væri orðin 18. en komst samt ekki inn á bandið fyrr en í morgun. Þeir hafa sem ætlað að varann á að ég færi ekki þarna í einhverri fljótfærni, heldur hugsaði mig vel um áður en ég tæki svona áhrifaríka ákvörðun.

Dæmi nú hver fyrir sig.


Allar leiðir liggja til Dalvík city

Í annað skiptið í röð sem ég þarf að vísa í frétt DV. Hvar er Mogga blaðamaður á Norðurlandi?

  

Stöðugur straumur liggur til Dalvíkur

mynd

Stöðugur straumur ferðafólks hefur legið til Dalvíkur síðan á miðvikudag, í aðdraganda Fiskidagsins mikla, sem verður um helgina. Í gær hafði íbúatalan að minnstakosti tvöfaldast og búist er við miklum fjölda í dag. Dagskráin hefst síðdegis og stendur fram á sunnudag. Gestir tjalda um allt, meðal annars inni á lóðum, og leggja hjólhýsum og tjaldvögnum víða á götum bæjarins. Að sögn lögreglu fór allt vel fram í gærkvöldi og nótt.



Fyrir svefninn!

Sá þetta á síðunni hjá henni Brynju, bloggvionkonu minni.

Hver man ekki eftir þessum?

http://www.sol.no/spill/kronespill/

Góða skemmtun


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Anna Guðný
Anna Guðný

Langar að æfa mig í að setja saman texta. Sé til hvað ég gef mér mikinn tíma í það.

Sjálfstæður Herbalife dreifingaraðili. www.heilsufrettir.is/anna

Þeir sem vilja hafa samband má benda á netfang sem er: ollana@simnet.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Um bloggið

ollana

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband