Færsluflokkur: Bloggar
13.9.2008 | 14:30
Foreldrarnir.
![]() |
Reyndist ekki vera ítalska stúlkan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
12.9.2008 | 18:30
Klukkuð aftur.
Nú var hún Jóna María frænka mín klukkaði mig
4 störf.
KEA þegar það var og hét, í nokkrum verslunum á Akureyri
Í fiski hér og þar, t.d. á Seyðisfirði, Tálknafirði, Ólafsvík og svo Akureyri
Í Sveinbjarnargerði, þar sem nú er hótel en áður var kjúklingabú.
4 bíómyndir
Mamma Mia
Dirty Dancing
Shall we dance
The Notebook
4 staðir sem ég hef búið á
Akureyri
Reykjavík
Svíþjóð
4 sjónvarpsþættir
C:S:I
Missing
Medium
4 staðir í fríum
Tenerife
Grikkland
Ungverjaland
Frakkland
4 netsíður
heilsufrettir.is/anna
facebook.com
mbl.is
akureyri.is
fernt matarkyns
Lambasteikin mín
Kjúklingabringur
nautasteik
Steiktur fiskur
4 óskastaðir akkúrat núna
Líður fínt heima, en er á leið til Berlínar fljótlega
4 sem ég klukka
Ragga
Ljósmyndarinn
Rolf
Ziggi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.9.2008 | 09:05
Einn villtist af leið!
Ég sá einn svona á Glerárgötunni áðan á göngu. Spurnig hvort hann hafi farið upp í vitlausa vél eða farið á vitlausan flugvöll. Nei, en fannst samt gaman að sjá hann á göngu hér á Akureyri kl. 8. að morgni í kilt og öllu.
![]() |
Skotarnir drukku stíft á börunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
11.9.2008 | 19:53
Missi alltaf af þeim!
![]() |
Upplýsingaskilti um andarnefjur við Pollinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
9.9.2008 | 00:52
Að láta drauma sína rætast.
Eins og fram kom í færslu hér á undan, þá var hausthátíð í skólanum okkar hér í hverfinu um helgina. Ég hef líka sagt áður að okkar skóli er sá skóli á Akureyri sem er með nýbúadeildina. Þetta þýðir að börn þeirra aðila sem koma hingað tímabundið fara í skóla hér. Ég var að labba um svæðið og er þá kallað í mig til að biðja mig um að útskýra eitthvað á ensku. Hvernig segir maður ratleikur á ensku? Veit ekki ég en útskýringar mínar á því hvernig ratleikur fer fram varð til þess að ég bauð þeim mæðgum ferð í berjamó á sunnudag.
Unglingarnir í Ástralíu eru ekkert öðruvísi en á Íslandi. Önnur systirin, sú sem borðar ekki einu sinni bláber, nennti ekki með og vildi heldur vera heima á msn eða eitthvað.
Þetta er sem sagt kona með tvær dætur sem tók sig upp upp og ferðaðist alla leið til Íslands til að fara í háskóla. Hún ætlar að vera eina önn. Hún gat valið um hvort hún yrði á Akureyri eða í Reykjavík. Valdi Akureyri út af því að hún átti von á að hún myndi frekar kynnast fólki hér og eins yrði það auðveldara fyrir stelpurnar af sömu ástæðu. Með fullri virðingu fyrir stór Garðabæjarsvæðinu, þá er hæpið að hún hefi hitt á manneskju sem hefði boðið henni með á rúntinn.
Við týndum ber í Hrísmóunum nálægt Dalvík í einhverja tvo tíma
Séð til Dalvíkur.
Hér sitja þau í berjamónum. Gaurinn, unglingurinn,Marika, Mirei, valkirjan og Silke.
Hún var svo undrandi, Silke, þegar ég sagði að krækiberin væru mitt uppáhald. Henni fannst þau svo súr að hún gat ekki borðað þau.
Lyklaborðið mitt gafst upp á þessum stað í gærkveldi. Sem betur fer kom eiginmaðurinn heim í nótt og gat ráðlagt mér. Hvernig ætti að láta punginn(kallaður þetta út á sjó) snúa. Er með þráðlaust lyklaborð.
Þetta með útlendingana og mig. Ég virðist laðast að þeim.Hefur verið síðan ég var 15.ára og var að vinna með allra þjóða kvikyndum. Það hefur aldrei dugað mér að umgangast bara landann. En það sem mér fannst skemmtilegast núna var hvað krakkarnir voru dugleg að tjá sig. Unglingurinn talar orðið reiprennandi daglega ensku. Gaurinn skilur helling og getur tjáð sig eitthvað og valkirjan er byrjuð líka.
Eftir að hafa týnt berin skelltum við okkur til Dalvíkur , þar sem sólveig og Frikki höfðu boðið upp á kaffi og kleinur. Kleinurnar fannst þeim alveg sælgæti og pantaði Silke að vera með næst þegar við ætluðum að baka.
Nú er gott að eiga strumpastrætó.Kem sjö strumpum með.
Hvað ertu að gera?
Lambasteikin beið okkar í pottinum þegar heim kom. Smakkaðist vel nammi namm.
Hafið það gott í dag.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
7.9.2008 | 12:04
Búin að fá leyfi.
Skrýtið. Venjulega er málið að allir eru búnir að fá, ja svona næstum því, nóg mér með myndavélina þegar ég kem á mannamót, en það var ekki tilfellið í gær á blogghittingnum. Ég hafði svo mikið að gera, bara að hlusta. Talaði auðvitað ekki mikið, geri það venjulega ekki ekki. Það vitið þið sem þekkið mig
´
Hér sitja þau Gísli og Milla komin frá Húsavík.
Hún Dóra Birgis á Laugum gat ekki komið og sendi okkur því tvöfalda sendingu með mömmu.
Englarnir hennar Millu.
Ég hefði getað sett inn mynd, þar sem Huld var með opin augu og þar sem Halli var ekki akkúrat að stinga upp í sig tertubita en...... sjáið til, þá væri enginn Doddi á myndinni. Það væri auðvitað stórslys. Þannig að þarna situr Doddi dúlludóni, eða var það dónadúlla? Man það ekki alveg en það var virkilega gaman að fá hann.
Hér koma svo hjónakornin, aðeins upplýst en hvað er það á milli vina.
Tók enga mynd af Ásgerði, hún var örugglega of nálægt mér. En fékk mynd af henni hjá Huld og hér kemur hún. Takk fyrir að redda mér Huld.
Hér er Ásgerður frá Ólafsfirði. Lítill heimur alltaf. Hún þekkir eiginmanninn úr hans fyrra lífi.
Þá er þetta komið. Lyklaborðið er enn í fýlu.
Hafið það gott
Bloggar | Breytt 8.9.2008 kl. 12:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
6.9.2008 | 23:26
Laugardagur til lukku.
Það er svo partýstandið á þessu heimili að það er farið að standa frá morgni til kvölds. Fæ þó að hvíla mig á nóttunni.
Dagurinn í dag byrjaði á Haustfagnaði eyrarpúka. Skólinn okkar hefur staðið fyrir þessari hátíð í mörg ár en hverfisnefndin hefur komið inn í dæmið síðustu ár. 10. bekkur sér um hátíðina með aðstoð foreldrafélagsins og 1. bekkur er sérstaklega boðinn velkominn.
Byrjað er að fara í skrúðgöngu í hverfinu. Göngustjórar voru að þessu sinni Arnrún og Sessa. Þær stóðu sig að sjálfsögðu með prýði, báðar tvær. Ekki við öðru að búast.
Eftir gönguna er safnast saman og farið í leiki. Bekkirnir skora á hvern annan eða kennara í reipitog, fótbolta og eggjakast, svo eitthvað sé nefnt. 2 hestar voru á svæðinu, þar sem hægt var að prófa snilli sína í reiðmennsku.
Síðan var boðið upp á grillaðar pylsur ( með ypsiloni), (ekkert rauðkál) og drykk. Ég sá ekki betur en að allir hafi skemmt sér vel, eins og raunar myndirnar sýna. Kannski finnst einhverjum sumar myndirnar vera nánast eins, en svo er ekki. Set svona margar inn svo meiri líkur séu á því að sem flest börnin sjá sjálfa/nn sig.
Njótiði vel.
Seinnipartinn var svo komið að blogghittingnum. Við hittumst á Kaffi Karolínu. Aldeilis frábær staður til að hittast á. Fengum að vera uppi í ró og næði. Ekki það að við höfum verið að ræða eitthvað leyndó, en bara það að vera laus við hvissið úr kaffivélunum er meiriháttar fyrir mig.
Ég gleymdi mér aðeins við myndatökuna. Tók fáar myndir þær tókust ekki nógu vel. Þarf eiginlega að fá leyfi fyrir þeim fyrst.
Mikið var þetta samt gaman og mikið var hlegið, við leystum landsmálið, allavega svona flest. Slúðruðum pínu, það var ekki mikið. Fengum okkur gott kaffi og góðar kökur. Sem sagt, frábært.
Bloggar | Breytt 7.9.2008 kl. 00:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
6.9.2008 | 21:56
Sumarið búið??
Já ætli það ekki. Enda allt í góðu með það. Það kemur sumar eftir þetta sumar.
Eins og kom fram hjá mér um daginn þá á ég tvö ágústbörn. Í gær tókum við okkur til, tvær mömmur í bekk valkirjunnar og héldum afmælisveislu í Kjarnaskógi. Vorum búnar að fylgjast með veðurspá og hún var frábær. Og það sem meira er, hún gekk eftir.
Sjáiði bara hvað það er flott aðstaða.
Setið og etið.
Flottar afmælisstelpur.
Ok mig langar í svona.
Mikið gaman hvað foreldrar voru duglegir að koma með börnunum og sátu jafnvel allann tímann.
Enda er það svolítið sérstakt með þennan bekk hvað foreldrar þekkjast mikið. Flest börnin búin að vera saman síðan í leikskóla og ég held að þeim nýju hafi gengið vel að aðlagast hópnum. Kynjamisrétti í gangi að vísu, bara einn strákur.
Sáum ótrúlega sjón þegar við vorum að leggja af stað heim aftur.
Hvað haldiði að hafi setið upp í tré, ef ekki....
Hæna!!!! Hallóóó, hvað er hæna að gera í Kjarnaskógi?
Væri gaman að heyra skýringuna á því.
Takk fyrir komuna börn og foreldrar.
Bloggar | Breytt 7.9.2008 kl. 00:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.9.2008 | 22:36
Síðustu vikur.
Ég er að upplifa svipað og á sama tíma á síðasta ári. Svo margt sem þarf að gera að mér dugar ekki sólarhringurinn til þess. Haustverkin að byrja. Mæta á þennan fund þarna og annan fund annar staðar. Eins gott að ég á ekki fleiri börn.
Aðeins búin að kíkja í berjamó. Í fyrsta skiptið sem ég fer bara hér vestan meginn í firðinum en ekki austan. Fór í Glerárdalinn og fékk leiðsögn svona í fyrsta skiptið. Enda veit ég alls ekki hvar ég hefði endað annars.
Fór svo seinna í Krossanesborgir og það var líka í fyrsta skiptið sem ég fór þangað.
Valkirjan duglega með fötuna sína.
Þegar mætt var í skólann um daginn þurfti ég að sitja allar skólasetningarnar því ég er að byrja þetta árið með börn á öllum deildum og verð það næstu þrjú árin, eða þar til unglingurinn úrskrifast.
Komin í 2.bekk. Stundarskráin skoðuð.
5.bekkingar á tali.
Unglingurinn komin á unglingastigið.
Yndislegt veður dag eftir dag.
Stutt í allt, meira að segja leggja stóru skemmtiferðaskipin rétt við húsið mitt.
Svona er rifsberjarunninn minn flottur.
Nú er ég mætt á Akureyrarvöku. Fór í bæinn fljótlega upp úr hádeginu, gekk um svæðið og skoðaði hvað væri í boði fyrir gesti og gangandi.
Það er í fyrsta skipti sem ég sé svona líf í þessu porti.
Var rétt að byrja þegar ég kom.
Markaðsstemmning á torginu.
Áslaug var auðvitað mætt á svæðið til að skemmta sér.
Andinn nærður.
Siggi kapteinn.
Haldiði að ég hafi ekki mætt Unni Maríu bloggvinkonu minni á göngu með strákana sína.
Svo kannast ég eitthvað við þessar.
Það var margt í boði í bænum þennan dag og í Amaro húsinu var t.d. Sunna spákona að störfum.
Wally trúður að störfum. Hann er sko með húmör að mínu skapi.
Hér sést að fylgst er með af áhuga.
Hér eru dömurnar komnar á tískusýningu í miðbænum. Tónlistin sem spiluð var með var af Mamma Mia diskinum, svo þær stóðu kyrrar mikið spenntar allann tímann.
Einn og einn að fylgjast með.
Stelpurnar í Amaro húsinu í pásu.
Hér er hún Jóhanna Vala safnstjóri Ástarsafnsins á Akureyri að lesa yfir okkur. Náði ekki betri mynd af henni. Hún er nú óvenju hátt uppi þarna.
Þegar við gengum í bæinn aftur mætti þessi sjón okkur.
Rosalega flott, en jesús minn, er þeim ekki kalt?
Rómó.is
Eins og þið hafið kannski fylgst með í fréttum , þá hafa tvær andanefjur svamlað um hér á pollinum í nokkrar vikur. Á sunnudagskvöldinu gerðum við tilraun til að kíkja á þær. Nenntum þó ekki að bíða lengi, heldur skelltum okkur yfir fjörðinn. Lögðum þar á túrhestabílastæði og gengum niður í átt að sjólbúðunum. Hefði verið gaman að fara niður í fjöru en veit ekki hvort sé fært. Smellti þessari af þeim þar.
Berglind, gaurinn og valkirkjan.
Séð yfir til Akureyrar.
:etta er að verða gott í bili.
Hafið það gott um helgina. Það ætla ég að gera.
Sjáumst á bloggkaffi á Akureyri á morgun, þið sem getið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
4.9.2008 | 01:08
Var fjör í þínu brúðkaupi?
Sá þetta myndband á síðunni hjá Brynju vinkonu minni. Algjör snilld. Hvar er næsta brúðkaup?
Skemmtiði ykkur vel.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Eldri færslur
- Febrúar 2014
- Desember 2013
- Apríl 2013
- Ágúst 2012
- Apríl 2012
- Júní 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
Tenglar
Herbalife
Vinnan mín og aðal áhugamálið.
Áhugaverð skrif.
Bloggarar sem ég vil eiga greiðan aðgang að.
Frændgarður
Familien bloggar
Lífið og tilveran
Local
- Bærinn
- Dagskráin
- N4 og Extra
- Sálarrannsóknarfélagið á Akureyri
- http://nordurland.is
- http://akureyri.net
- N4 Norðlenskar fréttir
Matur
- http://matseld.is Jens og maturinn
Persónuleg uppbygging
Vítamín fyrir heilann.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Um bloggið
ollana
Bloggvinir
-
alberta
-
amsa
-
anitabjork
-
annambragadottir
-
arniarna
-
atvinnulaus
-
dagny65
-
baldher
-
bestalitla
-
binnag
-
daggardropinn
-
drum
-
duna54
-
egillsv
-
godinn
-
gunnurr
-
frost
-
heidathord
-
himmalingur
-
hk
-
ingabaldurs
-
jakobk
-
jeg
-
jodua
-
jokapje
-
jonaa
-
juljul
-
kafteinninn
-
krummasnill
-
landsveit
-
lauola
-
ljosmyndarinn
-
maggatrausta
-
magnolie
-
neytendatalsmadur
-
mammann
-
osland
-
rannug
-
ringarinn
-
roslin
-
sifjan
-
58
-
snjokall
-
strumpurinn
-
tara
-
topplistinn
-
ziggi
-
zeriaph
-
vala
-
vogin
-
jona-maria
-
kolbrunj
-
gattin
-
gledibankinn
-
robertb
-
bjarnijonsson
-
ernadua
-
curvychic
-
gillimann
-
minos
-
hordurj
-
naflaskodun
-
joklamus
-
vallyskulad