Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Sanngjörn lög vs. ósanngjörn lög.

Ég ætla rétt að vona að flestir sem kaupa sér íbúðir í dag viti að það sé sameign í raðhúsum. Það er örugglega ekki mælst til að einn íbúi taki sig til og máli sinn part í allt öðrum lit en hinir. Eða, eins og í þessu tilfelli skipt um þak.Herbert hlýtur að hafa vitað það þegar hann flutti inn. Ég persónulega myndi alltaf hugsa mig tvisvar um áður en ég flytti inn í raðhús þar sem enginn hússjóður væri fyrir. Það kallar bara á vesen. Það þýðir að ekki er tekið á málunum fyrirfram og safnað fyrir, heldur , eins og í þessu tilfelli, kemur ægilegur skellur þegar þarf að gera eitthvað stórt. Herbert vissi þetta alveg þegar hann flutti inn. Hann lét skipta um þak hjá sér án þess að gera þá einhvern samning við aðra íbúa. Það er ekki hægt að dæma í dómsmálum eftir sanngirni. Það verður að fara eftir lögum.

Svo er stóra spurningin, eru lögin sanngjörn?

Annars er ég bara góðSmile


mbl.is Neitar að borga þak nágrannans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Styttist í Berlín.

Úff dagarnir fljúga áfram. Við erum að fara til Berlínar á föstudag og það kominn miðvikudagur. Er rétt að ná mér niður eftir Reykjavíkurferðina. En mikið var ofboðslega gaman. Það er örugglega orðið meira en ár síðan ég hef farið á skóla og þvílíkar móttökur. Það var bara eins og týndi sonurinn væri mættur á svæðið.Á  föstudagskvöldinu hittist stóra grúbban mín. Á laugardeginum dreifingaraðilar af öllu landinu. Svo rúsínan í pysluendanum var sunnudagurinn. Hugsa sér, 1000 manna ráðstefna í Háskólabíói og bara auglýst maður á mann. Þeir sem vilja vita meira um hvað ég var að gera hafa bara samband.

Eins og fram hefur komið fór unglingurinn með mér. Held að hún hafi haft það mjög gott hjá frænku fram á laugardag. Þá fórum við saman í Kringluna  og náðum að eyða smá pening. Ótrúlegt hvað maður lendir oft í veseni með fatastærðir. Ég fer í tvær verslanir í Kringlunni. Kaupi á báðum stöðum föt á valkirjuna. Flottan jogginggalla með hettupeysu í annarri og fóðraðar buxur og bol með ermum á í hinni. Hún er nýorðin sjö ára, alveg meðal á stærð svo ég tók stærð 7 ára. Svo er mátað hér heima og jogginggallinn er passlegur, meira að segja aðeins of stór, svo hann dugar vel. En hitt var of lítið. Það þýðir að ég þarf að senda fötin aftur suður og aftur heim og borga auðvitað báðar leiðir. Eitthvað á bilinu 1500-2000 í það heila. Hundfúlt. En af því að ég er að fara út ætla ég að taka sjensinn á því að allt verði í lagi með flug og svona og við verðum komin í tæka tíð og ég reddi einhverjum til að keyra mig og skipta þessu áður en brennt er af stað á Keflavík Airport.

 Ég þarf minn tíma þar eins og venjulega. Það skiptir engu máli hvað mikið eða hvort yfirleitt ég kaupi eitthvað, ég er algjör flugvallamanneskja og finnst æðislegt að hafa svona þrjá tíma til að fá mér kaffi, horfa á fólkið og anda að mér ferðarykinuSmile En þetta gildir bara ef ég veit fyrirfram hversu lengi ég bíð og það riðlist ekki. Ég þoli ekki seinkun á flugi frekar en aðrir. Annars er vinkona mín sem hefur eytt 19 klukkutímum mataralus á Kastrup bíðandi eftir fulltrúum frá Iceland Express að koma og útskýra hvað væri í gangi. Hún segir mér að hafa nóg af mat og vera undirbúin fyirr 2. daga seinkun. Annars eftir að hafa fylgst með fréttum síðustu daga og vikna, þá erum við nú heppin, ef við komumst yfirleitt heim.

Gef mér ekki tíma í meiri skriftir í bili.

Hafið það gott öll.

 


21 röfmögn!

Mikið gaman á þessu heimili að fylgjast með íslenskukennslu. Valkirjan var að vinna heimavinnuna sína í dag. Hún átti að finna ýmislegt á heimilinu sem til væri fleiri en tuttugu stykki af.

Hún fann 24 kerti inni í skáp. Svo horfi ég á hana telja og telja. Hún fer fram á hol , inn í eldhús, inn á bað , inn í svefnherbergin og alltaf hækkar talan. Svo kemur hún inn í stofu til mín og segir: Mamma, það eru 21 röfmögn!!! Hm.... hvað skyldi það nú vera? Eitthvað í sambandi við rafmagn, en það eru ekki svona mörg ljós á heimilinu. Ekki heldur slökkvarar. Komst svo að því að röfmögn var í hennar huga samnefnari yfir allt sem tengist rafmagni.

 


mbl.is Treysta þarf sess íslenskunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Legg land undir fót.

Einmitt, fer í dag suður um heiðar á vit hins ókunnuga, þ.e. borg óttans. Wink Þó nokkuð púsl að koma öllu heim og saman. Börnin fara á þrjá staði. Valkirjan fer í nágrennið,ætlar að vera hjá vinkonu sinni og bekkjarsystur. Verður samt hérna með annan fótinn.Gaurinn fer til frænda í Kjalarsíðunni. Ég kem ekki heim fyrr en seint á sunnudagskvöld. Stóri frændi mun taka á móti þeim hérna eftir kvöldmat og koma þeim í rúmið. Unglingurinn fer með mér.Er það í fyrsta skipti sem hún fer ein með mömmu í svona ferð. Mikið spennt.  Hún verður hjá frænku í Hafnarfirði fyrri nóttina en kemur svo til min í Æsufellið seinni.

 Ég ætla að reyna að fá sem mest út úr helginni. Kemst vonandi í supervisorskóla í kvöld, en allavega er það sts á morgun á Grand og svo ráðstefnan í Háskólabíói á sunnudag. Það verður uppllifun maður. Ef einhvern vantar miða þá þá á ég 2 eftir. Annars er víst uppselt.  Langt síðan ég hef farið á skóla, meira en ár held ég. Verður mikið gaman að hitta alla og soga að sér jákvæðnina og allar upplýsingarnar. Kem heim með fullan tank.

 Ég og unglingurinn höfum nokkra klukkutíma á sunnudagsmorgun til að gera eitthvað saman. Meiningin er að athuga hvort við getum mögulega eytt nokkrum krónum. Mér skilst að  Kringlan opni ekki fyrr en 13.00 svo við höfum kannski klukkutíma. Það ætti að duga. Við erum nú sjálfum okkur nóg í flestu hérna á Akureyri en ég er þó stundum í vandræðum með föt á börnin, sérstaklega þau yngri. Ég sé alltaf þegar ég labba inn í Hagkaup í Kringlunni eða Smáralind, hvaða búðir fyrirtækið leggur áherslu á. Hjá okkur er það þannig að ef eitthvað klárast, t.d. í númeri, þykir ekki svo mikil ástæða að send aðra sendingu. Allavega í barnafatnaði.

Veit  ekki hvernær við komumst af stað í dag, vonandi sem fyrst eftir hádegi. Förum ekki sjálfar á bíl, heldur fáum far með vinafólki. Ég er ekki að höndla að keyra sjálf. Ég verð syfjuð, bara af tilhugsunni að keyra svona langt. Er alltaf að bíða eftir því að þetta eldist af mér. Gengur illa, enda yngist ég bara.Wink

Eigiði góða helgi öllsömul


Viku of sein!!

Sá þessa frétt á vísi.is.

Er einmitt að fara til Berlínar um næstu helgi. Hvað ætli einn svona kosti í yfirvikt???

  

Steypa á uppboði

mynd

Fjórir steinsteypuklumpar úr Berlínarmúrnum verða boðnir upp á föstudaginn í Berlín.

Þetta þykja mikil tíðindi því ekki er mikið eftir af and-fasíska verndarveggnum, eins og múrinn var kallaður af ráðamönnum í Austur-Þýskalandi á sínum tíma.

Hver Klumpur er um 3 tonn en búist er við að hver og einn fari á allt að 3000 evrur.

Meirihluti múrsins var muldur í smátt fyrir gatnagerð eftir sameiningu austurs og vesturs og heillegir klumpar því sjaldséðir. Þeir þykja afar eftirsóttir af söfnurum



No roomservice!!!

Ég veit ekki með ykkur, en ég fékk ulluna við að hlusta á þetta viðtal við meintan"flóttamann". Mér fannst hann tala meira eins og hann væri að koma hérna sem einhvernskonar skiptinemi. Og nú vill hann jafnvel bara fara eitthvað annað. T.d. til Noregs eða í skóla. Eða var það til Noregs í skóla? Hefði ekki orðið hisa þó hann hefði neitað sð sofa þarna og vilji fá hótelherbergi á meðan "skúringakéllingarnar" þrifu húsnæðið.

Annars fer ég bara góð inn í daginn.


mbl.is Hælisleitandi kostar 6500 á dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef það er svona hjá mér, hvernig er það þá utan?

Meira að segja voru læti hjá mér í nótt. Ég sem bý á mest verndaðasta veðursvæði ever. Gaurinn kom inn til min um fjögurleytið í knótt. Gat ekki sofið lengur og fékk því að fara og horfa á sjónvarp. Valkirjan vöknuð áður en klukkan hringdi. Ég var að vakna af og til í alla nótt. Þetta hefur ekki gerst áður síðan ég flutti hingað. Það meira að segja fauk tré hérna við hliðina og svo sá ég eitt trampolín og klessu og frétti af öðru.Fyrstu árin hérna gat ég hengt út á snúru allan veturinn og treyst því að þvotturinn væri enn að morgni. En ekki síðustu 2-3 ár. Síðan þá hafa komið ein og ein nótt þar sem allt hefur veirð kolvitlaust. Það var á svoleiðis nóttu sem fíni blaðaburðarvagninn okkar hvarf í fyrra. Eiginmaðurinn fór á sjóinn í gærkveldi frá Dalvík. Hafa trúlega legið í vari í nótt. Gæti trúað að erfitt hafi verið að halda sér í koju.

Það er að lægja núna, svo þetta erbúið í bili.


mbl.is Virðist vera að lygna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hjálpum Gísla Sverrissyni og fjölskyldu hans.

Birti þessa hjálparbeiðni sem ég afritaði hennar af síðunni hennar Millu minnar á Húsavík.

 

Gísli Sverrisson er formaður Þríþrautarfélags Norðurlands, sem hefur staðið fyrir þríþraut á Laugum og víðar um Norðurland undanfarin ár. 

"Gísli Sverrisson féll af hjóli sínu 2. september síðastliðinn þar sem hann var við æfingar ásamt félögum í hjólahóp frá líkamsræktar- stöðinni Bjargi á Akureyri.  Við fallið hlaut Gísli hryggbrot og alvarlegan mænuskaða.  Afleiðingar slyssins eru þær að hann er lamaður fyrir neðan brjóstkassa.

Gísla bíður löng sjúkrahúslega og endurhæfing.  Þetta er mikil áfall fyrir hann, konu hans og fjögur börn og mikilvægt að fjárhagslegar áhyggjur bætist ekki ofan á það sem fyrir er.  Fyrir liggja ferðalög fyrir fjölskyldu hans til að styðja við hann í Reykjavík þar sem hann liggur á sjúkrahúsi, auk kostnaðar sem fylgir því að laga sig að breyttum aðstæðum.

Vinir og kunningjar Gísla hafa ákveðið að leggja honum og fjölskyldu hans lið með fjársöfnun.  Í kringum söfnunina verður skíðastaðasprettur þann 20. september n.k.  Nánari upplýsingar um sprettinn eru á www.bjarg.is

Það er einlæg ósk og trú aðstandenda að sem flestir geti lagt Gísla lið með fjárframlagi.  Þú ræður upphæðinni.  Það eina sem þú þarft að gera er að millifæra á söfnunarreikning fyrir Gísla. Reikningurinn er skráður á nafn og kennitölu Gísla.

Reikningsnúmerið er: 0565-14-400216

Gísli Sverrisson: kt. 180561-7069

Aðstandendur og fjölskylda Gísla þakka þér kærlega fyrir veittan stuðning og biðja þig að koma upplýsingunum á framfæri". 

Undir þetta skrifar Hjólahópurinn Bjargi, Akureyri.

Ég biðla til allra minna bloggvina að setja þessa færslu inn hjá sér,
og sér í lagi alla sem eru á Akureyri.
Þar býr Gísli og hans fólk.

            

Takk fyrir

Anna Guðný


Sunnudagur enn á ný.

Tíminn líður svo hratt. Ég er ekki fyrr vöknuð á mánudagsmorgni en að ég þarf að fara að sofa á sunnudagskvöldi.

Heimilislífið er allt að fara í venjulegann vetrargír þessa dagana. Börnin byrja að koma með heimaverkefni á morgun. Verður spennandi að fylgja því eftir. Valkirjan var nú ekkert yfir sig spennt þegar hún mundi eftir því hér í kvöld.Wink

Á föstudag kom Unna Mæja bloggvinkona mín í kaffi til mín. Fórum við út á svalir og kíktum á sólina. Sá ég þá hana Ernu bloggvinkonu mína í dyrunum hjá sér. Við uppgötvuðum hvor aðra eftir að við urðum bloggvinkonur. Hún býr í næstu götu en sjáiði bara hvað ég sé vel yfir til hennar.

 

P9120006

Þarna var hún útí í dyrum að kveðja gesti og við auðvitað kölluðum á hana í kaffi og kleinur. Fyndið þegar þær hittust. Erna er að vísu ekki með af sér á síðunni en það er Unnur og Erna þekkti þá hana auðvitað um leið. Gaman að sjá manneskjur sem þekkjast ekki neitt heilsast eins og aldavinkonur þegar þær hittast í fyrsta sinn.

Við auðvitað stilltum okkur upp fyrir myndatöku en sólin var svo sterk að það voru alveg vandræði með það hvernig við áttum að snúa. Wink

P9120002

Og þarna sjáiði dyrnar hennar Ernu bera við eyrað á Unni.Wink

Eftir kaffisopann fórum við á göngu um eyrina, ég, Unnur og frú Breiðfjörð sem kom í heimsókn líka. Við gengum niður að sjó og suður með. Las færslu eftir hana Huld um daginn þar sem hennar húsband hafði boðið henni á siglingu út á fjörð. Fannst henni aðkoma fyrir ferðamenn sem koma á skemmtiferðaskipunum ekkert mjög spennandi og  verð ég að vera henni sammála.

P9120009

P9120012

Ég veit, öryggiskröfur og allt það .

 

Þokkalega stórt byggt handan fjarðar.

P9120011

 

Starfsmenn Bústólpa hugsa til mögru áranna.

P9120013

 

Við tókum góðan túr um svæðið og þarna er Unna að sýna okkur hvar stóri vöðvinn er, þessi sem hún notaði þegar hún stikaði heiman að frá sér til mín.

P9120014

Það er þessi hérna, sérðu til.

Á föstudagskvöld var ég með sætaferðir á Skautadiskó. Þar sem við keyrðum framhjá staðum þar sem andanefjarnar eru alltaf sáum við þetta og ég smellti út um gluggann nánast á ferð. Nei, nei ég var stopp.

P9120015

Sjáiði uggann.

 

Fyrst þarf að fara í skautana.

P9120022

 

Vá hvað ég er flínk.

P9120019

 

Um hádegi á laugardag var svo boð í  sjö ára afmæli.

P9130023

Erum við nokkuð bleikar?

Borðuðum í fyrra lagi í kvöld og svo skelltum við okkur, ég og gaurinn að athgua hvort við myndum nokkuð sjá andanefjurnar. Ég hef alveg séð þær en ekki hitt á eins flott og margir aðrir.

P9140050

Þarna er hann á göngu og sjáiði bílaröðina.

Ég náði bara einni en hún var hreyfð. Skelli henni samt inn. Veit að gæðið eru ekki góð.

P9140053

Ótrúlegt að sjá þær svona nálægt. Tók smá video líka. á eftir að skoða það. Set það inn ef ég er ánægð.

Annars bara sigli ég nú inn í nýja viku með kortið í myndavélinni tómt. Stefni á ferð í borg óttans um næstu helgi.  Skóli á laugardag og svo flotta ráðstefnan á sunnudag. Er einhver bloggari til í kaffihús á hádegi á sunnudag?

Eigiði góða vinnuviku, það ætla ég að gera.

 

 


Kalla eftir upplýsingum!

Hef verið að hugsa, hvernig stendur á því að einhver hælisleitandi hefur verið hér í þrjú ár og hefur ekki fengið , ja annaðhvort reisupassann eða landvist? Ég er ekki að leita eftir: þá á að eða mér finnst það eigi að, heldur af hverju er ekki hægt að taka á þessu fyrr? Verð að viðurkenna að ég hef ekki skoðað þessi mál svo gjörla, kannski aðallega vegna þess að þau hafa ekki snert mig persónulega. Bý eins langt frá svæðinu sem allt þetta er að gerast og hægt er.Mér dettur ekki í hug að vera eitthvað með eða á móti. Það er með þessa lögregluagerð, eins og flestar aðrar. Það koma alltaf eftirá einhverjir besservisserar og tjá sig um hvað hafi farið úrskeiðis  og hvað lögreglumennirnir hafi gert vitlaust.

Hvað segiði um þetta?

Vinsamlegast almenna kurteisi, annað verður hreinsað út.


mbl.is Hælisleitandi mótmælir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Anna Guðný
Anna Guðný

Langar að æfa mig í að setja saman texta. Sé til hvað ég gef mér mikinn tíma í það.

Sjálfstæður Herbalife dreifingaraðili. www.heilsufrettir.is/anna

Þeir sem vilja hafa samband má benda á netfang sem er: ollana@simnet.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Um bloggið

ollana

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband