Leita í fréttum mbl.is

Sanngjörn lög vs. ósanngjörn lög.

Ég ætla rétt að vona að flestir sem kaupa sér íbúðir í dag viti að það sé sameign í raðhúsum. Það er örugglega ekki mælst til að einn íbúi taki sig til og máli sinn part í allt öðrum lit en hinir. Eða, eins og í þessu tilfelli skipt um þak.Herbert hlýtur að hafa vitað það þegar hann flutti inn. Ég persónulega myndi alltaf hugsa mig tvisvar um áður en ég flytti inn í raðhús þar sem enginn hússjóður væri fyrir. Það kallar bara á vesen. Það þýðir að ekki er tekið á málunum fyrirfram og safnað fyrir, heldur , eins og í þessu tilfelli, kemur ægilegur skellur þegar þarf að gera eitthvað stórt. Herbert vissi þetta alveg þegar hann flutti inn. Hann lét skipta um þak hjá sér án þess að gera þá einhvern samning við aðra íbúa. Það er ekki hægt að dæma í dómsmálum eftir sanngirni. Það verður að fara eftir lögum.

Svo er stóra spurningin, eru lögin sanngjörn?

Annars er ég bara góðSmile


mbl.is Neitar að borga þak nágrannans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er alveg rétt hjá þér að maður ætti að hugsa sig tvisvar um áður en maður flytur í fjöleignarhús þar sem ekkert er húsfélagið.

Þessi fjöleignarhúsalög eru bara ekkert svo gömul, Herbert var búinn að kaupa sitt raðhús og gera við þakið áður en þessi lög voru sett.  Annars hefði hann líklega þurft að bíða með að gera við ónýta þakið sitt þar til það hentaði allri lengjunni að gera við öll þökin í einu og þar með að láta sinn part liggja undir skemmdum allan tímann. 

Hvaða húseigandi með fullu viti geymir það í 10-15 ár að gera við ónýtt og hriplekt þak yfir höfðinu á sér og lætur fjölskylduna búa við heilsuspillandi aðstæður undir þessu sama þaki allan þennan tíma?  Sá hinn sami situr svo væntanlega uppi með mun viðameiri og  kostnaðarsamari viðgerðir en Herbert á sínum tíma.  Málið er að manni finnst bara svo siðlaust af nágrönnunum að fara fram á að Herbert taki þátt í að borga fyrir þeirra eigin trassaskap, þó svo að þeir hafi lögin sín megin.

Sigrún (IP-tala skráð) 25.9.2008 kl. 10:49

2 Smámynd: Anna Guðný

Takk fyrir þetta Sigrún. Gott að fá þessar upplýsingar.

Og mikið sammála þér með trassaskapinn. Og að nota þá ekki tímann á meðan í að safna fyrir þessu.

Vona að þetta fari vel

Anna Guðný , 25.9.2008 kl. 10:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Guðný
Anna Guðný

Langar að æfa mig í að setja saman texta. Sé til hvað ég gef mér mikinn tíma í það.

Sjálfstæður Herbalife dreifingaraðili. www.heilsufrettir.is/anna

Þeir sem vilja hafa samband má benda á netfang sem er: ollana@simnet.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Um bloggið

ollana

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband