Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, október 2008

Aðeins of fljót á mér.

Þær eru víst enn, blessaðar. Hinar hafa trúlega bara verið í heimsókn og voru á leið heim aftur.

 

En skildu þær hafa skilið selinn eftir?
mbl.is Enn andarnefjur á Pollinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta var bara fínt.

Það er búið að vera alveg meiriháttar að hafa þessar andanefjar hérna á pollinu. Eiginlega alveg einstök aðstaða til að fylgjast með þeim. Stundum fylgdu þeir manni eftir á leið frá Höefnersbryggju og að Torfunesbryggjunni.

Valkirjan mín fór með bekknum sínum í ferð á Húna II um síðustu helgi til að skoða. Ég var því miður ekki með, hefði verið frábært. En þau hafa hitt á síðasta daginn þeirra hérna, því þeir fóru svo á sunnudeginum.

Svo eigum við eftir að fá einhverja gesti í vetur. En ég er sammála þeim sem skrifar fréttina, enga í ísbirni, takk.


mbl.is Komu gervihnattarmerki í andarnefju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eigendur, stjórnendur, forsvarsmenn!!!

Eru sem sagt Kaupþings og Landsbankamenn farnir að stjórna Glitni? Í gegnum Seðlabankann? Vill svo bara Seðlabankinn  hætta við núna? Af hverju? Getur verið að þetta hafi verið fljótfærni hjá þeim?   En það sem meira er, er ég að skilja þetta rétt?

Annars bara góð

Eigiði ljúfan dag, það ætla ég að gera.


mbl.is Eigendur Glitnis ekki með í ráðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leví og Beinta

Eins og fram kom í færslu hjá mér í síðast mánuði, þá fór ég Rvk yfir helgi. Ég gisti hjá vinafólki í Æsufellinu. Meiningin var alltaf að taka mynd af börnunum þeirra, tvíburunum Leví og Beintu. Málið var að þessi helgi var mjög erfið fyrir Beintu og eyddi hún henni meira og minna á Barnadeild Hringsins. Sem betur fer þá gekk þetta allt upp í lokið og hún hefur það fínt í dag. Eins og þið sjáið hér. Hún var að eignast nýjan hjólastól og sjáið bara hvað hún er ánægð. Inn á fésinu hjá mömmu sjást fleiri myndir sem sýna hvað hægt er að gera ef maður bara hefur réttu græjurnar.

 n1318872683_30140263_1451

Hérna stendur Leví við hlið systur sinnar og Beinta þvílíkt stolt á nýja hjólastólnum.

Mamma þeirra var svo vinsamleg að lofa mér að nota sína mynd til að setja inn hérna


Berlín framhald.

Ég átti víst eftir að segja  hvað mér fannst um Berlín og hvernig mér gekk að eiga samskipti við local liðið. Mér fannst borgin alveg sérstaklega falleg og ég man aldrei eftir því að hafa heyrt af þessum síkjum. Það var líka alveg ótrúlega skemmtileg upplifun að fara í siglinguna. Mæli endilega með því við þá sem eiga eftir að prófa. Hverrar krónu virði og þú upplifir borgina á allt annan hátt en frá landi. Þessi helgi var auðvitað engin venjuleg helgi í borginni.

Picture 049

Mættum þessum á göngunni og mátti til með að fá að mynda þau.

 Maraþonið í gangi og allt stór miðbæjarsvæðið meira og minna lokað umferð. Á laugardeginum hlupu börnin og línuskautaliðið. Hlaupið var í gegnum Branderborgarhliðið og niður eftir 17. júní stræti. Mörgum klukkutímum áður byrjaði undirbúningur. Picture 058

 Rásmark.

Picture 061

Endamark

 

Loka götunni, stilla upp girðingu eftir endilangri götunni báðu megin, koma fyrir wc, áhorfendastúku,sölubásum, aðstöðu keppenda og so videre. Við hjónin fengum allan þennan undirbúning beint í æð, því við gengum upp strætið svona 2-3 tímum áður en hlaupið byrjaði. Myndirnar frá því eru í fartölvunni og set ég þær inn á eftir. Þegar við ætluðum svo að fara heim  á hótel sáum við akkúrat fyrstu börnin koma í mark. Og fylgdust við með þeim nokkra stund. Sumir þarna aðeins farnir að Blush.

 

Þannig að ég var mjög ánægð með borgina, það litla sem ég sá. U banen eða neðanjarðarlestin jafneinföld þarna og í öðrum betri borgum.

 

En nú kemur að samskiptum mínum við þjóðverjana. Okkur hefur jú alltaf verið sagt að þjóðverjar séu svipaðir og frakkarnir með það að þeir vilji ekki tala ensku, allavega ekki ótilneyddir. Og komumst við að því að þetta var rétt. Við hjónin ákváðum að tala helst íslenskuna fyrst þó fólk myndi gleðjast yfir því að við töluðum ensku. Og þannig var það í flestum tilfellum. Á öllum veitingahúsunum var þetta ekkert mál. Allir bara gerðu sitt besta.  Hótelstarfsmennirnir á hótelinu okkar voru ekki gæddir mikilli þjónustulund. Kannski ein eða tvær fínar og svo bara virtust þær ekki nenna að vera til. Gott dæmi að það var auglýst að það væri frítt kaffi,te og vatn á hótelbarnum frá kl. 11.00 til kl. 17.00. Ég nýtti mér það bara síðasta daginn og vitiði bara hvað. Þetta var allt kaffi frá morgunmatnum.Devil Það kláraðist og við spurðum hvort væri til meira og ég fékk þvert nei frá dömunni sem ég spurði. En stuttu seinna kom önnur starfstúlka með bros á vör og tvær kaffikönnur, eina stóra og eina litla. Allir voða ánægðir og fengu sér kaffi. Nei hallóóó, þetta kaffi var pissvolgt líka frá morgunmatnum. Mín hafði þó vit á að segja bara nei.

Annað skipti sem ég lenti virkilega í leiðinlegri afgreiðsludömu var  í H&M. Sú var virkilega dónaleg, og það bara af því að ég skil ekki þýsku. Málið er að ég tala það góða ensku, svona daglegt mál að þjóðverjarnir halda trúlega að ég sé amerísk. Og hvað þýðir það? Það þýðir að það sé skammarlegt fyrir íslending í Þýskalandi að tala góða ensku.  Sorry en ekki gaman.

Niðurstaða.

Berlín er flott borg með fallegar byggingar, flott sýki, fína veitingarstaði með nóg af kartöflum, gnægð verslana. En þar sem þeir eru með bullandi minnimáttarkennd út af tungumálinu á ég ekki von á heimasækja borgina aftur, allavega ekki í náinni framtíð. Ég gæti svo sem lært þýsku en þar sem ég hef meiri áhuga á frönsku þá er það úti.

Annars er ég bara góð

Over and out


Berlínarferðin gerð upp.

Ég er búin að fá nokkrar athugasemdir, bæði hér á blogginu og út í bæ að ég sé ekki búin að skrifa neitt um ferðina. Ég hef eiginlega notað þessa daga til að taka ferðina saman í kollinum og gera hana upp. Er svona nokkuð búin að því. Byrjaði svo að skrifa í dag en annað hvort ég eða valkirjan hentum því svo óvart út.

Þetta var mjög sérstök ferð að einu leyti. Ég hef aldrei áður farið í ferð sem ég hef fundið svona mikið fyrir tímamismun. Ég komst að því að það hentar mér alveg sérstaklega illa að ferðast í austur. Það munar tveim tímum og það var alveg í öfuga átt fyrir mig. Það tók mig alveg alveg tvo daga að ná þessu. Þriðja nóttin var fín en þá var ég líka að fara heim aftur.

Hótelið sem við gistum á, hhmmmmm...... mæli ekki með því. Þegar við löbbuðum inn í herbergið fór ég nú bara að hlægja. Þetta ver eins og að koma á heimavistaskóla. Þið hafið örugglega upplifað það að panta tveggjamanna herbergi á þriggja stjörnu hóteli. Þið fáið herbergi með tveim rúmum. Ekkert mál, þið skellið þeim bara saman og komið er hjónarúm. Það var sko ekki í þessu tilfelli. Þetta var sem sagt herbergi með tveim rúmum. Veggföstum í sitt hvoru horninu. Ok., þetta voru mannleg misstök í pöntunarferlinu. Hótelið var annars fullt, svo ekki var hægt að breyta þessu og við sættum okkur bara við það. Ég er hvort eð er oftar með spriklandi barn í rúminu heldur en eiginmanninn.

En þegar ég settist í rúmið fór glansinn alveg af því. Það brakaði og brast í öllu. Virkilega gamalt og lúið. Frétti það seinna að sumir höfðu fengið miklu betri rúm, sem þýðir að verið er að endurnýja herbergin. Bara ekki komið að okkar. Sem kom heldur betur í ljós þegar ég ætlaði að fara í sturtu. Ég lenti í slagsmálum við sturtuslönguna. Festingin var orðin svo léleg að hausinn þeyttist alltaf upp að vegg. Reynið þetta bara, setjið hausinn upp að veggnum og reynið svo að setja höfuðið ykkar undir bununa. Nú vitið þið hvernig mér gekk. Við áttum við þetta vandamál að stríða hér um árið í gömlu íbúðinni okkar og ég vissi því hvað átti að gera. Dró slönguna í gegnum festinguna og þvingaði þannig hausinn fastann á réttum stað. Tók langan tíma að finna þann rétta. En það tókst og ég gat sturtað mig.

P9290145

Þetta er sturtan fína.

Hótelið okkar var á svæði sem ég held að kallist Charlottburg eða eða eitthvað svoleiðis. Allavega var íþróttavölllur með því nafni hinu megin við götuna.Á laugardagsmorgninum tókum við taxa niður á Europa center. Þar skoðuðum við okkur aðeins um en gengum svo í gegnum trjágarðinn eftir 17. júní stræti upp að Brandenborgarhliðinu, þar áfram fram og til baka út um allt. Gengum í samanlagt átta tíma þann daginn. Telst mér þá til að við höfum gengið jafnlangt, ef ekki lengra en maraþonhlaupararnir hlupu. Tókum þetta að vísu á styttri tíma. Allt þetta svæði var meira og minna lokað fyrir umferð bæði laugar- og sunnudag út af hlaupinu. Þó að aðalhlaupið hafi ekki verið fyrr en á sunnudag, þá hlupu börn og línuskautaliðið á laugardeginum. Við stóðum nokkuð langa stund og fylgdust með þeim hlaupa framhjá.  Það var ekki nokkur leið að fá bíl heim á hótel svo við skelltum okkur neðanjarðar og tókum U banen heim. Er ekki alveg viss hvort það sé skrifað svona.

 

Borðuðum með nokkrum úr hópnum okkar á hótelinu um kvöldið. Við pöntuðum okkur kjúkling og hann var virkilega góður. En þeir sem pöntuðu nautasteikina voru ekki eins heppin.H'un var svo seig og svo fór þjóninn bara í fýlu þegar kvartað var.

P9270090

Séð hluta hópsins. Sigga í forgrunni.

Ég fór snemma að sofa þetta kvöldið en vaknaði upp við símtal um nóttina. Þá var það gaurinn sem átti erfitt með að sofna og vildi aðeins heyra í mömmu. Seinna sagði hann mér að hann hefði sofnað vel á eftir en ég vaknaði upp og sofnaði ekki fyrr en seint og um síðir.

Á sunnudaginn tókum við svo U banen á Alexanderplatz. Gengum þaðan niður að síki og tókum okkur ferð með bát í bryggjuleiðangur. Svakalega flottur bátu, alveg nýr. Allt hreint og fínt.

P9280110

Hér kemur báturinn okkar að landi.

P9280112

Vinkað í þá sem við mættum.

P9280113

Ýmislegt sem sást frá sjó sem ekki sást frá landi.

P9280115

Hótel.

P9280126

Kaffihús við árbakkann.

P9280129

P9280131

Minningarsafnið um loftbrúna.

 

Heimamenn í lautarferð.

P9280141

Einhver sem veit, getur verið að það sé búið þarna?

 

 

Mjög fróðlegt var að sjá upp á land. Ýmislegt sem bara þar fyrir augum sem maður hefði aldrei séð frá landi. Á einum stað horfði ég upp á land og sá þar kommúnu sem minnti mig á Kristjaníu eins og hún var og hét. En rómantíski glansinn fór aðeins að fara af mér þegar ég fór að dotta ofan í kaffibollann.Fegin varð ég þegar við gátum farið af á miðri leið. Og passaði það að við vorum bara nokkrar mínútur að ganga heim á hótel frá þeim stað. Hótelið sá ég löngu áður en við komum að því. Það var svo hrikalega ljótt á litinn að það sást langa leið.

P9280108

Er ekki viss um að þetta sé góða mynd en það voru þrír að leika sér þarna í klifri. Þessi stoppaði og vinkaði til okkar. Brjálaðir náungar, en flott hjá þeim.

 

Um kvöldið fórum við hjónin út að borða á ítalskan veitingastað í göngu færi frá hótelinu. Það var ósköp notalegt kvöld sem við áttum þarna saman. Maturinn fínn. þjónustan flott og alveg viðurkennt að við töluðum ekki þýsku. Trúlega vegna þess að þeir voru flestir ítalskir.Wink

Á mánudaginn var svo planið að versla eitthvað smálegt fyrir börnin.  Tókum U banen beint á Alexanderplats. Það er allt sem nöfnum tjáir að nefna í verslunargeiranum. H&M, Sara, C&A, Saturn og svo risastórt moll með ótrúlegum fjölda sérverslana. Þú gast alveg gleymt því að kaupa eitthvað í Saturn. Betra að kaupa bara heima. Hvort sem það var sjónvarp, leikjatölva eða leikir, símar, myndavélar.  Keypti mér þó minniskort í símann minn. Á samt eftir að skoða hvernig það virkar. Er nefninlega þokkalega tækjaóð en þarf að læra helling um hvernig hlutirnir virka.

En meininin var auðvitað að sjá hvor við fyndum eitthvað á börnin fyrir veturinn.Það tókst vel, gerði góð kaup. Fékk flottar vatteraðar kápur á stelpurnar. Fannst þeim frábært að vera eins. Svo fundum við flott vatterað vesti á gaurinn. Allt brúnt svo þau eru í stíl systkinin.Fylgdi með hettupeysa. Hann var aldeilis ánægður líka.

Eftir verslunarerfiðiðSmile settumst við inn á Mövepick og fengum okkur gott að borða. Fengum borð við gluggann og vísaði það út á torgið. Flott útsýni.

Þegar við komim heim á hótel tróðum við í töskuna því sem við höfðum keypt og vitið menn. Það var pláss og þurfti engu að breyta.

Heimferðið byrjaði jafnbrösuglega og ferðin að heiman. Það átti að koma rúta og ná í okkur 18.30. Klukkan 18.50 var farið að hringja og athuga með rútuna. Eftir mörg símtöl, bæði innanborgar og til Íslands kom í ljós að við hefðum bara einfaldlega gleymst. Kom svo rúta í loftköstum og klossbrensaði fyrir framn hótelið. Stökk bílstjórinn út og bauð okkur inn med det samme. Ég hef aldrei áður séð töskur nánast fljúga inn í farangurrýmið. Liðu örfáar mínútur þangað til við vorum lögð af stað. Og hann kitlaði vel pinnan á leið á völlinn. Hann baðst afsökunar á klæðaburðinum. Var ekki í skyrtu eða með bindi. Hann var nefninlega járnsmiður og var að vinna á verkstæðinu hjá fyrirtækinu þegar hann var beðinn um að koma okkur í flug. Við heppin að hann var að vinna. Smile

P9290150

Myndavélin mín höndlaði ekki birtuskilyrðin.  En hér er hluti að hópnum að bíða eftir rútunni.

Eftir þetta litla ævintýri gekk allt vel. Komum til Keflavíkur réttu fyrir miðnætti á mánudagskvöldi. Hópurinn tók svo rútu í bæinn. Voru komin á hótel Barón um eitt eftir miðnætti. Það var sko frábær endir á ferðalaginu. Bara verst að við fengum ekki að sofa aðeins lengur. Vorum komin í morgunmat kl. sex um morguninn. En herbergið var æðislegt. Rúmið meiriháttar og allt í sambandi við þetta mjög gott. Mæli eindregið með þessu hóteli fyrir þá sem þurfa á því að halda.

P9300152

Frábær morgunmatur, og meira að segja lýsi. Mátti til með að ná mynd af því.

 Vorum svo komin norður um níu. Var búið að biðja okkur um að koma í skólann og vinsamlegast beðin að koma með kápurnar með okkur. Fórum því með þær og vestið.

Dagarnir eftir að við komum heim hafa farið í ýmislegt skemmtilegt. T.d. að dúlla með börnunum. Þeim fannst kominn tími á það. Búin að vera í burtu tvær helgar í  röð.

Fór á námskeið á þriðjudagskvöldið. Var búið að langa til að skoða þetta Úr mínus í plús. Líst rosa vel á það og er meiningin að fara af stað eftir að eiginmaðurinn hefur kíkt betur á þetta.

Svo var það hringurinn í gærkveldi. Góð stund sem við áttum þar.

Svo var aðalfundur í foreldrafélaginu í skólanum í dag. Ákveðið var að breyta heldur betur til og hafa fundinn kl. 18.00. Bjóða svo upp á súpu á eftir. Ókeypis barnapössun var líka í boði. Ég var mætt fyrr og skar niður grænmeti í súpuna. Þetta voru svakalega góðar súpur. Önnur algjör grænmetisbomba og hin þokkalega hot. Veit ekki alveg hvað voru margir chili í uppskriftinni, en góð var hún.

Svo er það fimmtugsafmæli á morgun og þar ætla ég að mæta kl. 15.00 og hjálpa til. Það stendur til miðnættis. Þá er nú þessi törn búin. Meiningin er að slaka á um helgina en við finnum okkur eflaust eitthvað skemmtilegt að gera. Veit að það á að ganga til góðs. Er alveg til í að vera til staðar ef þarf, en annars er ég til í að vera bara heima.

 

Ætlaði að setja inn myndir hérna en tókst ekki.

Er ekki alveg búin. Skrifa meira þegar ég gef mér tíma. Á alveg eftir að segja frá samskiptum mínum af þjóðverjunum og hvernig mér fannst borgin sjálf.

Best að ég kíki á koddann núna.

Eigiði ljúfa drauma.


Hver var hann, þessi Jesú?

Hver var hann?



  Þrjár  sannanir fyrir því að Jesús var mexíkani.

  - Hann hét Jesús

  -  Hann talaði tvö tungumál

  - Hann hafði aldrei frið fyrir  yfirvöldum



  Sömuleiðis eru líkur á því að Jesús hafi verið  svertingi.

  - Hann kallaði alla 'bræður sína'

  - Hann var  hrifinn af gospel

  - Hann fékk aldrei sanngjarna málsmeðferð hjá  yfirvöldum



  En það gæti líka vel verið að hann hafi verið  Gyðingur.

  - Hann fetaði í fótspor föður síns

  - Hann bjó  heima þangað til að hann var 33 ára

  - Hann notaði  ólífuoliu



  Þrjár sannanir sem sýna sterklega að Jesús hefði  vel getað verið

  ítalskur.

  - Hann baðaði út höndunum þegar  hann talaði

  - Hann drakk vín með hverri máltíð

  - Hann var  viss um að mamma sín væri hrein mey og mamma hans var viss

  um það  að hann væri Guð.



  Þrír möguleikar sem sýna að hann hefði  getað verið frá Kaliforníu.

  - Hann lét aldrei klippa sig

  -  Hann gekk berfættur

  - Hann lagði grunn að nýrri  trú



  En það er þó mjög líklegt að hann hafi verið  Íri.

  - Hann giftist aldrei

  - Hann elskaði að vera úti í  náttúrunni

  Hann var sífellt að segja sögur



  EN....það  líklegasta er að Jesús hafi verið KONA.

  - Hann var neyddur til að  fæða fjölda manns án fyrirvara þótt ekki

  væri nokkur matur til  !!!!!!

  - Hann reyndi að láta rödd sína heyrast meðal fjölda karla  sem ekki

  föttuðu baun.

  - Þrátt fyrir að hann væri dáinn,  varð hann að rísa upp aftur því það

  var meira sem hann átti eftir  að gera !!!!!!!!!!



  Þess vegna skaltu senda þetta til allra  kvenna svo þær skilji að þær

  eru enn guðdómlegri en þær héldu  ....









Jólagjöfin í ár.

Mér dettur eiginlega ekkert annað í hug þegar ég les þessa frétt. Finnst þetta bæði fyndið,vitlaust og sniðug hugmynd, allt í einum pakka. Hvað finnst þér?

 


mbl.is Karlmannleg kokkabók
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alvöru rúðuskafa?????

Hvar finn ég svoleiðis? Þar sem ég er stutt í annan verð ég að fá eina sem hægt er að lengja í og það almeinilega. Og hún þarf að tolla svoleiðis. Ekki losan upp um leið og einhver fyrirstaða kemur. Á eina sem ekki nógu góð en nú vil ég fá góða sköfu fyrir veturinn.

Endilega ef einhver veit um verslun sem selur góðar sköfur látið mig vita.

Góðar stundir


Botox við táfýlu!

Sharon Stone stendur í forræðisdeilu við fyrrverandi eiginmann út af átta ára gömlum strák. Nú er komið í ljós að dómarinn í málinu er ekkert sérstaklega mikill aðdánandi leikkonunnar. Ástæðan? Jú, svo virðist sem móðirin sé illa ýkt í heilsumálunum.Hún vill sem sagt láta gera botox aðgerð eða meðferð eða hvað það er kallað til að vinna bug á táfýlu hjá stráknum. Hm....... er ekki allt í lagi þarna?? Er sammála dómaranum þarna, verð ég að segja.

Annars er ég bara fín í dagSmile


mbl.is Var ljósmyndurum sigað á Heather?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Höfundur

Anna Guðný
Anna Guðný

Langar að æfa mig í að setja saman texta. Sé til hvað ég gef mér mikinn tíma í það.

Sjálfstæður Herbalife dreifingaraðili. www.heilsufrettir.is/anna

Þeir sem vilja hafa samband má benda á netfang sem er: ollana@simnet.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Um bloggið

ollana

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband