Leita í fréttum mbl.is

Framhaldsnám á framhaldsnám ofan!

„Það er hálfpartinn verið að hrekja stóran hluta þessa fólks úr landi," segir Friðbert en að hluti þessa fólks, um það bil þriðjungur, hafi hellt sér út í framhaldsnám. Síðan hefur einhver hluti þeirra, sem betur fer, stofnað eigin rekstur, segir Friðbert.

Ekki býst fólk við því í alvöru að á Íslandi sé endalaust hægt að háskólamennta fólk og allir fái starf við hæfi?


mbl.is 1.300 bankamönnum sagt upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Æ, já,  Þetta endlausa framhaldsskólanám fer að verða hálfgerð langavitleysa.   Nú skortir fólk sem kann til verka í iðngreinum -ekki kynjafræði...

Hildur Helga Sigurðardóttir, 20.3.2009 kl. 01:26

2 Smámynd: Anna Guðný

Sammála því, vonandi fer það að vera "inn" núna. En þetta lýsir svo íslendingnum vel. Ef ein kýrin þarf að pissa, þurfa þær allar. :)

Anna Guðný , 20.3.2009 kl. 07:55

3 Smámynd: Auður Proppé

Sammála þér og Hildi í þessum málum, skortur núna á fólki í iðngreinum, ekki háskólamenntuðu fólki.  Því miður virðast iðngreinar nám hafa langa biðlista þar sem hingað til hefur áherslan alltaf verið lögð á háskólanám þannig að nú eins og staðan er þá er offramboð.

Gott að heyra að þú er búin að ná þér Anna Guðný mín, inflúensan er skæð.

Auður Proppé, 20.3.2009 kl. 09:55

4 Smámynd: Herdís Alberta Jónsdóttir

Já stelpur, það er gott að eiga góða iðnaðarmenn, en við megum nú ekki gera of lítið úr menntun, öll menntun er góð, iðnmenntun, háskólamenntun....... Hildur gaman að sjá þig eftir öll þessi ár..... þú ert nú með góða háskólamenntun......

Herdís Alberta Jónsdóttir, 21.3.2009 kl. 20:42

5 Smámynd: Anna Guðný

Það er ekki meiningin að gera lítið úr háskólamenntun. Málið sem ég var með í huga var að mér finnst eins og það sé til of margt fólk sem er ennþá með svona góðærishugsun í gangi. Það ætlast til að það geti farið í skóla eins mörg ár og það vill, læra það sem það vill og svo eiga aðrir að sjá til þess að það fái starf við hæfi eftir nám. Og ef það takist ekki séum við hin bara að hafna þeim sem íbúum á Íslandi.  Ég veit, er að alhæfa nokkuð hérna en þannig kemst vonandi til skila meiningin mín.

Anna Guðný , 21.3.2009 kl. 20:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Guðný
Anna Guðný

Langar að æfa mig í að setja saman texta. Sé til hvað ég gef mér mikinn tíma í það.

Sjálfstæður Herbalife dreifingaraðili. www.heilsufrettir.is/anna

Þeir sem vilja hafa samband má benda á netfang sem er: ollana@simnet.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Um bloggið

ollana

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband