20.12.2008 | 01:40
Jóla hvað?
Það er svo búið að minna mig á að ég hafi ekki bloggað nýlega að meira segja mágkona mín, bankastarfsmaðurinn, sagðist hafa tekið eftir því að ég hafi ekki skrifað neitt nýlega. En með því að sleppa þessu í svona marga daga, þá eru þeir smám saman að koma í ljós þessir 97 sem ég var að tala um um daginn. Það er að kannski hafi um 100 manns komið inn á síðuna á einum degi, 300 flettingar en aðeins 3 skrifað athugasemd. Háin tvö eru byrjaðar og Guðrún kom sterk inn um daginn. Bögga mín farin að skrifa heil ljóð. Bara frábært.
Allt gengur út á jól þessa dagana. Jóla þetta og jóla hitt. Sem er auðvitað hið besta mál.
Það voru danssýningar hjá stelpunum um daginn. Kreppuvélin mín þolir ekki svoleiðis birtu en ég skelli samt einni mynd inn hérna, svona rétt til að sýnast.
Flottar stelpur. Ég á þessa aðra til hægri.
Svo skelltum við okkur á upplestur á Amtið til Dodda. Þar var bloggvinkona mín, hún Jóna Á að lesa upp úr bók sinni Sá einhverfi og við hin. Flott hún Jóna. Ég, auðvitað keypti bókina og fékk áritaða.
Nú var komið að kakóferð barnanna. Foreldrafélagið í skólanum bíður upp á kakóferð í desember. Í þetta skiptið var farið á Friðrik V. Ég og eiginmaðurinn fórum með og vorum svo heppin að fá frábæra skoðunarferð.
Eyrún Anna kennari með tvær við hönd
Hér tekur Magga á móti þeim og segir frá því sem fyrir augu ber.
Við fengum aðeins að kíkja inn í eldhúsið. Allt komið á fullt þar.
Adda við skrifborðið.
Svo tóku þau lagið fyrir okkur í lokin.
Meira jóla. Jólafrí í skólanum í dag. Byrjuðum daginn á jólaskemmtun. Hér erum við komin inn i 2. bekk. Rosa fjör þar.
Jólastelpur.
Jólasagan lesin.
Duglegar að mæta þessar mömmur. Skrýtið , mér finnst ég alltaf sjá sömu mömmuandlitið þegar eitthvað er um að vera.
Annar helmingur af Háunum tveim með dóttur sinni.
Hér erum við komin inn í 5. bekk.
Þá er farið að dansa. Hér er unglingurinn og bekkjarsystirin með 1. bekkjar vinkonu.
Sylvía með sína 1. bekkjarvinkonu.
Siggi og Jana með sína vini.
Svona gerum við þegar við hengjum okkar þvott.
Á öllum alvöru jólaböllum mæta jólasveinar.
Sjáiði bara þessar flottu stelpur. Þær eru í 8. bekk. Þær gistu saman sl. nótt svo þær gætu klætt sig uppá saman.
Þannig að nú eru allir komnir í frí. Eiginmaðurinn er í veikindafríi og enginn veit hversu lengi. Hann var í sneiðmyndatöku í morgun og fékk svo útkomuna í dag. Brjósklosið hefur versnað og nú sjáum við bara til hvernig hann verður eftir hátíðirnar. Ef honum skánar ekki verður hann trúlega skorinn á nýju ári. En við vonum auðvitað að til þess komi ekki. Það er mjög sérstakt að hafa hann heima á þessum tíma árs. Skiljanlega hefur hann ekki getað gert mikið en þó, hann skrifaði öll jólakortin. Það tekur nú sinn tíma. Annars ákváðum við að fækka aðeins í þeim hópi þetta árið og senda fleiri á netinu í staðinn. Svo hefur hann auðvitað verið mikið heima, þannig að börnin koma ekki heim að tómum kofanum. Það er mikilsvirði að einhver sé heima þegar þau koma.
Annars erum við bara þokkaleg. Ætlum að hafa það náugt um hátíðarnar. Eiginmaðurinn ekki til stórræðanna í keyrslu, svo við verðum bara heima. En það er líka í fína lagi.
Sit hér og reyni að láta mér detta eitthvað meira í hug til að skrifa, af því ég nenni ekki inn að sofa. Veit nefninlega að ég þarf á fætur eldsnemma í fyrramálið að keyra unglinginn til að passa.
Svo er aðalmálið i dag, hvað á ég eiginlega að gefa eiginmanninum í jólagjöf? Hugs, hugs, hafiði einhverja tillögu? Við eigum eiginlega allt sem þarf en eitthvað verð ég samt að gefa honum? Ef þið gefið mér einhverja hugmynd, þá get ég kannski unnið út frá því.
Jæja elskurnar, sofiði vel í nótt og dreymi ykkur vel.
Best að renna blogghringinn og kíkja á ykkur.
Eldri færslur
- Febrúar 2014
- Desember 2013
- Apríl 2013
- Ágúst 2012
- Apríl 2012
- Júní 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
Tenglar
Herbalife
Vinnan mín og aðal áhugamálið.
Áhugaverð skrif.
Bloggarar sem ég vil eiga greiðan aðgang að.
Frændgarður
Familien bloggar
Lífið og tilveran
Local
- Bærinn
- Dagskráin
- N4 og Extra
- Sálarrannsóknarfélagið á Akureyri
- http://nordurland.is
- http://akureyri.net
- N4 Norðlenskar fréttir
Matur
- http://matseld.is Jens og maturinn
Persónuleg uppbygging
Vítamín fyrir heilann.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Um bloggið
ollana
Bloggvinir
- alberta
- amsa
- anitabjork
- annambragadottir
- arniarna
- atvinnulaus
- dagny65
- baldher
- bestalitla
- binnag
- daggardropinn
- drum
- duna54
- egillsv
- godinn
- gunnurr
- frost
- heidathord
- himmalingur
- hk
- ingabaldurs
- jakobk
- jeg
- jodua
- jokapje
- jonaa
- juljul
- kafteinninn
- krummasnill
- landsveit
- lauola
- ljosmyndarinn
- maggatrausta
- magnolie
- neytendatalsmadur
- mammann
- osland
- rannug
- ringarinn
- roslin
- sifjan
- 58
- snjokall
- strumpurinn
- tara
- topplistinn
- ziggi
- zeriaph
- vala
- vogin
- jona-maria
- kolbrunj
- gattin
- gledibankinn
- robertb
- bjarnijonsson
- ernadua
- curvychic
- gillimann
- minos
- hordurj
- naflaskodun
- joklamus
- vallyskulad
Athugasemdir
Sæl og takk fyrir innlitið og falleg orð í minn garð á minni síðu!!!
Það er greinilega mikið að gera hjá þér eins og flestum landsmönnum um þessar mundir....En eins og myndirnar sýna er þetta hin mesta skemmtun...
Með jólagjöf eiginmannsins er margt sem kemur til greina eins og; kerti og spil, diskinn með Páli Óskari!, gott ilmvatn, undirföt hand þér, bók t.d. með köldu blóði eftir David Attenborugh, alltaf klassískt að kaupa flíspeysu, skyrtu eða gönguskó, já eða bara eina nótt á hóteli með þér... GPS staðsetningartæki, myndavél, mynd af þér, skauta, já þetta er óteljandi möguleikar, tala nú ekki um þegar maður býr í svona stórbæ eins og Akureyri er....Hér á Höfn eru ekki eins margar búðir og þá hugsar maður ok ef þetta er ekki til hér þá þarf maður ekki á þessu að halda!!!!!
Megir þú eiga gleðiríka jólahátíð í faðmi fjölsyldunnar og gott nýtt ár...Bestu kveðjur RAgga
Ragnheiður Rafnsdóttir (IP-tala skráð) 20.12.2008 kl. 08:35
Hæ Anna mín, mikið er ég fegin að þú ert farin að blogga aftur.Mér datt helst í hug að þú værir komin á sjó, þú værir kokkur en eitt langar mig að spyrja þig af var þinn eiginmaður á Eflingu á fimmtud ég er ekki klár á honum svo ég þorði ekki að heilsa og byðja hann að skyla kveðju til þín. Ef þetta hefði svo ekki verið hann hr þinn þá hefði ég farið í rembihnút. Eigðu góðar stundir.
Bögga (IP-tala skráð) 20.12.2008 kl. 17:44
Takk fyrir allar hugmyndirnar sem þú gefur mér Ragga mín. Ég varð nú að lesa þær fyrir hann. Ein var ansi góð. Um daginn skruppum við, ég og unglingurinn á Glerártorg og áður en við fórum þá bað eiginmaðurinn unglinginn að kaupa nú eitthvað fallegt handa sér. Hún keypti þrjá bíla fyrir hann og yngri börnin, svo þau gætu nú leikið sér saman. Það vildi svo til að Palli var að árita diskinn sinn og plaköt. Heldurðu að hún hafi ekki fengið áritað plakat handa pabba. ÉgOliver. Honum fannst þetta nú ekki eins fyndið og mér en varð þó að brosa.
Dóra: Mikið hefurðu það gott þarna. Borðar, hvílir þig, borðar meira, hvílir þig meira. Gaman, gaman.
Bögga. Takk fyrir að taka eftir að ég hafi ekkert skrifað. Hef bara notað tímann í annað. En þetta með eiginmanninn og rembihnútinn, þú hefðir alveg getað heilsað honum. Hann var þarna og sá þig en lenti í svipuðum hnút og þú. En þið getið þá heilsast næst.
Hafðu það gott dúllan mín.
Takk fyrir innlitið stelpur mínar.
Anna Guðný , 20.12.2008 kl. 19:52
Já það er þessi tími sem er svooo annasamur að maður er stundum bara búinn. Og nennirinn bara bensínlaus. Kærleiksknús á þig mín kæra og knúsaðu kallinn bara í jólagjöf......hahaha EXTRA mikið ódýrt, hentugt og þægilegt Vona að hann fari sér ekki að voða um jólin og lagist eins og mögulegt er. Jólakveðja úr sveitinni.
JEG, 20.12.2008 kl. 23:25
Hæ Anna mín. Mikið er ég fegin að þú sért farin að blogga aftur. Svo ég varð bara að kvitta fyrir mig. Kysstu litluna mína frá mér.
Kveðja Hafdís (annað háið) ha, ha
Hafdís Vigfúsdóttir (IP-tala skráð) 21.12.2008 kl. 00:06
Gaman að sjá þig blogga aftur, svo spillir ekkert að þú ert svo duglegt að setja inn myndir
Renata, 21.12.2008 kl. 08:47
Mikið er ég fegin að þú skulir gefa þér tíma til að skrifa smávegis. Á bóndi þinn góðan frakka? ...hafðu það gott mín kæra. kv/peta
petrea (IP-tala skráð) 21.12.2008 kl. 16:34
Halló Anna mín, hvernig er það er fólk bara orðið vant því að þú sért alltaf með myndavélina á lofti? hún er kannski orðin eins og framlengin af hendinni á þér.. Fynnst fólk ótrúlega eðlilegt og afslappað :) bestu kveðjur norður
Harpa (IP-tala skráð) 21.12.2008 kl. 23:59
Oh hvað það er gaman að sjá hvað margir hafa saknað mín. Takk fyrir innlitið elskurnar.
Jóna mín Takk fyrir að þú gefur þér nú samt tíma til að kíkka á mig. Vegna bakvesenisins hjá eiginmanninum, þá eigum við trúlega ekki eftir að renna fram hjá þér um jólin. Bensínlaus nennir.
Hafdís. Takk fyrir það, alltaf gaman að fá þig í heimsókn.
Peta: Takk fyrir hugmyndina. Held ég sé búin að ákveða mig. Ætla að vera hagsýn núna. Takk fyrir innlitið.
Renata. Já þetta með kreppuvélina. Tók hana ekki með í dag, gott að taka frí með hana suma daga.
Anna Guðný , 22.12.2008 kl. 00:49
Harpa: Veistu, hef aldrei hugsað út í þetta svona en held samt að það sé tilfellið. Fólk er orðið svo vant mér með vélina og t.d. segja kennari Öglu Rúnar sem þolir ekki myndavélar, hann gafst upp eftir innan við hálfa mínútu og leit í hana. Hitti Óskar í gær, hann sagðist hafa fengið póst frá þér og þú kæmir trúlega ekki norður um jólin. Þú lætur bara vita næst þegar von er á þér.
Kveðja til þín
Anna Guðný , 22.12.2008 kl. 00:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.