Leita í fréttum mbl.is

Framhald frá föstudegi

 

Myndablogg

 

PC040007

Duglegir nágrannar, Bjarni og Öddi.

 

PC040009

Unglingurinn var heima einn dag eftir áreksturinn og hér láta þær vinkonurnar fara vel um sig.

 

Jólakortagerð hjá 5.bekk á fimmtudag. Mjög góð mæting eins og venjulega.

PC040012

Hér eru þau, félagarnir.

PC040013

Hrafnhildur, annar umsjónarkennarinn með börnin sín.

 

PC040016

Og hér er hinn umsjónarkennarinn, Guðrún á spjalli.

 

PC040020

Sjáiði einbeitinguna hjá, ja öllum nema Hörpu. Hvað skyldi hún vera að hugsa svona þungt?

 

PC040033

Hér er Ármann tónmenntakennari mættur í heimsókn og tóku hann og börnin nokkur jólalög fyrir foreldra.

 

Ég held,svei mér þá, að ég hafi ekki tekið neina mynd á föstudag. En kom svo fílefld inn á laugardag. Byrjuðum daginn í jólakortagerð fyrir 2. bekk. Valkirjan mín hafði fengið gubbupest um nóttina og komst ekki með mér til að undirbúa en hringdi fljótlega og sagðist vera orðin frísk. Svo ég náði í hana. Hún hélt út allan tíma, en mikið var hún þreytt þegar heim kom.

PC060001

Hafdís með sín börn. Í bak sést í sérlegan smakkara.

 

PC060002

Heiða jólakortaverksmiðja.

 

PC060003

Hálfföl þarna, skvísan.

 

PC060004

Ægilega duglegar mömmur þarna að verki.

 

 Eftir hádegið mátti ég til með að fara og kíkja á framkvæmdina hennar Margrétar Trausta.

Hún er hvunndagshetja Akureyrar þennan mánuðinn hjá mér allavega.

Henni var sagt upp í Landsbankanum eftir 27 ár í starfi. Eftir að hafa legið í þunglyndi í eina viku reis hún upp og ákvað að þetta gengi ekki lengur. Hún vissi að hún fengi ekkert upp í hendurnar, heldur þyrfti hún sjálf að bera sig eftir björginni. En það að starta markaði hafði lengi verið hennar draumur. Þessi draumur var að rætast. Ég kynntist Margréti og Jose manninum hennar fyrir ca. 15. árum og hittumst við nokkuð oft þá í gegnum félagasamtök sem við vorum í. Síðan þá hittumst við bara eins og gengur, út á götu.

PC060009

 

Þarna er hún Margrét. Rétt náði henni eftir símtal og hún var að fara að hella upp á, svo það var í mörg horn  að líta.

 

PC060012

Verið að leysa mömmu af.

 

PC060013

Fríða Magga frá Dalvík með glerið sitt.

 

Við Hannella skelltum okkur yfir á Glerártorg á nýja kaffihúsið Kaffi Taliu. Æðislegt kaffi, var búin að prófa það áður en nú fékk ég mér kakó og rúnstykki og nammi namm. Alveg draumur að sitja þarna og horfa á fólkið.

 

PC060015

Hitti þessa sveinka á leiðinni.

 

Eftir kaffihúsaferðina dreif ég mig svo heim til að hugsa um sjúklinginn.Gaurinn fékk að fara með Hannellu og börnum í Mývatnssveitina að kíkja á jólasveinana þar. Það átti nefninlega að láta þá fara í bað, með góðu eða illu. Gaurinn kom heim um kvöldið eftir margra klukkutíma ferð, angandi af fjósafýlu. Þau voru nefninlega svo heppin að fá að fara í Vogafjósið, heilsa upp á kálfa og smakka spenamjólk. Fannst hún nú ekkert spes svona volg. En takk þið fyrir að lofa honum að koma með. Held hann hefði ekki skemmt sér eins vel hér heima með okkur hinum.

  Svaf  eins lengi og ég gat á sunnudaginn, vissi að nóg yrði að gera seinnipartinn.  Eftir hádegið var farið í tiltekt fyrir Mamma Mia partýjið.

Við vorum svo mætt upp á Glerártorg, ég og gaurinn fyrir fjögur því þar átti hann að syngja með bekkjarfélögum sínum. Ármann var þar mættur aftur.

PC070019´

Rosa flottur söngur, og flest höfðu sem betur fer haft fyrir því að klæða sig upp á í betri fötin.

PC070029

Flottir strákar.

 

Þegar heim kom voru fyrstu gestirnir mættir. Um 15. manns komu. Meðalaldurinn var 7. ára.

PC070031

Poppið komið í skálarnar og þá er allt tilbúið.

 

PC070033

Þvílíka fjörið í partýinu. Á meðan þau horfðu skreytti ég marengsterturnar sem ég átti að koma með á jólafund Sáló um kvöldið. Þær voru auðvitað svakaflottar.

Myndir frá þeim fundi eru ekki gerðar opinberar, bara útvaldir sem fá að sjá þær.

Nú er ég að skella mér á danssýningu með valkirjunni. Dansskólinn er með óteljandi fjölda sýninga í Ketilhúsinu næstu daga. Engin smá vakning sem hefur verið í dansi hér á Akureyri síðasta ár.

Nóg í bili.

Hafið það gott í dag.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga skjol

Anna mín, dagarnir hjá þér eru auðsjáanlega jafnþétt setnir hjá þér eins og mér.

Knús á þig og þína inní góða viku

Helga skjol, 8.12.2008 kl. 16:18

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Nóg í bili, ég er svo hissa, ekki meir, sko væri löngu komin í rúmið ef ég hefði svona dag, en auðvitað átti maður hann bara búin að gleyma eða þannig.
Flottar myndir og færsla.
Knús til þín
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 8.12.2008 kl. 17:14

3 Smámynd: Hulda Margrét Traustadóttir

Takk fyrir að segja frá Norðurportinu og gaman að kíkja á hvað þú ert að bralla. Gaman að hitta þig þar

Hulda Margrét Traustadóttir, 9.12.2008 kl. 07:03

4 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Búinn að lesa... innlitskvitt.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 9.12.2008 kl. 11:21

5 Smámynd: JEG

Vá gaman að skoða myndir og sjá hvað er mikið um að vera hjá ykkur essgan.  Hér gerist ekkert annað en þetta venjulega hehehe sem er jú slatti.  Knús á ykkur mín kæra.    Farið varlega.

JEG, 9.12.2008 kl. 13:15

6 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Oh ég fæ Akureyrarstinginn!¨ Ég bjó á Akureyri frá 1986 til 1991 og átti góðan tíma þar. Frábært að sjá allar myndirnar og sérstaklega gaman að sjá frá Norðurporti. Svakalega er þetta fínn markaður.

Vilborg Traustadóttir, 9.12.2008 kl. 15:16

7 Smámynd: Líney

Hvar er þetta  "port" til húsa?  Þegar   portið var og hét á Ak,bæði á gömlu verksmiðjunum,slökkviliðsstöðinni,Bólu og gamla skaptahúsinu þá var ég þar með mitt  dót

Alltaf gaman að þessu...

Og hvar er  nýja kaffihúsið  á Torginu,er kaffi Torg hætt eða  er þetta viðbót?

Kveðja

Líney, 9.12.2008 kl. 18:32

8 Smámynd: Huld S. Ringsted

Anna mín það er greinilega alltaf nóg að gera hjá þér! dugnaðarkona

Huld S. Ringsted, 9.12.2008 kl. 20:01

9 Smámynd: Anna Guðný

Takk fyrir innlitið öllsömul.

Helga: Já nóg að gera, eins gott við eigum ekki fleiri börn.

Milla mín: Ertu búin að gleyma, orðið svona langt síðan? En auðvitað er miklu meira í boði núna en var áður.

Dóra: Vinka til Ernu á eftir.

Margrét: Ég skil ekki af hverju ég var ekki búin að finna þig hér. En nú er ég búin að því. Gangi þér rosa vel með markaðinn.

Gunnar: Takk fyrir kvittið.

Jóna mín:Það er örugglega mikið að gera hjá þér líka, en bara öðruvísi. Það er öðruvísi annríkið í sveitinni.

Vilborg: Akureyristingur, flest er nú til. Flottur markaður hjá Margréti.

Líney: Þetta er svona fyrir ykkur fólkið sem farið úr bænum. Það getur ýmislegt gerst hjá okkur hinum á meðan. Norðurport er til húsa á gömlu verksmiðjunum, þar sem húsgagnaverslun var til húsa nú síðast. Kaffi Talia er viðbót á Glerártorgi í nýja hlutanum inn við Potta og Prik. Eða var það pönnur? Ég skal taka betri mynd einhvern daginn og setja inn. Kaffið er mjög gott og frábært að sitja þarna og horfa á fólkið.

Annars bara hafið það gott

Anna Guðný , 9.12.2008 kl. 20:52

10 identicon

já sammála með nýja kaffihúsið er víst búin að koma þar við. Er svo þar á milli á því gamla.  Kórinn söng eins og englar flott börn.  Það er svipaður erill á okkur báðum enda sjáumst við æði oft  "þar sem tveir koma saman þar eru við " hehehehehehehe

Unnur María Hjálmarsdóttir (IP-tala skráð) 9.12.2008 kl. 21:33

11 Smámynd: Anna Guðný

Já gaman hvað ég sé þig oft þessa dagana á hlaupum.

Verðum að gefa okkur tíma til að setjast niður einn daginn.

Huld mín: Takk fyrir innlitið. Rétt  er það , alltaf nóg að gera. En þetta er allt skemmtilegt.

Anna Guðný , 9.12.2008 kl. 21:43

12 Smámynd: Líney

hehe   mér finnst ég nefnilega alls ekki vera að koma  heim þegar ég kem norður,svo margt sem hefur breystgóða nótt

Líney, 9.12.2008 kl. 22:37

13 Smámynd: Anna Margrét Bragadóttir

'Attu einhvern tíman rólega stund bara fyrir þig

Hafðu það gott nafna

Anna Margrét Bragadóttir, 11.12.2008 kl. 07:20

14 identicon

 Present Hvar er Anna

Bögga (IP-tala skráð) 12.12.2008 kl. 11:15

15 Smámynd: Anna Guðný

Ég kem aftur, ég kem alltaf aftur.

Anna Guðný , 13.12.2008 kl. 11:32

16 Smámynd: Erna

Anna mín sendi þér ljós og kærleikskveðjur í daginn 

Takk fyrir allar myndirnar,gaman að skoða

Erna, 13.12.2008 kl. 11:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Guðný
Anna Guðný

Langar að æfa mig í að setja saman texta. Sé til hvað ég gef mér mikinn tíma í það.

Sjálfstæður Herbalife dreifingaraðili. www.heilsufrettir.is/anna

Þeir sem vilja hafa samband má benda á netfang sem er: ollana@simnet.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Um bloggið

ollana

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband