4.12.2008 | 23:53
Skin og skúrir.
Það skiptast á skin og skúrir á þessu heimili eins og öðrum. Það sem ég er búin að komast að núna síðustu daga er að vegna þessa hvað ég vinn mikið í bæði andlegri og líkamlegri heilsu minni, þá höndla ég áföllin betur en ég gerði áður. Í fyrradag var ég að upplifa eina þá reynslu sem enginn vill verða fyrir. Ég lenti í árekstri. Þetta leit illa út í byrjun. Ég var með stelpurnar með mér og í hinum bílnum var mamma með tvö lítið börn. Mikið hefur nú verið vakað yfir okkur öllum. Við sluppum öll svo vel að það kom ekki einu sinni hnykkur á neitt okkar. Auðvitað urðu allir hræddir en meira var það ekki. Ég fór út að aðstoða mömmuna með börnin á meðan við biðum eftir lögreglunni og að börnin hennar yrðu sótt. Mínar sátu inni í bíl og hugguðu hvor aðra. Hann var svo sár við mig litli gaurinn. Ég nefninlega skemmdi bílinn þeirra. Sprengdi meira að segja dekkið. Ég held hann hafi nú samt alveg skilið það að þetta var alveg óvart. Jú, hann skildi það. Auðvitað var mest um vert að allir voru heilir á húfi.
Bílinn leit ekki vel út og mér leist ekkert á næstu vikur og mánuði. Það að láta gera við þennan fyrir hunduðir þúsunda var ekki alveg á jólafjárhagsáætlunni. Eða að kaupa nýjan, ef ekki væri hægt að gera við þennan. Þannig að um kvöldið var svona í kollinum á mér til skiptis þessi hugsun: Þið sluppum heil sjálf, hættu að væla út af peningum og svo sjálfsvorkunin yfir því að þurfa að herða sultarólina fastar.
Morguninn eftir fórum við svo með bílinn á verkstæði til að láta skoða og meta skaðann. Við fyrstu skoðun erum við að koma alveg ótrúlega vel út.
Þetta er bíllinn minn og eins og þið sjáið er þessi grind að framan. Kölluð Kengúrugrind. Hún er að vísu ónýt núna en mér skilst að hún hafi bjargað því sem bjargað var. Bjarni er að leita að varahlutum fyrir mig og nú er bara að krossa fingur og óska þess að þeir finnist og fyrir sanngjarnann pening. Þið kannski gerið það með mér.
Er svo heppin að hafa aðgang að bíl á meðan þetta er allt að fara í gegn. Svona til að byrja með allavega.
Annars er allt á fullu í jólaundirbúningi hér á heimili. Var í skólanum í dag í jólakortagerð með 5.bekk. Svo er það 2. bekkur á laugardag.Jólafundur á sunnudag þar sem ég þarf bæði að lesa jólasöguna og koma með mareng. Jóladanssýningar í byrjun næstu viku. Sem sagt, allt að gerast. Set inn myndir af uppákomunum mínum þegar tími gefst.
Hafið það gott og eigiði ljúfa drauma.
Anna Guðný sem þakkar almættinu fyrir það að við, mömmurnar og öll börnin sem voru með okkur séu heil á húfi.
Eldri færslur
- Febrúar 2014
- Desember 2013
- Apríl 2013
- Ágúst 2012
- Apríl 2012
- Júní 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
Tenglar
Herbalife
Vinnan mín og aðal áhugamálið.
Áhugaverð skrif.
Bloggarar sem ég vil eiga greiðan aðgang að.
Frændgarður
Familien bloggar
Lífið og tilveran
Local
- Bærinn
- Dagskráin
- N4 og Extra
- Sálarrannsóknarfélagið á Akureyri
- http://nordurland.is
- http://akureyri.net
- N4 Norðlenskar fréttir
Matur
- http://matseld.is Jens og maturinn
Persónuleg uppbygging
Vítamín fyrir heilann.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Um bloggið
ollana
Bloggvinir
- alberta
- amsa
- anitabjork
- annambragadottir
- arniarna
- atvinnulaus
- dagny65
- baldher
- bestalitla
- binnag
- daggardropinn
- drum
- duna54
- egillsv
- godinn
- gunnurr
- frost
- heidathord
- himmalingur
- hk
- ingabaldurs
- jakobk
- jeg
- jodua
- jokapje
- jonaa
- juljul
- kafteinninn
- krummasnill
- landsveit
- lauola
- ljosmyndarinn
- maggatrausta
- magnolie
- neytendatalsmadur
- mammann
- osland
- rannug
- ringarinn
- roslin
- sifjan
- 58
- snjokall
- strumpurinn
- tara
- topplistinn
- ziggi
- zeriaph
- vala
- vogin
- jona-maria
- kolbrunj
- gattin
- gledibankinn
- robertb
- bjarnijonsson
- ernadua
- curvychic
- gillimann
- minos
- hordurj
- naflaskodun
- joklamus
- vallyskulad
Athugasemdir
Anna mín mikið máttu þakka Guði að ekki fór verr. Ég og Pabbi heitinn lentum í þvi einusinni í desember að keyra ádreng á hjóli þvílik pína og kvöl en það var Guð og góðir vættir sem hjálpuðu okkur og blessuðum drengnum og foreldrum hanns. Ég hugsa stundum hvernig við hefðum hondlað jólin ef drengurinn hefði slasast mikið eða hvatt þennan heim. Anna mín eigðu góða helgi með börnunum þínum og gerið eitthvað gott saman.
Bögga (IP-tala skráð) 5.12.2008 kl. 00:12
Já satt stelpur, verndarenglarnir voru heldur betur að vaka yfir okkur þarna.
Anna Guðný , 5.12.2008 kl. 00:16
Æ elsku Anna mín Gott að engin meiddist alvarlega en auðvitað koma smá sár á sálina. Ég krossa með þér og gleymi ekki að þakka. Guð gefi þér og þínum góða nótt og góða helgi
Erna, 5.12.2008 kl. 00:22
Já gott að engin slasaðist, ég lenti einu sinni í árekstri á Glerárgötu mér að kenna ég var lengi að ná mér þótt enginn hefði slasast. Kvitt og kveðja
Guðrún Jónína Eiríksdóttir, 5.12.2008 kl. 00:34
Ufff eins gott að engin slasaðist. Vonandi eruð þið búin að hafa það gott í gær eftir svona áfall
góðar kveðjur til ykkur
Renata, 5.12.2008 kl. 07:37
Takk fyrir hlyjar kveðjur elskurnar.
Já, mikil mildi að enginn slasaðist. Allir í þokkalegu ástandi. Mamma Mia myndin var keypt í gær og svo verður partý á sunnudag, eins og lofað var.
Anna Guðný , 5.12.2008 kl. 07:48
Elsku besta vinkona bara guði sé lof fyrir að þið öll skylduð sleppa með kannski smá sár á sálartetrinu, það hverfur.
Auðvitað verður partý hjá ykkur og dansið, syngið og látið eins og asnar það er svo gott fyrir sálina.
Ljós og kærleik til ykkar
Milla og c/o.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 5.12.2008 kl. 08:31
Anna mín ég fór götuna þína á sunnudaginn og mikið fallegt að sjá. Þú er nú þokkalega jólaóð eins og ég. og Dísa á móti þér það er flott hjá henni, svona á að gera það allt eða ekkert.
Bögga (IP-tala skráð) 5.12.2008 kl. 10:00
Gott að allt fór vel og allir heilir Anna mínknús inn í helgina Elskuleg
Brynja skordal, 5.12.2008 kl. 14:04
Þvílík heppni kona. Knús og klemm úr Hrútósveitó.
JEG, 5.12.2008 kl. 15:19
Anna mín allir eru heilir og sluppu með skrekkinn, við erum sko heppnar en með Guðs hjálp.
Ásgerður
egvania, 5.12.2008 kl. 22:35
Æ.. óheppni var þetta, en þetta endar vel, vertu viss. Farðu vel með þig þú gætir fundið til eftir á. Ljós til þín ljúfust..
Sigríður B Svavarsdóttir, 6.12.2008 kl. 00:55
Sem betur fer sluppu allir ómeiddir
Knús á þig nafna mín
Anna Margrét Bragadóttir, 7.12.2008 kl. 01:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.