Leita í fréttum mbl.is

Vísnagáta.

Hér kma fleiri og nú lofa ég þessum að vera þangað til á morgun.

 

Ég er eineygð oddhvöss mær

Undir mér konuhjarta slær

Vorkomu ég vitni ber

vísa þessi er ný af mér.

 

Svar:  Nál.

 

 

Ágengra ég aftra för

Er í hlýrri prjónaspjör

Skýli veiti skólalýð

Skjól að lokum öllum býð

 

Svar: Garður.

 

Njótið


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Margrét Bragadóttir

Samdir þú þetta sjálf ?

Eigðu góðan sunnudag nafna mín ;)

Anna Margrét Bragadóttir, 8.11.2008 kl. 22:53

2 identicon

Ó mæ god ég er svo forvitin að finna út svarið!!! En nei ekki er það komið ennþá svo ég sef á þessu í nótt...Kveðja Ragga

Ragnheiður Rafnsdóttir (IP-tala skráð) 8.11.2008 kl. 23:24

3 Smámynd: Anna Guðný

Ég þakka mikið fyrir trúna sem þið hafið á mér en nei, ég samdi þetta ekki. Keypti bók með þessu á Hjálpræðishernum á föstudag á heilan 50 kr.

Ragga á ég að senda þér í sms?

Verð að bíða þangað til annað kvöld að setja inn svarir svo Jóna sjái þetta.

Anna Guðný , 8.11.2008 kl. 23:33

4 Smámynd: egvania

Anna mín ég bíð spennt eftir svarinu skoða hjá þér aftur annað kvöld.

egvania, 8.11.2008 kl. 23:44

5 Smámynd: Guðrún Jónína Eiríksdóttir

Þetta er erfitt, kanski það fyrra sé einskonar næla? En ég segi pass. Knús ínn í daginn.

Guðrún Jónína Eiríksdóttir, 9.11.2008 kl. 12:17

6 Smámynd: Anna Guðný

Dúna: Verð að segja að þú er volg.

Anna Guðný , 9.11.2008 kl. 13:02

7 Smámynd: Líney

pass

Líney, 9.11.2008 kl. 14:16

8 identicon

Hvað heitir prjóninn á peysufötunum?

Unnur María Hjálmarsdóttir (IP-tala skráð) 9.11.2008 kl. 18:20

9 Smámynd: Anna Guðný

Jóna er að missa af þessu

Veistu Unna ég veit það ekki.

Anna Guðný , 9.11.2008 kl. 18:32

10 Smámynd: JEG

Ómen ég missti af ..... buhu....

En svona er lífið þegar maður er á fullu að græja jólahangikjétið.  Jæja næ bara næst essgan. Knús og klemm mín kæra

JEG, 9.11.2008 kl. 22:49

11 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Æ missti af þessu, hef svo gaman af að reyna mig við vísnagátur!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 10.11.2008 kl. 22:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Guðný
Anna Guðný

Langar að æfa mig í að setja saman texta. Sé til hvað ég gef mér mikinn tíma í það.

Sjálfstæður Herbalife dreifingaraðili. www.heilsufrettir.is/anna

Þeir sem vilja hafa samband má benda á netfang sem er: ollana@simnet.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 201353

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Um bloggið

ollana

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband