Leita í fréttum mbl.is

Getur þetta verið? Erum við virkilega ekki komin lengra?

Ég sá það nú síðast á sunnudaginn á göngu minni um Skólavörðustíginn að a.m.k. tvær verslanir skrifuðu á ensku og settu á hurðina hjá sér að peningar Gordons Brown væru ekki gjaldgengir þar/velkomnir ....

Þessa athugasemd sá ég inn á síðunni hjá Baldri.

Á ég að trúa því að það séu einhverjir verslunareigendur á Íslandi í dag sem setja upp svona tilkynningu?

Mig langar svo til að einhver segi mér að þetta sé ekki satt.

En ef þetta er tilfellið, þá væri ég til í að vita hvaða verslanir þetta eru. Því á meðan þessir miðar eru í glugganum hef ég ekki heldur áhuga á að versla hjá þeim.

Nú er gott að hlusta á Guðjón Bergmann

Góða nótt og eigiði ljúfa drauma


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: JEG

Þar sem ég hef ekki farið um Skólavörðustíg síðan á síðustu öld þá get ég ekki sagt til um þetta. 

En hólý mólý hvað mín er dottin í blogg núna hehe.... ég er svo ekki með prentanda núna þessa dagana enda er mikið að snúast við að klára fjármálin þetta haustið að maður hugsar hreinlega í rollum hehehehe.......... En ég fer nú að henda inn einhverju gáfulegu 

Knús á þig mín kæra og eigðu ljúfa nótt sjálf. 

JEG, 21.10.2008 kl. 23:09

2 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Ein leið til að mótmæla framkomu GB. Sé ekkert að því að fólk tjái sig með þessum hætti. Sjálf sniðgeng ég breskar vörur og er ekki á leið til Englands, það land verður siðgengið á næstunni. Mín leið

Guðrún Þorleifs, 21.10.2008 kl. 23:21

3 Smámynd: Anna Guðný

já Jóna min, eitthvað í stuði núna.

Guðrún: Já sammála með að ég er ekki á leið til Bretlands á næstunni. Og mun trúlega sniðganga breskar vörur að mestu.  En ef ég kaupi ekki breskar vörur get ég þá ætlast til að bretinn kaupi fiskinn af okkur? En ef margir hugsa á þennan hátt með að banna bretum afgreiðslu. Því ekki get ég ímyndað mér að bretarnir vilji versla þar. Ja þá skil ég af hverju íslendingar eru reknir út úr verslunum í Bretlandi.

Takk fyrir innlitið stelpur minar

Anna Guðný , 21.10.2008 kl. 23:42

4 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Það er alltaf vont þegar fólk setur sig á hærri stall en náungann og algjörlega ókristilegt. Get ekki annað en verið sammála þér.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 22.10.2008 kl. 00:05

5 Smámynd: Sifjan

Gæti vel trúað þessu, í alvörunni... þetta er svona dæmigerður Íslendingsháttur...

Sifjan, 22.10.2008 kl. 00:05

6 identicon

En erum við þá eitthvað betri?

Ég leyfi mér að efast um að almenningur í Bretlandi sé sammála Brúnka í þessu. Erum við ekki að láta þetta bitna á röngu fólki með þessum aðgerðum og svo töpum við í leiðinni...

Díana (IP-tala skráð) 22.10.2008 kl. 10:48

7 Smámynd: Anna Guðný

Takk fyrir þetta stelpur.

Jóhanna: Enmitt þetta að halda að maður hafi sjálfur leyfi til að gera eitthvað sem maður vill ekki fá á sig sjálfur.

Sif: Já, einn og einn, því miður.

Díana: Nei þarna erum við því miður ekkert betri. En trúlega samt svipað og í Bretlandi, bara einn og einn.

Anna Guðný , 22.10.2008 kl. 11:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Guðný
Anna Guðný

Langar að æfa mig í að setja saman texta. Sé til hvað ég gef mér mikinn tíma í það.

Sjálfstæður Herbalife dreifingaraðili. www.heilsufrettir.is/anna

Þeir sem vilja hafa samband má benda á netfang sem er: ollana@simnet.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 201354

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Um bloggið

ollana

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband