31.7.2008 | 22:27
Af hverju er undirbúningur skemmra á veg kominn á Bakka?
Er það ekki vegna þess að hafist var handa við verkið sjálft í Helguvík áður en leyfi lá fyrir? Rifjiði þetta upp með mér. Þannig að nú er Þórunn að verðlauna þá sem byrjuðu áður en þeir höfðu leyfi til en hegna þeim sem biðu.
Endilega ef einhver veit betur en ég,segið til en þetta lítur ekki vel út í fyrstu.
Undirbúningur skemmra kominn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Febrúar 2014
- Desember 2013
- Apríl 2013
- Ágúst 2012
- Apríl 2012
- Júní 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
Tenglar
Herbalife
Vinnan mín og aðal áhugamálið.
Áhugaverð skrif.
Bloggarar sem ég vil eiga greiðan aðgang að.
Frændgarður
Familien bloggar
Lífið og tilveran
Local
- Bærinn
- Dagskráin
- N4 og Extra
- Sálarrannsóknarfélagið á Akureyri
- http://nordurland.is
- http://akureyri.net
- N4 Norðlenskar fréttir
Matur
- http://matseld.is Jens og maturinn
Persónuleg uppbygging
Vítamín fyrir heilann.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Um bloggið
ollana
Bloggvinir
- alberta
- amsa
- anitabjork
- annambragadottir
- arniarna
- atvinnulaus
- dagny65
- baldher
- bestalitla
- binnag
- daggardropinn
- drum
- duna54
- egillsv
- godinn
- gunnurr
- frost
- heidathord
- himmalingur
- hk
- ingabaldurs
- jakobk
- jeg
- jodua
- jokapje
- jonaa
- juljul
- kafteinninn
- krummasnill
- landsveit
- lauola
- ljosmyndarinn
- maggatrausta
- magnolie
- neytendatalsmadur
- mammann
- osland
- rannug
- ringarinn
- roslin
- sifjan
- 58
- snjokall
- strumpurinn
- tara
- topplistinn
- ziggi
- zeriaph
- vala
- vogin
- jona-maria
- kolbrunj
- gattin
- gledibankinn
- robertb
- bjarnijonsson
- ernadua
- curvychic
- gillimann
- minos
- hordurj
- naflaskodun
- joklamus
- vallyskulad
Athugasemdir
Usss ekki er ég inn í þessu máli sko. Er svo menningarlega fötluð hehehe og forðast svona fréttir.
En innlitskvitt á þig essgan og eigðu ljúfa helgi.
JEG, 31.7.2008 kl. 22:32
Þettar eru hrikalegar fréttir. Geðþóttaákvörðun ráðherra. Hvað ætli þingmenn Samfylkingarinnar á Norðurlandi segi núna. Hvernig ætla þeir að réttlæta þessa heimskulegu, já ég segi heimskulegu ákvörðun Þórunnar !!!!
Ég hugsa að Þórunn verði skömmuð á næsta þingflokksfundi...
Skákfélagið Goðinn, 31.7.2008 kl. 22:58
Það sem mér finnst það alvarlegasta í þessari ákvörðun en tímasetningin. Nú hafa heimamenn haft 6 mánuði til að vinna í þessu, og með þessari ákvörðun gjörsamlega traðkar hún yfir allt það starf og gerir að engu. Það var í febrúar sem skipulagsstofnun ákvað að matið þyrfti ekki. Ég verð svo reið þegar svona stórar ákvarðanir eru teknar svona seint.
Anna Guðný , 31.7.2008 kl. 23:16
Sammála. Það er allt brjálað hér í Þingeyjarsýslu.. Kellingar helvítið hefur sýnt sitt rétta andlit. Vonandi verður þetta til þess að Geir slíti stjórnarsamstarfinu og við fáum alvöru ríksstjórn með D.B og F sem þora að framkvæma og koma efnahagsmálunum á réttan kjöl.
Samfylkingin hefur sýnt það að sá flokkur er óhæfur til ríkisstjórnar setu !
Skákfélagið Goðinn, 31.7.2008 kl. 23:28
Alveg mögnuð þessi kerling, er kjaftstopp. Ríkisstjórnin er handónýt.
nonni (IP-tala skráð) 1.8.2008 kl. 00:31
Hafðu ljúfa helgi Elskuleg
Brynja skordal, 1.8.2008 kl. 11:01
Sæl Anna Guðný. Mér finnast þessi stóryrði gagnvart Þórunni ekki vera neitt sérlega málefnalegar. Það var alveg ljóst að ef Norðlendingar ætluðu sér álver næst þá þyrfit að vinna nokk betur en það sem ég sé. Þessi niðurstaða er nokkuð borðleggjandi. Árni Sigfússon og félagar á Reykjanesi hafa unnið sína heimavinnu, Norðlendigar ekki.
Hins vegar sé ég ekki að allt muni farast þó, að álver komi ekki, eða ekki strax. Vinna þarf að nokkrum þáttum:
1. Fyllilega eðlilegt er að Hafrannsóknarstofnun flytji strax til Akureyrar.
2. Efla þarf ferðaþjónustu á svæðinu öllu!
3. Efla þarf starfsemi Sjúkrahússins á Akureyri. Tryggja að þetta vel rekna sjúkrahús fái fleiri verkefni og það mun skapa ströf. Hagaðurinn er hins vegar landsins alls.
4. Háskólinn á Akureyri er frábær. Tryggja þarf starf hans og að bæta í m.a. í rannsóknarstörfum tengdum sjávarútvegi.
Það eru fullt af tækifærum fyrir norðan, hjálpumst saman að nýta þau betur.
Sigurður Þorsteinsson, 1.8.2008 kl. 17:59
Hef ekki gefið mér tíma til að skrifa meira hér í dag. Set hér inn athugasemd sem ég setti inn á bloggsíðu hjá vinkonu minni í dag. Er á fullu að skemmta mér í miðbænum í öllu fjörinu.
Það sem mér er lifsins ómögulegt að skilja er hvað það tók langan tíma fyrir umhverfisráðherra að komast að þessari niðurstöðu. Heilir 6 máuðir hafa liðið og hvað áttu heimamenn á Húsavík að gera á meðan? Sitja og bora í nefið? Áttu þeir að búast við þessari ákvörðun og gera ekkert í einhvern x tíma og bíða? Og hvað langan tíma þá? Og hvernig er þá með þessa skipulagsstofnun, er hún þá óþörf ? Mér finnst svipuð lykt af þessu máli og þegar nefndir eru að mæla með vissum einstaklingi í starf og svo kemur einhver ráðherra og hunsar það og ræður einhvern allt annan. Þýðir þetta þá við erum með starfandi stofnanir og nefndir sem eru óþarfar, eða allavega að vinna einhver verk sem skipta engu máli? Getum við þá ekki lagt niður eitthvað af þeim og sparað þar? Ég tek það fram að ég er alls ekki á móti því að það fari fram umhverfismat en skil samt ekki af hverju það þarf á Bakka en ekki í Helguvík. Ástæðan sem gefin er að að það sé of seint. Of seint?? Ekkert skrýtið og mjög hentugt fyrir suðurnesjamenn sem byrjuðu verkið sjálft áður en leyfi lá fyrir. Á meðan heimamenn á Húsavík voru að vinna heimavinnuna byrjuðu suðurnesjamenn starfið. Og þeir komast bara upp með það.
Anna Guðný , 1.8.2008 kl. 18:16
Ok Sigurður,kannski var ég of fljót á mér í fyrri færslu , en ég bakka ekki með tímann. Það segir mér enginn að það hafi þurft hafi 6. mánuði til að komast að þessari niðurstöðu. Og það er helst það sem ég er reið út af. Áttum við virkilega að búast, ja svona alveg eins, við því að ákvörðun skipulagsstofunar yrði hneggt? Sumir segja, eins og þú að heimamenn á Húsavík hafi ekki unnið heimavinnuna. Svo segir aðrir að þeir hafi ekki átt að gera neitt nema vera komnir með leyfið.
Ég er mikið sammála þér í þessari upptalningu þinni, skoða hana betur þegar ég kem af djamminu.
Anna Guðný , 1.8.2008 kl. 18:40
Sigurður. Málið er ekki svona einfalt. Því er einmitt öfugt farið. Unnið hefur verið að stóriðju uppbyggingu í um 10 ár ! á Húsavík. Það hefur verið farið mjög faglega að undirbúningi þessa verkefnis og menn hafa flýtt sér hægt og vandað til verks.
Helguvíkur dæmið er 2ja ára gamallt !! Eða hvað ? Enda kemur það í ljós að þar var engin heimavinna unninn. Samt sleppa þeir í gegn...... Er það af því að staðsetningin er svo nálægt Reykjavík ? Það skildi þó ekki vera !
Þetta gremst okkur norðanmönnum mjög..
Allt hefur verið unnið fyrir aftan bak á suðurnesjunum en samt sluppu þeir í gegn.
Það var verið að vinna að umhverfismati fyrir borholurnar og orkuverin, hér fyrir norðan, en í sitt hvoru laginu.
Nú þarf að vinna eitthvað af vinnunni uppá nýtt með meiri kostnaði og fyrirhöfn og óþarfa tímaeyðslu !! Tíma sem við höfum ekki ! Núna er það líka nokkuð öruggt að Bakki þarf að kaupa mengunarkvóta en Helguvík ekki vegna tafanna sem verða á verkin eftir þessa heimskulegu ákvörðun Þórunnar
Ég tek líka eftir því að atvinnutækifærin sem þú villt vinna að, eru öll á Akureyri.
Hvers vegna ? Dettur þér ekki neinn annar staður í hug ? Hvað með Húsavík og Þingeyinga ???
Það er ekki svo að ekkert hafi verið gert í atvinnumálum í Þingeyjarsýslu undanfarin ár. Ég hugsa að allt hafi verið reynt til þess að skapa ný störf, en bankakerfið vinnur gegn atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni, því þeir vilja ekki lána pening útfyrir suðvestur-hornið nema gegn ríkisábyrgð !!!!
Ferðaþjónustan er það eina sem hefur vaxið, en gallin við hana er sá að það eru ekki heilsársstörf. Bara nokkrar vikur á ári.
Skákfélagið Goðinn, 2.8.2008 kl. 11:40
Takk fyrir þetta Hermann. Ég var búin að heyra eitthvað um þetta en þekkti ekki nóg til, til að geta svarað Sigurði.
En mikið rétt með atvinnutækifærin, öll á Akureyri.
Anna Guðný , 2.8.2008 kl. 11:47
Stór orð notar þú Hermann en þú hefur frjáls þína skoðun. Mjög gott að svara Sigurði sem virðist ekki hafa vitað að álverið er að rísa á Bakka við Húsavik en ekki við Eyjafjörð, en að sjálfsögðu hafa allir á svæðinu áhuga á þessu vegna samvinnu með svo margt sem kemur uppá í svona framkvæmdum.
Árni Sigfússon og félagar hafa unnið gott starf á Suðurnesjum, það verður eigi af þeim skafið ekki bara hvað álver snertir heldur alla uppbyggingu aðra, þeir láta verkin tala. Allir mega eiga það sem þeir hafa gert vel.
Ég held að ef upp er staðið þá erum við jafnt komnir í undirbúningi Helguvík og Bakki ef allt er tiltekið, en það verður eigi af því skafið að það er verið að mismuna landshlutum og viljum við fá skýringu á því.
Takk fyrir stuðninginn Anna Guðný mín,
Kærar kveðjur Milla
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 2.8.2008 kl. 15:41
Já, ég nota stór orð því ég er bæði reiður og svekktur fyrir hönd Húsvíkinga og Þingeyinga.. Er ekki þannig farið með þig ?
Skákfélagið Goðinn, 2.8.2008 kl. 20:20
Takk fyrir komuna Jóna og Brynja.
Takk fyrir innlitið Milla mín. Já, hann Hermann frændi minn notar stór orð ef honum finnst hann þurfa á þeim að halda.
Anna Guðný , 3.8.2008 kl. 00:33
Jú jú Hermann ég er öskureið, ekki bara út af þessu máli heldur út af öllum málum, svo slæmt er það að um daginn vorum við í hrókasamræðum heima hjá mér, ég fór upp á háa cið, og þá tók litla ljósið í höndina á ömmu sinni og sagði amma af hverju ertu svona reið, svo maður verður víst að passa sig.
Anna guðný býr hann Hermann frændi þinn kannski rétt hjá mér?
Knús kveðjur
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 3.8.2008 kl. 10:49
Jú, jú Milla min, hann Hermann frændi býr mun nær þér en mér.
Anna Guðný , 3.8.2008 kl. 11:48
Gat mér þess til. Knús
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 3.8.2008 kl. 12:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.