Leita í fréttum mbl.is

Engar nýjar fréttir.

Auðvitað er allt reynt. Hvernig auglýsingar sjáum við á undan skemmtiþáttum helst íslenskum eða vinsælum erlendum? Snakk og gos.Og pizzur sem hægt er að panta núna!!!! Og hvaða auglýsingar tröllríða hér öllu margar, margar vikur fyrir jól. Leikföng, keikföng og aftur leikföng.

Og láta sér koma á óvart að það sé meira hjá Ruv. Það hafa einfaldlega fleiri börn aðgang að  Ruv en Stöð 2. En af hverju auglýsa ekki t.d. grænmetisbændur á þessum tíma? Kannski er það of dýrt, veit ekki.  En sé fyrir mér flotta bakka fulla af sjónvarpsnammi í formi grænmetis og ávaxta. Geri þetta oft fyrir mín börn. Og börn jafn og fullorðnir hafa mikið meiri lyst og finnst skemmtilegra að borða ef búið er að skera niður og raða á bakka. Ég er nærri viss um að ef við erum duglegri að gera þetta þá taka þau síður eftir þessum óhollustuauglýsingum. Persónulega finnst mér leiðinlegast þessar vikur fyrir jól með leikfangaauglýsingarnar. Þetta er eitthvað svo endalaust. Bæði auglýsingatíminn í hvert skipti og svo aftur og aftur. Allt gjörsamlega ómissandi í barnaherbergið. Ég t.d. á eina 6.ára sem ef hún gæti myndi vilja eiga ja bara eitt af hverju öllu því sem sést. Þá getið þið rétt ímyndað ykkur hvort mér finnst þessi tími ekki skemmtilegur. Annars held ég að fullroðnir láti alveg eins og jafnvel frekar plata sig með auglýsingum. Samanber fótanuddtæki og fleira.

Eigið góðan dag


mbl.is Skyndibiti með barnaefninu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Guðný
Anna Guðný

Langar að æfa mig í að setja saman texta. Sé til hvað ég gef mér mikinn tíma í það.

Sjálfstæður Herbalife dreifingaraðili. www.heilsufrettir.is/anna

Þeir sem vilja hafa samband má benda á netfang sem er: ollana@simnet.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Um bloggið

ollana

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband