Leita í fréttum mbl.is

Biluð þvottavél á laugardegi.

Hvað dettur ykkur fyrst í hug þegar þið heyrið það? Það fyrsta sem mér dettur í hug er: Staflarnir frá síðasta þvotti minnkar ekki heldur stækkar. Eins gott að vera með margar körfur. Þú biður börnin um að passa sig extra vel þessa dagana og sulla nú ekki niður á sig. Og endilega fara nú aftur í dag í buxurnar sem þau voru í í gær. Muna eftir að  taka íþróttafötin úr pokanum og hengja upp, sundfötin líka. Sokkar, ok þú notar ekki sokkana nema einn dag og þarf þá jafnvel að skola úr einu og einu pari. Af hverju í ósköpunum búa svona margir sem ég þekki á þriðju hæð í blokk? Ég nenni ekki að labba með óhreina þvottinn minn þangað.

Ég var sem sagt byrjuð að plana þetta allt á mánudagsmorgun áður en ég hringdi á verkstæðið. Því enginn veit hvað tekur marga daga að fá viðgerðarmann og svo þarf kannski að fara með vélina á verkstæðið ef þetta er eitthvað meira. og þú getur alveg reiknað með að vikan færi í þetta.

En annað koma nú í ljós.

Þeir hafa verið eitthvað syfjaðir strákarnir á Ljósgjafanum þarna um morguninn. Allavega svaraði Baldvin ekki fyrr en í annað skiptið. Sagði þó að þeir væru flestir þokkalega vel vaknaðir. Hann hefur trúlega séð fyrir sér óhreinatausstaflana heima hjá mér. Allavega ætlaði hann að reyna að fá einhvern til að koma sama dag og ja allavega sjá hvað þetta væri mikið.

Jú, ég kem heim heim um hádegi og fljótlega þá er hringt. Viðgerðarmaðurinn mættur á staðinn. Annað hvort er hann skyggn eða mér hefur tekist að útskýra fyrir Baldvin vel hvernig vélin hegðaði sér. Allavega  er maðurinn með varahlutina með sér, skiptir um og er farinn fyrir kl. 14.00.

Sem þýðir hvað? Jú, það tók innan við sex klukkutíma frá því ég hringdi á verkstæðið og þangað til vélin var byrjuð að mala (hefur varla stoppað síðan). Ég veit ekki hvað þið kallið þetta en ég kalla þetta:   Rosalega flotta þjónustuHappy

Prik vikunnar fær sem sagt Ljósgjafinn.

Eigiði góðan dag


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju með nýja bloggið. Mun örugglega fylgjast með þér.

 kv, Helga K

Helga Karlsdóttir (IP-tala skráð) 13.2.2008 kl. 23:16

2 identicon

Sæl Anna mín og til hamingju með að vera komin í bloggmenninguna, ég á eftir að fylgjast með þessari síðu hjá þér ;)

Kveðja Kolla 

Kolla (IP-tala skráð) 13.2.2008 kl. 23:20

3 Smámynd: Lindan

Blessuð...

Gaman að sjá að þú ert farin að skrifa hérna.

 kv

Lindan

Lindan, 14.2.2008 kl. 15:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Guðný
Anna Guðný

Langar að æfa mig í að setja saman texta. Sé til hvað ég gef mér mikinn tíma í það.

Sjálfstæður Herbalife dreifingaraðili. www.heilsufrettir.is/anna

Þeir sem vilja hafa samband má benda á netfang sem er: ollana@simnet.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Um bloggið

ollana

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband