25.1.2010 | 22:47
Ef ekki eru til peningar.
Treysti stjórnendur RÚV sér ekki til að reka almannaútvarp og sjónvarp samkvæmt lagaramma og vilja þjóðarinnar, þá ber Páli Magnússyni og öðrum yfirmönnum RÚV að segja af sér hið fyrsta, segir í ályktun sem var samþykkt í kvöld.
Er það ekki akkúrat þetta sem þjóðin er að reyna að venja sig af? Eyða um efni? Það er endalaust hægt að segja að það sé gáfulegra að spara í þessu til að eyða í öðru. En ástandið á Íslandi í dag er bara þannig að það þarf að spara í öllu. Kvikmyndagerðarmenn: Talið við okkur aftur þegar fólkið sem getur ekki borgað af húsnæðislánunum sínum, á varla fyrir mat, hefur ekki efni á að fara í bíó samþykkir að herða enn sultarólina þannig að hægt sé að setja þá peninga sem á vantar í kvikmyndagerð á Íslandi. Því miður, eins og nauðsynlegt er nú að viðhalda því sem áunnist hefur í kvikmyndagerð á Íslandi síðustu ár, þá eru bara ekki til peningar núna. Kassinn er tómur.
2007 er löngu liðið. Helstu styrktaraðilar menningar á Íslandi eru flúnir úr landi með peningana.
Nú er komið 2010 og nú ætlum við að hegða okkur eins og "hagsýnar húsmæður"
Vonandi réttir svo kvikmyndagerðin , eins og allt annað, úr kútnum eftir nokkur ár og blómstrar sem aldrei fyrr.
Fordæmislaus niðurskurður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Febrúar 2014
- Desember 2013
- Apríl 2013
- Ágúst 2012
- Apríl 2012
- Júní 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
Tenglar
Herbalife
Vinnan mín og aðal áhugamálið.
Áhugaverð skrif.
Bloggarar sem ég vil eiga greiðan aðgang að.
Frændgarður
Familien bloggar
Lífið og tilveran
Local
- Bærinn
- Dagskráin
- N4 og Extra
- Sálarrannsóknarfélagið á Akureyri
- http://nordurland.is
- http://akureyri.net
- N4 Norðlenskar fréttir
Matur
- http://matseld.is Jens og maturinn
Persónuleg uppbygging
Vítamín fyrir heilann.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Um bloggið
ollana
Bloggvinir
- alberta
- amsa
- anitabjork
- annambragadottir
- arniarna
- atvinnulaus
- dagny65
- baldher
- bestalitla
- binnag
- daggardropinn
- drum
- duna54
- egillsv
- godinn
- gunnurr
- frost
- heidathord
- himmalingur
- hk
- ingabaldurs
- jakobk
- jeg
- jodua
- jokapje
- jonaa
- juljul
- kafteinninn
- krummasnill
- landsveit
- lauola
- ljosmyndarinn
- maggatrausta
- magnolie
- neytendatalsmadur
- mammann
- osland
- rannug
- ringarinn
- roslin
- sifjan
- 58
- snjokall
- strumpurinn
- tara
- topplistinn
- ziggi
- zeriaph
- vala
- vogin
- jona-maria
- kolbrunj
- gattin
- gledibankinn
- robertb
- bjarnijonsson
- ernadua
- curvychic
- gillimann
- minos
- hordurj
- naflaskodun
- joklamus
- vallyskulad
Athugasemdir
þetta er með því heimskulegasta sem ég hef lesið!
helduru að kvikmyndagerðamenn séu í þessu bara svona í sínum frístundum, um helgar ogsvona eða þegar þeir eru ekki á sjónum? þetta er auðvitað líka fólkið sem þú ert að vísa í og getur ekki greitt af sínum lánum né aflað sér matar!
þetta er aðrbær bissness sem skilar því sem það fær frá ríkinu fjórfallt tilbaka!
olli (IP-tala skráð) 26.1.2010 kl. 01:46
Þetta styrkjakerfi er þannig upp byggt að ca 30-40% af framleiðslukostnaði við Íslenska kvikmynd kemur frá kvikmyndamiðstöð og restin yfirleitt erlendis frá, og skapar um 300 störf á ári. Oftast eru skilyrði hjá erlendu sjóðunum fyrir því að myndir þurfa fyrst að fá velyrði frá Íslenska sjóðnum og/eða sjónvarpinu. Hver króna sem sett er í kvikmyndagerð á Íslandi kemur til baka amk þreföld til fjórföld.
Ég vinn við kvikmyndagerð og hef gert það í nokkuð mörg ár þannig að ég er ekki hlutlaus, en þetta er samt ósköp einfalt reikningsdæmi. Hvort viljum við halda áfram að skapa reynslu og halda fólki í vinnu í þessum geira og margfalda þessa fáu aura sem við eigum, eða eyða snöggvast öllu sem við eigum í atvinnuleysisbætur? Gaman væri að sjá hversu langan tíma tæki að "eyða" þessum sparnaði ef 300 manns fara á bætur á morgun.
Þetta er einfaldlega spurning um að margfalda peninga eða henda þeim.
Geir (IP-tala skráð) 26.1.2010 kl. 04:20
Það þarf að spara allsstaðar og þá líka í kvikmyndageiranum, ástandið er einfaldlega þannig, þar verða/eiga allir að sitja við sama borð. Með því fyrsta sem fólk sparar við sig þegar ástandið í fjármálum þess versnar er nú til dæmis bíó og leikhúsferðir...
Jónína Dúadóttir, 26.1.2010 kl. 07:36
Aldrei hefur mín fjölskylda greitt eins mikið til RUV og síðasta ár, og aldrei verið til eins lítill peningur hjá þeim, bölvað sukk og svínarí þarna eins og annarsstaðar, puff
Ásdís Sigurðardóttir, 26.1.2010 kl. 21:31
Geir: Takk fyrir upplýsingarnar. Asskoti skítt að ágóðinn af þeim myndum sem hafa verið framleiddar hér hafi ekki verið settur í sjóð og síðan nýttur til að styrkja áframhaldandi framleiðslu. En þeir peningar hafa auðvitað farið í sömu hítina og allt annað.
Jónína: Jamm.
Ásdís: Ekki veit ég hvað mín fjölskylda hefur greitt til Ruv á síðasta ári. Ég væri alveg til í að vera með puttana í því til hvers þeir peningar eru notaðir. Myndi eflaust forgangsraða á annan hátt en þeir. En örugglega sukk og svínarí þarna eins og annarstaðar.
Er það ekki leiðin sem ríkisstjornin vill fara í dag? Ríkisvæða sem flest? Við vitum hvar gerist þá.
Takk fyrir innlitið.
Anna Guðný , 26.1.2010 kl. 22:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.