Leita í fréttum mbl.is

Tómstundir barna.

Hvað skyldu margir foreldrar vera í sömu stöðu og ég?

Ég á þrjú börn. Sem betur fer vilja þau öll stunda íþróttir. En misjafn er smekkurinn. Nú er ég enn einu sinni komin í þá aðstöðu að þau æfa hjá þrem ólíkum íþróttafélögum. Hvað þýðir það?

Jú, fullt gjald allsstaðar. Enginn afsláttur. Sú eldri er í dansi, hann í miðið er í sundi. Sú yngri var í sundi en er að færa sig yfir í Karate. Auðvitað finnst mér samt frábært að þau finnir sér eitthvað áhugamál.

Af hverju í ósköpunum er ekki hægt að setja þessar íþróttir inn í skólakerfið eða allavega bæjarkerfið  og þá sitja allar fjölskyldur við sama borð, óháð ólíkum áhugamálum barna sinna. Væri frábært ef þau væru bara að koma heim svona um fimmleytið, búin í öllu.

Veit ekki betur en að sveitarfélögin séu að styrkja þessi félög um stórar upphæðir á hverju ári hvort eð er.

En fyrst ég er á annað borð farin að tala um íþróttafélög þá er annað sem mér hefur fundist svo óréttlátt. Flest allar íþróttagreinar ganga út á það að keppa og fara í keppnisferðir. Það er allt í góðu fyrir þá sem það vilja. En það vilja bara ekki allir. Sumar fjölskyldur hafa bara ekki tækifæri til þess. Sumar fjölskyldur hafa meira að segja ekki efni á því. Sumir vilja bara koma á æfingu tvisvar í viku. En það er ekki viðurkennt. Æfingum fjölgar þegar börnin eldast og það á að gera allar að atvinnumömmum.

Væri gaman ef einhverjir skrifuðu skoðun sína um þessi mál


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ég hef engu við þetta að bæta, nákvæmlega það sem mér hefur alltaf fundist. Og þau sem hafa ekki áhuga á að keppa, vilja bara vera með eða hreinlega ekki til peningar í það, þau eiga það til að heltast úr lestinni... eðlilegaDæmi um verulega rangar áheyrslur... þetta á að ganga út á hreisti og heilbrigði...

Jónína Dúadóttir, 15.1.2010 kl. 06:19

2 Smámynd: Birna Dúadóttir

Hún dóttir mín hefur einmitt verið að lenda í þessu, td með boxið, þrusugóðar æfingar, en alltaf þetta keppnis-eitthvað. Það eru bara ekki allir fyrir það. Það ætla ekki allir að verða meistarar í einhverju sporti. Núna er hún að æfa aðra bardagaíþrótt, sem er ekki með þessu keppnis formi og er mjög ánægð. Ég ætla samt ekki að fara út í þetta með kostnaðinn, það er ekki alveg í lagi

Birna Dúadóttir, 15.1.2010 kl. 09:00

3 identicon

Jammm Anna þetta er ekkert spaug ....  Þú ættir að taka þetta upp í komandi kosningum!!!!

Unnur María Hjálmarsdóttir (IP-tala skráð) 16.1.2010 kl. 02:45

4 Smámynd: Anna Guðný

Já spurning um að tala við hana Huld okkar.Nú er hún komin í framboð.

Systur : Sammála , takk fyrir innlitiið.

Anna Guðný , 16.1.2010 kl. 23:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Guðný
Anna Guðný

Langar að æfa mig í að setja saman texta. Sé til hvað ég gef mér mikinn tíma í það.

Sjálfstæður Herbalife dreifingaraðili. www.heilsufrettir.is/anna

Þeir sem vilja hafa samband má benda á netfang sem er: ollana@simnet.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 201286

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Um bloggið

ollana

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband