Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Alveg að fara í gang.

Góðan dag hér á fallegum degi á Akureyri. 4 gráður í - í morgun. Veturinn aðeins að minna á sig. Annars er óskaplegt myrkur þessa dagana. Vorum að koma heim hér á laugardagskvöldið, ég og börnin og fannst okkur hann ansi svartur.

Lítið hef ég bloggað nú síðustu mánuði. Eins og svo margir er ég föst á Fésinu. Þar hef ég fundið fólk, gamla vini og kunningja út um allan heim. Er virkilega gaman að endurnýja kunningsskapinn. Var t.d. að tala við hana Heiðu frá Dalvík  í gærkveldi. Hún  býr í bandaríkjunum og hefur búið í yfir 15 ár minnir mig. Hún var að koma því í verk að fá sé skype og því gátum við spjallað eins lengi og við vildum án þess að hugsa um kostnað. Þvílíkur munur.

Ég tók upp á því í haust að skella mér í skóla. Byrjaði í VMA. Tek til að byrja með 6 einingar eða tvær námsgreinar. Íslenska og stærðfræði varð fyrir valinu. Mikið var nú skrýtið að setjast á skólabekk aftur eftir 30 ár. Ég byrjaði í 102 í báðum greinum en komst svo að því að stærðfræðin var of erfið fyrir mig og færði mig í 193. Það voru  góð skipti. Ég hef nægan tíma og er því best að ná grunninum eins vel og ég get. Er ég búin að komast að því að það að fara í stærðfræði 193 er það gáfulegasta sem ég hef gert lengi. Alveg sama þó ég fari ekki áfram þá á þessi önn eftir að nýtast mér mikið í sambandi við heimanám hjá börnunum. Ég gat aldrei aðstoðað elstu mín eftir að hún fór í 7. bekk. Núna aftur á móti er ég búin að læra smávegis um flest það sem kennt er í grunnskólanum og er því mun betur undirbúin til að aðstoða strákinn þegar hann fer svo í 7. á næsta ári. Mín ráðlegging er sú að allir þið foreldrar sem hafið tök á  og langar til að efla sjálfstraustið í sambandi við stærðfræðina og viljið getað aðstoðað börnin ykkar við heimanámið endilega takið eina önn í framhaldsskóla. 193 er léttasta námið og það dugar langa leið.

Það er búið að vera virkilega skemmtilegt að glíma við íslenskuna. Ég kveið fyrir því að lesa heila bók og þurfa svo að taka krossapróf upp á einar 40 spurningar minnir mig. En það fór vel . Við erum svo búin að læra heilmikið í ritgerðarskrifum t.d. taka viðtöl og breyta þeim í ritgerð. Þetta er eitthvað sem hentar mér vel. Svo þegar kemur að t.d. ljóðagreiningu þá fer í verra. Mér finnst það ægilegt torf. Er þó aðeins farin að skilja þetta en svo á eftir að koma í ljós hvernig mér gengur á prófi.

Krakkarnir sem eru með mér í tíma eru flest 16. ára og gætu því verið börnin mín miðað við aldur. Ég var smá stressuð fyrst en svo hefur held ég bara gengið mjög vel. Það er þó bara að hafa áhrif í íslenskunni þar sem við vinnum ekkert í hópvinnu í stærðfræðinni. Þetta eru auðvitað allt meira og minna frábærir krakkar. Þó er þarna einn sem ég væri til í að hann fattaði að heimurinn snúist ekki um hann einan. Tengingarnar við suma krakkana eru skemmtilegar. T.d. er ein stóra systir bekkjarbróðis sonar míns. Önnur er svo dóttir gamallar skólasystur minnar.

Ég gæti sagt margar skemmtilegar sögur af náminu en ætli ég láti það ekki bíða betrri tíma. Nema jú að ég er mjög ánægð með báða kennarana sem ég fékk. Ekki það að þau eru örugglega öll mjög góð en auðvitað er misjafnt hvað passar hverjum.

Læt þetta dug í bili. Er svo stolt af því að hafa drifið mig af stað aftur í skrifin. Er alveg viss um að bloggskrifin hér síðasta ár er búið að hjálpa mér mikið í íslenskunni.

 

Hafið það gott í dag og aðra daga.


Og engir íslendingar nálægir?

Þeir í ameríkunni eru ekki jafnheppnir og bretar og hollendingar. Þeir hafa enga íslendinga til að kenna um og borga brúsann.
mbl.is 9 bandarískir bankar féllu í gær
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eins gott

að segja mínum ekki frá þessu. Hann heitir nefninlega Davíð og er akkúrat á þeim aldri sem væri alveg til í að renna til Reykjavíkur. Ekki verra að hafa ástæðu. Wink
mbl.is Davíð fær ókeypis borgara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú veit ég hvað

væri gaman að bjóða eiginmanninum uppá á föstudagskvöldið í höfuðborginni. Við ætlum nefninlega að skella okkur í dekurferð til borgarinnar um helgina. Er ekki tilvalið að skella sér á Listasafnið og sjá öll herlegheitin? Held það bara. Svo eigum við laugardag og sunnudag eftir. Hvað væri gaman að gera þá? Eru þið með hugmynd? Svona án þess að það kosti handlegg af.

 


mbl.is Yoko Ono blæs til tónleika
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er ekki bara regnhlífin.

Það er líka blaðamaðurinn. Hann er einstaklega léttur og skemmtilegur.

Gaman að fá svona fréttir annað slagið.


mbl.is Ný regnhlíf vekur kátínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú áttaði ég mig á því

hvað mér fannst vanta í Is it true hjá Jóhönnu Guðrúnu.

Það er þetta. Þvílíka rödd.

 


Það getur verið

að ástæðan fyrir þessum hraðahindruðum sé illskiljanleg. En hún er nú samt þarna og þá keyri maður varla framhjá henni til að klessa á bíl sem kemur á móti? Eða hvað? Það er óskiljanlegt. Smile
mbl.is Óskiljanlegar hraðahindranir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fegin er ég.

Mikið er ég fegin að við tókum okkar niður í síðustu viku. Hefði ekki viljað hafa það á samviskunni að það fyki á nágrannana. Þær eru ótrúlega lúmskar þessa rokur sem koma.
mbl.is Trampólín fauk á bíl og skemmdi hann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Anna Guðný
Anna Guðný

Langar að æfa mig í að setja saman texta. Sé til hvað ég gef mér mikinn tíma í það.

Sjálfstæður Herbalife dreifingaraðili. www.heilsufrettir.is/anna

Þeir sem vilja hafa samband má benda á netfang sem er: ollana@simnet.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Um bloggið

ollana

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband