23.1.2009 | 16:51
Ennþá flottur í læknaslopp?
![]() |
Snýr Clooney aftur í ER? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.1.2009 | 14:54
Hvaða tími væri betri?
Hörður minn, þú kannski lætur okkur vita hvaða tími hentar ykkur best ef þarf að koma með tilkynningar.
Hrædd um að hann hafi aðeins hlaupið á sig núna. En það er einmitt svo auðvelt þegar einhver kemur rjúkandi með mikrafón, treður upp í andlitið og vill fá svar núna.
![]() |
Hænuskref í rétta átt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
23.1.2009 | 14:51
Ég vil, kannski fæ ég ekki allt sem ég vil!!
Auðvitað vill hann halda kosningar fyrr. Hann veit sem er að nú í augnablikinu er staða þeirra sterk. En um leið og fólki er gefinn tími til að hugsa og kanna hvað annað er í boði , þá á það eftir að breytast.
Svona um það bil vildi ég sjá þetta.
Ég get sætt mig við kosningar í maí en þó með því skilyrði að tíminn fram að þeim sé vel nýttur. Það á að nota tækifærið og stokka þetta kerfi okkar upp. Ég vil ekki þurfa að kjósa heilan flokk, bara af því að mér finnst einhver frábær manneskja vera í honum. Heldur vil ég getað kosið persónur sem ég treysti til starfsins.
Það sem ég vildi sjá núna er að sjónvarpið verði notað mikið til kynningar. Öll framboð geri kynningarþætti þar sem koma fram helstu áherslumál þeirra , hvernig þeir líti á ástandið í dag og hvaða lausnir þeir séu með. Ég nenni ekki að hlusta á 150 fréttatíma og umræðuþætti til að ná að heyra aðalatriðin. Ég vil að sömu spurningar séu lagðar fyrir öll framboð og vil að þau svari þeim svo ég geti námundað mig við það framboð sem er næst minni skoðun. Ég vil ekki x á happdrættismiða. Ég vil líka fá að vita hvaða einstaklinar séu í framboði.
Ég vil svo margt, hvað viljið þið?
![]() |
Steingrímur J.: Sleginn út af laginu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
23.1.2009 | 11:10
Föstudagur til fjár!
Hm.. ekki málið hér.Frekar til eyðslu hér í dag en það er auðvitað fjárfesting til framtíðar.
Allt í gangi hér eins og venjulega.
Yngri börnin í skólanum. Aðalmálið þar þessa dagana er undirbúningur fyrir árshátíð sem verður um næstu helgi. Mér skilst að ég eigi að fjárfesta í englavængjum í dag. Er kannski einhver Ak. sem les þetta og á vængi sem getur lánað okkur? Frekar stór fjárfesing fyrir ekki lengri tíma. Vængir eru sem sagt ekki notaðir mikið hér svona dags daglega.
Unglingurinn liggur í tannlæknastólnum á meðan ég skrifa þessi orð. Verið er að setja á hana spangir. Hún er búin að vera með beisli í tæpt ár minnir mig og hefur staðið sig eins og hetja. Bitið sem átti að rétta sem mest er orðið rétt. Þannig að hún fær 10+.
Eiginmaðurinn var að vakna á Landspítalanum. Svaf að vísu ekki mikið í nótt. Líf og fjör á deildinni. Hann var í skurðaðgerð þar í gær. Allt gekk vel og hnífurinn virkaði vel. Hann kemur heim með flugi í kvöld. Það þýðir að við bjóðum vonandi upp á ný líf á þessu heimili hér eftir, líf án verkja. Mikið hlakka ég til. Strengirnir voru heldur betur farnir að styttast. Verð samt að viðurkenna að ég er ekkert viss um að hann verði skemmtilegur sjúklingur.Hann á nefninlega eftir að vera heima í 6-8 vikur. Talið við mig eftir 4. Nú, eða hann. Við erum vön því að hann sé á sjónum og því er þetta alveg ótrúlega mikil breyting. Og þá af því hann getur svo lítið gert.
Ég fór á fund í Brekkuskóla hér á Ak. í gærkveldi og segi betur frá honum seinna i dag ef ég gef mér tíma. En mikið gerði hann fyrir mig. Ég náði að fylla á bjartsýnistankinn. Það var eitthvað farið að minnka í honum. Aðallega er það vegna þess að ýmislegt sem gengur hefur á í þjóðfélaginu síðustu daga hefur gert mig sorgmædda. Þeir sem hafa fylgst með blogginu mínu og athugasemdum hjá öðrum vita hvað ég er að tala um. En þarn kom saman, veit ekki hversu margir, kem með tölu í dag. Allir jákvæðir og brosandi tilbúnir í að taka á málum.
Hafið það gott í dag
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
21.1.2009 | 18:34
Óska þér góðs bata.
Viltu nú gera það fyrir sjálfa þig og okkur hin að taka þér veikindafrí og hugsa um þig fyrst og fremst. Þú kemur svo inn aftur þegar þú ert tilbúin.
Gangi þér vel Ingibjörg
![]() |
Ingibjörg Sólrún væntanleg heim í vikulok |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
21.1.2009 | 12:03
Vill íslenska þjóðin kosningar núna?
Veit að stórt er spurt, veit líka að þeir sem hæðst heyrist í vilja kosningar núna. En vill almenningur kosningar núna? Er meira en helmingur þjóðarinnar til í kosningar núna? Væri gaman að heyra hvort fleiri en ég séu með þá tilfinningu að stór hluti þjóðarinnar vill að þessi ríkisstjórn taki til eftir sig en fái til þess aðstoð þeirra sem þekkja betur. Að kosningar verði ekki fyrr er i haust.
Hvað segiði um það?
Ég frábið mér allan dónaskap hvort sem hann beinist til mín eða annarra og hendi út öllum athugasemdum sem mér finnst fara yfir strikið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
21.1.2009 | 08:45
Kjóllinn stórmál.
Það að kjóllinn skuli vera svona stórt mál er bara hið besta mál. Af hverju? Jú, þá gerðist ekkert alvarlegra á meðan, t.d. að einhver hafi reynt að ráða hann af dögum.
Gulur eða ekki, ef hún er ánægð með hann.
![]() |
Klæðnaður Michelle Obama umdeildur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
21.1.2009 | 01:23
Mótmælin í dag séð úr augum frænku
Langar að setja inn færslu sem ég las áðan hjá henni Jónu Maríu frænku minni.
Mér fannst hún svo flott. Endilega kíkið á.
http://jona-maria.blog.is/blog/jona-maria/entry/777598/#comment2125381
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.1.2009 | 13:32
Hm...... Af hverju
![]() |
Flóknir gemsar pirra notendur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
18.1.2009 | 18:44
Bíddu, hann er ekki byrjaður!!

![]() |
Obama aldrei vinsælli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Eldri færslur
- Febrúar 2014
- Desember 2013
- Apríl 2013
- Ágúst 2012
- Apríl 2012
- Júní 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
Tenglar
Herbalife
Vinnan mín og aðal áhugamálið.
Áhugaverð skrif.
Bloggarar sem ég vil eiga greiðan aðgang að.
Frændgarður
Familien bloggar
Lífið og tilveran
Local
- Bærinn
- Dagskráin
- N4 og Extra
- Sálarrannsóknarfélagið á Akureyri
- http://nordurland.is
- http://akureyri.net
- N4 Norðlenskar fréttir
Matur
- http://matseld.is Jens og maturinn
Persónuleg uppbygging
Vítamín fyrir heilann.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.9.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 201821
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Um bloggið
ollana
Bloggvinir
-
alberta
-
amsa
-
anitabjork
-
annambragadottir
-
arniarna
-
atvinnulaus
-
dagny65
-
baldher
-
bestalitla
-
binnag
-
daggardropinn
-
drum
-
duna54
-
egillsv
-
godinn
-
gunnurr
-
frost
-
heidathord
-
himmalingur
-
hk
-
ingabaldurs
-
jakobk
-
jeg
-
jodua
-
jokapje
-
jonaa
-
juljul
-
kafteinninn
-
krummasnill
-
landsveit
-
lauola
-
ljosmyndarinn
-
maggatrausta
-
magnolie
-
neytendatalsmadur
-
mammann
-
osland
-
rannug
-
ringarinn
-
roslin
-
sifjan
-
58
-
snjokall
-
strumpurinn
-
tara
-
topplistinn
-
ziggi
-
zeriaph
-
vala
-
vogin
-
jona-maria
-
kolbrunj
-
gattin
-
gledibankinn
-
robertb
-
bjarnijonsson
-
ernadua
-
curvychic
-
gillimann
-
minos
-
hordurj
-
naflaskodun
-
joklamus
-
vallyskulad