11.1.2009 | 21:57
Fjölskyldustund á laugardagskvöldi.
Við hjónin settumst niður með yngri börnunum og horfði á þáttinn. Vorum með þær væntingar að við gætum skemmt okkur í þennan klukkutíma sem þátturinn tók. Gaman ef allir gætu haldið með einhverju lagi, helst að hvert lag fengi einn áhanganda. Þetta gekk eftir. Skemmtum okkur ágætlega. Við eldri deildin héldum með Heiðu og verð því að viðurkenna að við skíttöpuðum. Gaurinn valdi Edgar nr. 1 og Heiðu nr. 2. En valkirjan var á hreinu með sitt val. Jóhanna Guðrún nr. 1. og Edgar nr. 2. Svo var hún alveg miður sín yfir því að hafa alveg haft rétt fyrir sér og vildi endilega að ég hefði allavega valið annað þeirra. En ég er svo sem ekkert miður mín yfir þessu.Þessum klukkutíma var vel varið kúrandi í sófanum með eitt til tvö börn í fanginu. Svo fannst mér þær stöllur Ragnhildur Steinunn og standa sig með prýði, fannst þær bara virkilega skemmtilegar. Gaman að sjá þessar gömlu klippur.
Ég ætla ekki að dæma þennan þátt eftir menningarlegu gildi eða tæknilega séð. Hef ekki þekkingu til þess.
Ég dæmi þáttinn bara eftir því sem ég upplifði hann fyrir fjölskylduna. Einkunn: 5 af 5 mögulegum.
Hlakka til næsta laugardag.
Svo gleymdi ég að minnast á það að við íslendingar verðum að fylgjast með þeirri dönsku líka, því þar er Hera Björk komin í úrslit. Bara gaman.
Jóhanna og Edgar komust áfram | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Febrúar 2014
- Desember 2013
- Apríl 2013
- Ágúst 2012
- Apríl 2012
- Júní 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
Tenglar
Herbalife
Vinnan mín og aðal áhugamálið.
Áhugaverð skrif.
Bloggarar sem ég vil eiga greiðan aðgang að.
Frændgarður
Familien bloggar
Lífið og tilveran
Local
- Bærinn
- Dagskráin
- N4 og Extra
- Sálarrannsóknarfélagið á Akureyri
- http://nordurland.is
- http://akureyri.net
- N4 Norðlenskar fréttir
Matur
- http://matseld.is Jens og maturinn
Persónuleg uppbygging
Vítamín fyrir heilann.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Um bloggið
ollana
Bloggvinir
- alberta
- amsa
- anitabjork
- annambragadottir
- arniarna
- atvinnulaus
- dagny65
- baldher
- bestalitla
- binnag
- daggardropinn
- drum
- duna54
- egillsv
- godinn
- gunnurr
- frost
- heidathord
- himmalingur
- hk
- ingabaldurs
- jakobk
- jeg
- jodua
- jokapje
- jonaa
- juljul
- kafteinninn
- krummasnill
- landsveit
- lauola
- ljosmyndarinn
- maggatrausta
- magnolie
- neytendatalsmadur
- mammann
- osland
- rannug
- ringarinn
- roslin
- sifjan
- 58
- snjokall
- strumpurinn
- tara
- topplistinn
- ziggi
- zeriaph
- vala
- vogin
- jona-maria
- kolbrunj
- gattin
- gledibankinn
- robertb
- bjarnijonsson
- ernadua
- curvychic
- gillimann
- minos
- hordurj
- naflaskodun
- joklamus
- vallyskulad
Athugasemdir
Einmitt Auður og það var það sem máli snérist um hjá okkur.
Það er svo fáir ísl. þættir sem fjölskyldan getur setiðyfir, um að gera að nýta sér það.
Dóra mín: Hafðu það líka gott. Er ekkert Evróvision í Japan?
Væri spurning að athuga það.
Anna Guðný , 11.1.2009 kl. 23:25
Alltaf gaman að sameinast yfir þessu. Annars gott að sjá þig í dag
Hulda Margrét Traustadóttir, 11.1.2009 kl. 23:26
Eiginlega fannst mér lögin aukatriði í þættinum. En stelpurnar sem stjórnuðu kunnu sitt fag og lyftu Júróinu upp á miklu skemmtilegra plan en ég hef áður séð. Reyndar ekki oft sem ég horfi á þessa keppni. Reyni þó að sjá íslensku framlögin í lokakeppnunum. Og fylgist með talningunni að sjálfsögðu.
Dunni, 12.1.2009 kl. 06:37
Gleymdi þættinum, en mikið finnst mér gaman að sjá þig hérna aftur Anna mín.
Knús
Helga skjol, 12.1.2009 kl. 08:11
Sömuleiðis Margrét, gaman að sjá þig líka. Kíki trúlega aftur í dag.
Dunni: Ég er eiginlega svolítið sammála þessu.
Helga mín, takk fyrir. Góð tilfinning að vera saknað
Anna Guðný , 12.1.2009 kl. 08:19
USS ég vissi ekkert hvað var um að vera, en heyrði í stelpunum og mun kannski horfa næst.
En allt sem styrkir fjölskylduna er af hinu góða og þið eruð nú frábær í því Anna Guðný mín.
Ljós yfir heiði
Milla
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 12.1.2009 kl. 10:10
Frábært,fjölskyldan mín sat reyndar ekki límd yfir þessu en dilluðu sér við sum lögin.Kaus Edgar.
Líney, 12.1.2009 kl. 16:20
Gott að hafa svona fjölskyldufund :)
við gleymdum þætti alveg og vorum í matarboð.
Renata, 12.1.2009 kl. 16:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.