2.12.2008 | 15:11
Mikið skil ég þá
Fann þetta inn á Vísi. Þetta er ég búin að hugsa oft um.
Lögreglumenn vilja ekki að mótmælendur fái útrás á sér
Það leggst mjög illa í lögreglumenn að fólkið í landinu skuli fá útrás fyrir reiði sína á þeim, segir Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna. Hann segir að mótmælin leggist illa í lögreglumenn. Hann bendir á að ástandið bitni ekkert síður á lögreglumönnum en öðrum þegnum þessa lands.
Ég veit ekki hvað maður á að segja um þessi mótmæli við lögreglustöðina hérna fyrir rúmri viku síðan," segir Snorri. Hann segir þó að það sé gersamlega út í hött að fólk skuli spyrða handtöku á manni sem borgi ekki sektina sína við einhverjar mótmælaaðgerðir.
Þarf að segja eitthvað meira?
Eldri færslur
- Febrúar 2014
- Desember 2013
- Apríl 2013
- Ágúst 2012
- Apríl 2012
- Júní 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
Tenglar
Herbalife
Vinnan mín og aðal áhugamálið.
Áhugaverð skrif.
Bloggarar sem ég vil eiga greiðan aðgang að.
Frændgarður
Familien bloggar
Lífið og tilveran
Local
- Bærinn
- Dagskráin
- N4 og Extra
- Sálarrannsóknarfélagið á Akureyri
- http://nordurland.is
- http://akureyri.net
- N4 Norðlenskar fréttir
Matur
- http://matseld.is Jens og maturinn
Persónuleg uppbygging
Vítamín fyrir heilann.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Um bloggið
ollana
Bloggvinir
- alberta
- amsa
- anitabjork
- annambragadottir
- arniarna
- atvinnulaus
- dagny65
- baldher
- bestalitla
- binnag
- daggardropinn
- drum
- duna54
- egillsv
- godinn
- gunnurr
- frost
- heidathord
- himmalingur
- hk
- ingabaldurs
- jakobk
- jeg
- jodua
- jokapje
- jonaa
- juljul
- kafteinninn
- krummasnill
- landsveit
- lauola
- ljosmyndarinn
- maggatrausta
- magnolie
- neytendatalsmadur
- mammann
- osland
- rannug
- ringarinn
- roslin
- sifjan
- 58
- snjokall
- strumpurinn
- tara
- topplistinn
- ziggi
- zeriaph
- vala
- vogin
- jona-maria
- kolbrunj
- gattin
- gledibankinn
- robertb
- bjarnijonsson
- ernadua
- curvychic
- gillimann
- minos
- hordurj
- naflaskodun
- joklamus
- vallyskulad
Athugasemdir
Kreppukall: Ég tek undir orð þín... heyr! heyr!
Gunnar Helgi Eysteinsson, 2.12.2008 kl. 17:27
Það er eðlilegt.. Þeir eru í vinnunni sinni..
Sigríður B Svavarsdóttir, 2.12.2008 kl. 18:06
Það má vel vera að þessi kjáni hafi verið ólöglega handtekinn en fyrr frýs í helvíti en að ég fari að gútera það að menn safnist fyrir framan lögreglustöðina með skrílslæti til að ögra lögreglunni. Það eru til aðferðir við að leysa svona mál á eðlilegan hátt. Ég hefði helst viljað að lögreglan hefði bara víðtækar heimildir til að taka svona fólk úr umferð enda var fyrirséð að hann myndi halda uppi uppteknum hætti þessa helgi á Austurvelli sem fyrr (þar sem hann grýtti Alþingi Íslendinga og lögreglan ákvað að gera ekkert í).
Við eigum ekki að sætta okkur við né umbera lögbrot, glæpi og uppþot sem þessi. Svo ekki sé talað um hvað þessir lögreglumenn þurfa að þola alla daga í vinnunni.
Frosti Heimisson, 3.12.2008 kl. 09:32
Og ekki þótti mér þessi móðir beint stíga í vitið, hvað þá þegar hún stóð gargandi fyrir utan Stjórnarráðið. Sýnist hún ætla að valda meiri usla en bara út af þessari handtöku sonar síns. Held að það hafi bara verið léleg afsökun.
Frosti Heimisson, 3.12.2008 kl. 09:33
skil ekki alveg hvernig hægt er að verja skrílslætin við lögreglustöðina. Eflaust er margt sem lögreglan má gera betur, en það réttlætir ekki svona ýkt viðbrögð. Og ég tek alveg undir það sem Frosti segir ...
Minn skilningur á þessu er einfaldur: staðan í samfélaginu og þjóðfélaginu er vond. Yfirvöld hafa ekki verið sannfærandi og verið að standa sig. Lögreglan vinnur hins vegar fyrir hvaða ríkisstjórn sem er ... sama þótt aðrir hefðu verið við völd, þá hefðu að öllum líkindum sömu lögreglumenn verið að störfum. Þú réttlætir ekki skrílslæti svona.
Kærar kveðjur til þín Anna!
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 3.12.2008 kl. 10:18
Ekki vildi ég vera lögga,það veit Guð. Frænka mín er að útskrifast úr Lögguskólanum 12 des hún verður lögga í Keflavík.Ég skil hana ekki. mundu að klæða þig vel það er svo KALT úti og kári býtur í kinn
Bögga (IP-tala skráð) 3.12.2008 kl. 11:19
Tek undir Frosta.
og já, það þarf ekki segja meira.
Renata, 4.12.2008 kl. 08:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.