19.7.2008 | 00:37
Flott amma!!
Þetta er kannski það sem þarf. Ömmur út um allan bæ um helgar, sveiflandi sópnum í hringi. Fannst merkilegt að lesa í Mogganum gær viðtalið við ungan mann, vesturíslending (man ekki nafnið) sem er búinn að flækjast út um allan heim og skoða næturlíf borganna. En þegar til Reykjavíkur kemur, þá verður hann bara hálfhræddur. Þar er ekkert skipulag, bara ráðist á hvern sem er. Og helst í hópum. Og hann var með video vélina og náði upptöku af einum svona árásum. Og þá reyndu þeir að ná af honum vélinni.
Mikið er maður nú heppin að vera ekki á þessu djammi.
Ræningjunum sópað út | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Febrúar 2014
- Desember 2013
- Apríl 2013
- Ágúst 2012
- Apríl 2012
- Júní 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
Tenglar
Herbalife
Vinnan mín og aðal áhugamálið.
Áhugaverð skrif.
Bloggarar sem ég vil eiga greiðan aðgang að.
Frændgarður
Familien bloggar
Lífið og tilveran
Local
- Bærinn
- Dagskráin
- N4 og Extra
- Sálarrannsóknarfélagið á Akureyri
- http://nordurland.is
- http://akureyri.net
- N4 Norðlenskar fréttir
Matur
- http://matseld.is Jens og maturinn
Persónuleg uppbygging
Vítamín fyrir heilann.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Um bloggið
ollana
Bloggvinir
- alberta
- amsa
- anitabjork
- annambragadottir
- arniarna
- atvinnulaus
- dagny65
- baldher
- bestalitla
- binnag
- daggardropinn
- drum
- duna54
- egillsv
- godinn
- gunnurr
- frost
- heidathord
- himmalingur
- hk
- ingabaldurs
- jakobk
- jeg
- jodua
- jokapje
- jonaa
- juljul
- kafteinninn
- krummasnill
- landsveit
- lauola
- ljosmyndarinn
- maggatrausta
- magnolie
- neytendatalsmadur
- mammann
- osland
- rannug
- ringarinn
- roslin
- sifjan
- 58
- snjokall
- strumpurinn
- tara
- topplistinn
- ziggi
- zeriaph
- vala
- vogin
- jona-maria
- kolbrunj
- gattin
- gledibankinn
- robertb
- bjarnijonsson
- ernadua
- curvychic
- gillimann
- minos
- hordurj
- naflaskodun
- joklamus
- vallyskulad
Athugasemdir
Veistu, ég er orðin hætt að fara á lífið út af þessu læti og ofbeldi í fólki í miðbænum. Það er eins og þau breytast í dýr um leið að það stíga fæti á Laugarveg.
...nei tek það til baka, dýr haga sér hundrað sinnum betra.
Renata, 19.7.2008 kl. 09:23
Hahaha.... þetta hefur ábyggilega verið í Kardimommubæ.
Knús á þig essgan og njóttu dagsins.
JEG, 19.7.2008 kl. 11:11
Áfram ömmur
Unnur María Hjálmarsdóttir (IP-tala skráð) 20.7.2008 kl. 03:29
Ég elska ömmur! Varð afi í fyrrinótt. Hún Sara mín átti 7 stykki, eins og hálfs árs. Amman á heimilinu getur verið hættuleg með sópinn. Meira og meira "hjálpa ég henni við húsverkin" . Getur verið ellimörk.
Sigurður Þorsteinsson, 20.7.2008 kl. 09:01
Já afram ömmur
Hrafnhildur Björk Jónsdóttir, 20.7.2008 kl. 18:00
Já ég þekki nokkrar frábærar ömmur og stefni á að verða eins slík eftir mööööööörg ár!!! Og koma svo...
Ragga á Höfn.. (IP-tala skráð) 20.7.2008 kl. 23:19
Já ég er einfaldlega ekki að skilja þetta ofbeldi, en þó að hluta til er ég að skilja það. Ástæðan er að mínu mati eiturlyf, það virðist allt vera flæðandi í eiturlyfjum. Ég er svo grænn hvað þetta varðar og ég hef ekki getað séð beint muninn á drukknu fólki og fólki á einhverju. En félagi minn var að vinna sem dyravörður var að tala um að það væri ótrúleg aukning hvað þetta varðar. Ég var honum ekki sammála, þannig að hann sagði mér að koma eitt laugardagskvöldið og hitta sig í vinnunni. Ég er forvitinn að eðlisfari og mætti á staðinn. Hann fór yfir með mér helstu einkennin og byrjaði svo að benda mér á einstaklinga. Þegar ég fór að horfa í kringum mig sá ég staðreyndina. Einstaklingar á eiturlyfjum verður líka svo forhert að það má ekki rekast utan í það þá verður það brjálað og það sýður upp úr öllu ! Þetta er hundleiðileg þróun þar sem ég er hálfgert partýljón og hef gaman að kíkja á næturlífið, en sem betur fer hef ég sloppið til þessa.
Árni Árnason, 21.7.2008 kl. 04:09
Erfitt að skilja þessi læti, en hvar byrjar hnúturinn hjá þessum mönnum sem stunda þetta ofbeldi, af hverju eru menn svona reiðir.
Knús knús
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 21.7.2008 kl. 16:44
Var búin að skrifa fullt af athugasemdum og svo bara hvarf það. Kannisti við það?
Renata: Veistu að ég er svo fegin að ég sé löngu hætt þessu djammi.
JEG: Soffía frænka bara mætt á staðinn.
Unnur, Hrafnhildur og Ragga: Mikið er nú gaman að geta hlakkað til að verða amma. Unnur komin með 12. barnabörn, toppar einhver hér hana?
Sigurður: Ég ætla rétt að vona að þú sért að tala um hund eða kött. Annars var ég að reyna að sjá fyrir mér ömmuna elta þig með sópinn. Og fór þá að hugsa, hvort var hún að hegna þér fyrir leti eða verðlauna þig fyrir dugnað? Fór ég yfir strikið núna? Láttu mig vita og ég reyni að vera settlegri næst.
Árni: Hef oft verið að hugsa um að mig langi að fara svona eitt kvöld og skoða lífið. Var sjálf að vinna á veitingastað í nokkur ár, en það eru 14. ár síðan og margt breyst. Einmitt þessi harða fíkniefnaneysla. Allir verða svo "tens" og ef einhver rekur sig utan í þá sýður upp úr um leið. Svo eru líka sumir þannig að þeir eru bara að leita að slagsmálum og nota því hvert tækifæri til að abbast upp á einhvern, eða bregðast við, mun kröftuglegra en efni standa til.
Milla: Af hverju fólk er reitt? Ég held að oft sé þetta innilokuð orka og þessa orku þarf fólk að losa sig við. Ef þú finnur ekki jákvæðan farveg fyrir hana , brýst hún út á neikvæðan hátt þegar fólk missir stjórnina. Eins og gerist þegar það dettur í það eða neytir fíkniefna. Og eftir því sem meiri og harðari, því stjórnlausari verður hegðunin. Veit ekki hvort fólk sé sammála mér en ég hef oft tekið eftir þessu á ofvirkum börnum eða svona velvirkum. Ef þau ná ekki að koma orkunni út í leikjum eða hlaupum þá eru þau líklegri til að taka það út á systkinum þegar heim kemur.
Anna Guðný , 23.7.2008 kl. 00:37
Já kæra vina ég veit allt um það, en oft er svo mikil reiði sem þau ekki segja frá hvaðan kemur, vita það kannski ekki.
Knús til þín
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 23.7.2008 kl. 08:49
Takk fyrir innlitið ;)
Hafðu það sem best ,)
Anna Margrét Bragadóttir, 24.7.2008 kl. 23:34
Amman er æðisleg, alger hetja.
Segi það sama með næturlífið, það er orðið hrikalegt. Stendur ekki á sama þegar dóttir mín 20 ára er að djamma niður í bæ.
Takk fyrir að samþykkja mig
Elísabet Sigurðardóttir, 24.7.2008 kl. 23:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.