Leita í fréttum mbl.is

Hverskonar lög eru þetta eiginlega?

það að foreldri(faðirinn í þessu tilfelli) þurfi að skrifa undir erfðaskrá til að barnið hans erfi hann. Ótrúlegt. Hvað ætli það séu mörg börn sem erfa þá ekki foreldra sína en arfurinn fer til annarra fjölskyldumeðlima, misábyrga. Ekkert öruggt að þau séu eins heppin og þessi unga dama virðist vera með afa og ömmu.
mbl.is Dóttir Ledgers arflaus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Guðný

Ok, svona svipað og líftryggingar. Ef nýtt barn bætist í hópinn þarf að setja það inn á listann?

Anna Guðný , 10.3.2008 kl. 11:12

2 Smámynd: Anna Guðný

Sé að þú ert lögfræðinemi, má ég kannski spyrja þig. Eru sömu lög hér. Ef þú hefðir gert erfðaskrá fyrir 4 árum , ættir svo 2 ára barn og hefðir ekki uppfært erfðaskránna, hvar væri barnið stat í dag? Og skiptir einhverju máli barnsins vegna hvert samband þitt var og er við barnamóðurina? Bara forvitni hérna.

Anna Guðný , 10.3.2008 kl. 11:23

3 identicon

Er ekki klausa í íslenskum lögum sem kemur í veg fyrir að hægt sé að gera barn arflaust með erfðaskrá?

Eða er þetta algjört misminni :)

karl (IP-tala skráð) 10.3.2008 kl. 13:37

4 Smámynd: Anna Guðný

Ég ætla rétt að vona það. Því miður hugsa fólk í svona málum: Þetta kemur ekki fyrir mig, ungur og sprækur, nógan tíma eftir.

Anna Guðný , 10.3.2008 kl. 14:18

5 identicon

Ef skylduerfingjar (t.d. börn) eru á lífi þá er bara hægt að ráðstafa 1/3 með erfðaskrá að ég best veit.

Sigurður (IP-tala skráð) 10.3.2008 kl. 14:38

6 identicon

Bandaríska löggjöfin er margfalt betri heldur en sú íslenska. Sorry en ég bara er ekki fylgjandi því að ríkið eigi að hafa vit fyrir einstaklingum, allavega þegar kemur að persónulegum málum eins og fjármálum. Finnst fáránlegt að skylda mann til þess að láta erfðir skiptast á milli ættingja. Það er ekki alltaf þannig að manni þykir mest vænt um ættingja, oft er það þannig að maður eignast maka eða vini sem verða nánari. Svo er ekki einu sinni hægt að deyja í friði án þess að borga skatt, en ætli það sé ekki efni í aðra umræðu.

Kannski var hann ekkert að flýta sér að breyta þessu eftir að stelpan fæddist vegna þess að a) hann taldi það ekki líklegt að hann myndi láta lífið í náinni framtíð b) Móðir hennar er í sama bransa og á örugglega nóg af peningum, sem halda áfram að margfaldast enda fer ferill hennar bara batnandi. 

Geiri (IP-tala skráð) 10.3.2008 kl. 15:18

7 Smámynd: Ísdrottningin

Geiri, ég vildi bara minn á að arfur og erfðir eru ekki sami hluturinn

Ísdrottningin, 10.3.2008 kl. 15:52

8 identicon

Haha núna hlær maður að sjálfum sér.

Takk fyrir ábendinguna :)
 

Geiri (IP-tala skráð) 10.3.2008 kl. 17:06

9 Smámynd: Anna Guðný

Hvílíkt líf og fjör hérna. Meira að segja komin íslenskuleiðrétting. Frábært , hef aldrei fengið svona viðbrögð áður.

Karl: Veit lítið um þessi lög en væri samt gaman að vita.

Geiri: Eins og þú sérð þá kom ég líka með þá hugmynd um að hann hafi jú ekki skulum segja verið á leið í gröfina.

En ég held að það geti nú flestir verið sammála því að það er eðlilegast að börnin þín séu fyrst á lista yfir erfingja. Sama hvort hitt foreldrið er loðið um lófana eða ekki.

Ísdrottning: Takk fyrir svona ábendingu.

Anna Guðný , 10.3.2008 kl. 20:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Guðný
Anna Guðný

Langar að æfa mig í að setja saman texta. Sé til hvað ég gef mér mikinn tíma í það.

Sjálfstæður Herbalife dreifingaraðili. www.heilsufrettir.is/anna

Þeir sem vilja hafa samband má benda á netfang sem er: ollana@simnet.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Um bloggið

ollana

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband