Færsluflokkur: Bloggar
18.1.2009 | 12:01
Býð fram aðstoð mína, eru fleiri til?
![]() |
Milljón trjáplöntur á haugana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.1.2009 | 22:04
Hvað er Eurovision lag?
Er búin að hlusta á öll lögin núna og líka síðast. Ekki sammála öðrum kjósendum hvaða lög á að senda út. Af hverju skildi það vera? Jú, held að, að hluta til sér það sé vegna þess að ég reyni að hlusta bara á lögin en fjöldinn sem kýs, kýs persónur. Annað hvort höfunda eða flytjendur. Getur það verið?
Hvað segið þið?
Eins og mér fannst lagið hennar Erlu Gígju fallegt, finnst mér það ekkert hafa að gera í Eurovision.
Eigiði góða helgarrest.
![]() |
Lögin sem komust áfram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
16.1.2009 | 21:38
Moggabloggarar á Akureyri á kaffihús
Sunnudaginn kl. 16.00 á Kaffi Karolínu.
Sjáumst þá
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
16.1.2009 | 09:32
Myndablogg á föstudegi.
Það hefur myndast þrýstingur á mig að fara nú að setja inn myndir. Það hljóti eitthvað að vera að ske hjá mér þessa dagana. Og jú, það er rétt.
Allt er að komast á rétt ról eftir jólafrí. Byrjuð að heimsækja andana, búin að fara á einn fund í foreldrafélagi skólans, símatímar að byrja eftir helgi og svona mætti lengi telja. Eins og það er nú gaman að fara í frí, þá er líka gott þegar rútínan byrjar aftur. Strumpastrætó hefur hafið keyrslu. Búið að keyra nokkrar ferðir í dans.
Árshátíð í skólanum framundan og börnin koma heim með það sem þau eiga að vera með. Má þar nefna Rauðhettu og sögumann.
Eins og ég skrifaði síðast var mikið húllumhæ hér á þrettándanum. Um 40 manns runnu hér í gegn í mat. Gekk það allt eins og best verður á kosið. Það er að breytast gestahópurinn. Ný kynslóð kominn. Ekkert smá gaman. Þó það sé eitthvað í að ég verði amma, þá er ég orðin margföld afasystir.
Hér eru tveir frændur mínir tilbúnir í slaginn. Ótrúlega flott þessi gleraugu.
Vá, sjá öll ljósin. Mamma aðeins með augun á þessu þarna.
Afmælisbarnið með krúttmolann okkar.
Frænkur í Sing star og frændur fylgjast með, svona allavega með öðru auga.
Á föstudagskvöldinun skelltum við okkur á þrettándagleði Þórs. Íþróttafélagið gat boðið bæjarbúum upp á hátíðina í ár. Jóhannes í Bónus bauð svo upp á flugeldasýningu í lokin, eins og honum er einum lagið. Frábær skemmtun og fullt af fólki.
Falleg systkin taka sporið.
Ekki voru allir gestir jafnfallegir.
Fór út á götu með vélina einn daginn og náði þessum.
Rólegt og huggulegt hverfi. Veðurhamurinn nær svo lítið inn til okkar.
Eins og þeir sem hafa lesið blogg hennar Möggu Trausta bloggvinkonu minnar, þá vitið þið
að hún stóð fyrir opnun Norðurports, markaðs sem var settur upp hér fyrir jól. Nú er hún flutt með aðstöðuna og ég er búin að heimsækja hana tvisvar á nýja staðnum. Hún er að flytja með aðstöðuna niður í Laufásgötu sem er þar sem Sjóbúðin var, þeir sem þekkja það. Líst vel á þetta húsnæði og verður gaman að vera með henni í þessu. Ég er ákveðin í að vera með bæði Herbalife kynningar og svo ætlum við að vera með ýmislegt notað til sölu.
Margrét og Solla sveittar við að ná efsta laginu.
Við Snezana kíktum svo í heimsókn í gær til að sjá hvernig gengi. Allt á fullu og verður opnað um mánaðarmótin. Þið sem viljið vera með bás getið samband við Margréti á staðnum eftir helgi.
Annað sem ég gerði í gær og það var að kíkja upp í KA heimili og sjá hvernig nýja verkefnið þar fer af stað. Þið sem ekki vitið um hvað ræðir er að ýmsir aðilar hér í bæ hafa tekið sig saman og bjóða upp á ókeypis heilsurækt fyrir alla.
Þetta er alveg ótrúlega flott framtak. Ýmislegt verður í boði fyrir fullorðna og börn. Opin hús er t.d. fyrir börn tvo daga í viku 1 1/2 tíma í senn seinni partinn, þar sem krakkar geta komið og leikið sér.
Fyrir konur er boðið upp á Jóga tvisvar í viku, leikfimi tvisvar í viku og dans einu sinni í viku. Barnapössun á staðnum. Skíðaganga, Stafaganga, skokkhópar, Krulla og bolta eitthvað. Opið hús í KA heimilinu alla virka daga eftir hádegi. Hádegisverðarfundur á föstudögum, sem ég ætla að kíkja á á eftir. Þarf ég að taka fram að þetta er allt ókeypis.
Um að gera fyrir alla að drífa sig af stað. Það þarf ekki einu sinni að panta, bara mæta á staðinn.
Vá hvað þetta er flott.
Kíki með myndavélina á eftir og set þá inn eitthvað.
Hafið það gott í bili.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
14.1.2009 | 22:52
Bloggarar norðan heiða.Þá er komið að því!
Nú ætlum við að hittast aftur, það var svo gaman síðast.
Kaffihús bloggara.
Við höldum okkur við sama stað, með þeim fyrirvara á að okkur verði hleypt inn. Held samt að allir hafi hegðað sér með sóma síðast. Ætlum þó að breyta deginum og hittast núna á sunnudag.
Sem sagt.
Staðsetning: Kaffi Karolína, Rub 23, Listagilinu
Tími: Sunnudagur 18, jan kl. 16.00
Mig minnir að síðasta auglýsing hafi verið miklu orðfleiri en veit svo sem ekki hvað á að skrifa meira.
Hlakka bara til að sjá alla sem hafa tækifæri til að koma.
Góða nótt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
13.1.2009 | 22:50
Vinkona - ekki vinkona!
Nei nei, þetta var aðvörun og kannski vel meint," sagði Sigurbjörg aðspurð hvort hún hafi litið á orð utanríkisráðherra sem hótun. Meiningin hafi ekki verið að setja fram dylgjur og það sjáist vel þegar hlustað sé á ræðuna.
Einmitt málið. Meira að segja ég var búin að fatta að það gæti snúið svona.Ef vinkona mín gefur mér ráðleggingar á ég þá að hugsa fyrst að hún sé að hóta mér? Nei, held ekki. Eðlilegt væri að hún væri frekar að vara mig við. Annars væri hún varla vinkona mín.
Eflaust hefur mörgum öðrum en mér dottið þetta sama í hug en bara ekki skrifað um það.
En fólk er bara almennt svo tilbúið að trúa því versta.
Endilega látið ykkur dreyma vel í nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
11.1.2009 | 21:57
Fjölskyldustund á laugardagskvöldi.
Við hjónin settumst niður með yngri börnunum og horfði á þáttinn. Vorum með þær væntingar að við gætum skemmt okkur í þennan klukkutíma sem þátturinn tók. Gaman ef allir gætu haldið með einhverju lagi, helst að hvert lag fengi einn áhanganda. Þetta gekk eftir. Skemmtum okkur ágætlega. Við eldri deildin héldum með Heiðu og verð því að viðurkenna að við skíttöpuðum. Gaurinn valdi Edgar nr. 1 og Heiðu nr. 2. En valkirjan var á hreinu með sitt val. Jóhanna Guðrún nr. 1. og Edgar nr. 2. Svo var hún alveg miður sín yfir því að hafa alveg haft rétt fyrir sér og vildi endilega að ég hefði allavega valið annað þeirra. En ég er svo sem ekkert miður mín yfir þessu.Þessum klukkutíma var vel varið kúrandi í sófanum með eitt til tvö börn í fanginu. Svo fannst mér þær stöllur Ragnhildur Steinunn og standa sig með prýði, fannst þær bara virkilega skemmtilegar. Gaman að sjá þessar gömlu klippur.
Ég ætla ekki að dæma þennan þátt eftir menningarlegu gildi eða tæknilega séð. Hef ekki þekkingu til þess.
Ég dæmi þáttinn bara eftir því sem ég upplifði hann fyrir fjölskylduna. Einkunn: 5 af 5 mögulegum.
Hlakka til næsta laugardag.
Svo gleymdi ég að minnast á það að við íslendingar verðum að fylgjast með þeirri dönsku líka, því þar er Hera Björk komin í úrslit. Bara gaman.
![]() |
Jóhanna og Edgar komust áfram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
6.1.2009 | 09:03
Síðasti dagur jóla og fyrsti í afmæli.
Þessi tvö tímamót ná saman hér. Frumburðurinn á nefninlega afmæli i dag. Og vá, hún er orðin 14.
Til hamingju með daginn. Hér er skvísan á jólaballi í skólanum um daginn.
Von er á um 40 manns í mat seinni partinn í dag. Búin að þýða mörg kíló af nautakjöti og fiski. Hefð er komin á þessa veislu hjá okkur. Málið er að þegar við giftum okkur fyrir sex árum síðan , þá var brúðkaupið haldin í Ólafsvík. Það voru svo fáir héðan að norðan sem mættu þannig að ákveðið var að bjóða hér heima líka í mat eins og við vorum með þar. Og slá þá saman afmælinu hjá unglingnum. Fyrir þrem árum breytti ég aðeins til að útbjó fiskrétt líka. Það vakti þvílíka lukku og hefur verið síðan. Annars er þetta eins einföld og fljótleg eldamennska og hægt er. Blandað saman og sett í pott (svona nánast ) og sama meðlæti með báðum réttum. En gott er það. Annnars nota ég venjulega alltaf þorsk en á hann ekki til svo ýsan verður að duga. Ég finn muninn en flestir aðrir ekki.
Annars gekk þokkalega vel að koma börnum á fætur í morgun fyrsta skóladag eftir frí. Unglingurinn var vöknuð og komin á ról um sexleytið, fór samt seint að sofa. Smá afmælisspenna í gangi. Valkirjan var sofnuð á frábærum tíma í gærkveldi en byrjuð að brasa hér kl. 2 í nótt og sagðist vera búin að sofa út. Náði þó að sofna aftur í morgunsárið. Það var eftir að við tvær vorum búnar að skipta um rúm nokkrum sinnum og Kisa skildi ekkert í því hvað við vorum eiginlega að brasa. Hún vildi nefninlega endilega knúsa mömmu, (sko valkirjan ekki Kisa,) en hún er svo heitfeng að það er ekki nokkur leið að sofa með hana í fanginum. Gaurinn fékk að horfa á uppáhaldsþáttinn sinn fyrir svefni í gær,Extreme make over Home edition. Pabbi horfði með honum í þetta skiptið. Hann er með hlutverk á morgnana, fylgir einni nágranna stelpu sem er í fyrsta bekk í skólann. Hann er ekkert smá stoltur af þessu verkefni. Finnst skemmtilegra að vera samferða einhverjum og ekki verra að bera ábyrgð.
Eigiði góðan dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
4.1.2009 | 02:17
En við bjartsýnu?
Við vorum ekki mörg spurð. Þó ég geri mér alveg grein fyrir því að ástandið eigi eftir að vera mjög erfitt fyrir marga á þessu ári,þá kalla ég það ekki svartsýni, heldur finnst mér ég bara vera raunsæ. Það ástand sem verður næstu mánuði er bara uppskera á því sem hefur verið sáð síðustu mánuði. Og það vita flestir hvað það er. En svo er spurningin hverju erum við að sá núna? Ég trúi því að við , fólkið í landinu höfum mun meira um sáninguna þessa dagana að segja en við höfðum fyrir nokkrum mánuðum.
Það verður hver og einn að svara fyrir sig en ég ætla að halda áfram að vera bjartsýn og vona og trúa að ég uppskeri eftir því. Er einhver til í það með mér?
Á einhverju blogginu í dag var ég að lesa um Akureyringa og það af hverju þeir séu ekki svona reiðir eins og félagar þeirra í Reykjavík. Og þá af hverju fólk sé ekki að mæta í mótmælagöngur? Þar fannst mér aðalástæðan sem gefið var upp vera sú að við værum dofin ennþá og ekki búin að fatta alvarleikann. Veit ekki hvort þeir séu með eitthvað virkari fattara þarna í höfuðborginni.
Annars voru örugglega ekkert færri að mótmæla hér í dag heldur en í höfuðborginni ef við miðum við hina frægu höfðatölu. Allavega ef við tökum allt höfuðborgarsvæðið. Var annars nokkuð mómælt á fleiri stöðum sunnan heiða? Og þá er spurningin, af hverju eru ekki fleiri að mótmæla?
Ég er með eina kenningu sem mig langar til að leggja fyrir ykkur. Hún er sú að fólk veit ekkert hvað fylgir með í pakkanum að fara út að mótmæla. Það er svo misjafnt hvað fólk vill. Sumir nefninlega vilja Seðlabankastjórnina út en ekkert endilega ríkistjórnina strax. Sumir vilja ríkistjórnina í burtu en vilja ekki strjórnarandstöðuna inn. Sumir vilja meira að segja endurnýjun í öllum flokkum á alþingi en vilja samt halda Steingrími J. inni sem mér skilst að hafi setið allra manna lengst á þingi. Allavega einn af þeim. Svo vilja sumir bara burt með spillingarliðið og hver á eiginlega að dæma hver sé spilltur og hver ekki? Mál vera smá spilltur en ekki mikið? Má hafa stundað þjóðaríþrótt íslendinga að svíkja undan skatti? Og hvað má þá hafa svikið háa upphæð? Má hafa skilið að borði og sæng og flutt lögheimilið heim til mömmu eða Siggu frænku og búið samt áfram með makanum? Hver ætlar að sitja í dómarasætinu með hamarinn?
Svo er önnur spurning. Sú er af hverju hefur fækkað í hópnum? Ég er líka með kenningu þar en bíð með hana til betri tíma.
Hafið það gott öllsömul
![]() |
Íslendingar aldrei verið svartsýnni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
2.1.2009 | 21:31
ÆÆ, ekki gleyma klútnum

![]() |
Taldi sér ógnað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Eldri færslur
- Febrúar 2014
- Desember 2013
- Apríl 2013
- Ágúst 2012
- Apríl 2012
- Júní 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
Tenglar
Herbalife
Vinnan mín og aðal áhugamálið.
Áhugaverð skrif.
Bloggarar sem ég vil eiga greiðan aðgang að.
Frændgarður
Familien bloggar
Lífið og tilveran
Local
- Bærinn
- Dagskráin
- N4 og Extra
- Sálarrannsóknarfélagið á Akureyri
- http://nordurland.is
- http://akureyri.net
- N4 Norðlenskar fréttir
Matur
- http://matseld.is Jens og maturinn
Persónuleg uppbygging
Vítamín fyrir heilann.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.9.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Um bloggið
ollana
Bloggvinir
-
alberta
-
amsa
-
anitabjork
-
annambragadottir
-
arniarna
-
atvinnulaus
-
dagny65
-
baldher
-
bestalitla
-
binnag
-
daggardropinn
-
drum
-
duna54
-
egillsv
-
godinn
-
gunnurr
-
frost
-
heidathord
-
himmalingur
-
hk
-
ingabaldurs
-
jakobk
-
jeg
-
jodua
-
jokapje
-
jonaa
-
juljul
-
kafteinninn
-
krummasnill
-
landsveit
-
lauola
-
ljosmyndarinn
-
maggatrausta
-
magnolie
-
neytendatalsmadur
-
mammann
-
osland
-
rannug
-
ringarinn
-
roslin
-
sifjan
-
58
-
snjokall
-
strumpurinn
-
tara
-
topplistinn
-
ziggi
-
zeriaph
-
vala
-
vogin
-
jona-maria
-
kolbrunj
-
gattin
-
gledibankinn
-
robertb
-
bjarnijonsson
-
ernadua
-
curvychic
-
gillimann
-
minos
-
hordurj
-
naflaskodun
-
joklamus
-
vallyskulad