Leita í fréttum mbl.is

Getur verið?

Nú væri gaman að heyra einhvern sérfræðing tjá sig um þetta. Getur verið að foreldrarnir hafi ekki sýnt almennan áhuga fram að þessum tíma? Svona á meðan þau eru minna hrædd um að þau leiðist út í einhverja vileysu. Svo þegar unglingsárin eru að færast yfir og börnin fari oftar út á kvöldin og svoleiðis, þá fari foreldrarnir að vilja fylgjast með og verði bara hræddari um ungana sína og komi þá út sem þessi yfirdrifni áhugi.

Hvað segiði um þetta?

Hafið það gott í dag.


mbl.is Foreldrar með höfnunartilfinningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Auður Proppé

Ég hef alltaf spurt stelpurnar mínar um hvernig skóladagurinn hefur verið og þær segja mér það helsta en að ýta á eitthvað með offorsi er ekki rétta leiðin.  Skil samt ekki foreldra sem hafa ekki áhuga fyrr en á unglingsaldri, það sýnir vantraust á börnin.

Væri gaman eins og þú segir að heyra sérfræðing tjá sig um þetta. Ég held samt að þetta sé partur af uppeldi barnanna að taka þátt í þeirra lífi án þess að þeim finnist þau vera í stöðugri yfirheyrslu. 

Auður Proppé, 25.3.2009 kl. 08:33

2 Smámynd:  Íris Ásdísardóttir

Já það er alltaf leitt þegar foreldrar sýna ekki áhuga á skólastarfi barna sinna.

Þegar við spyrjum börnin okkar bara á eðlilegan hátt daglega um skólann þá er það orðinn vani hjá þeim að segja svona upp og ofan af skólanum sínum. Þess vegna er þetta hárrétt hjá þér að það þýðir ósköp lítið að ætla allt í einu á unglingsárum að byrja á því, það kemur bara út eins og vantraust í augum unglings og hann/ hún bregst því kannski leiðinlega við.

Það skapar bara svo gott traust að byrja strax í upphafi að sýna áhuga....án þess að það fari út í yfirheirslur :-)

Íris Ásdísardóttir, 25.3.2009 kl. 08:54

3 Smámynd: JEG

Ég held að þetta sé misjafnt á milli heimila eins og annað.  Og sjálfsagt verður fólki á að vera ekki með mikla afskiptasemi af börnunum meða og ef þau eru ekki með nein vandamál.  Svo þegar kemur upp unglingurinn verður fólk hrætt ......því það eru  svo margar hættur og tilboð um allskyns vitleysu í gangi.

Auðvitað er best að byrgja brunninn tímanlega.  Knús mín kæra. 

JEG, 25.3.2009 kl. 10:24

4 Smámynd: egvania

Þú biður um álit sérfræðings, ég er ekki sérfræðingur en vona að mér leyfist að tjá mig hér.

Ég á sko fjögur ömmubörn í Reykjavík.

Sumir foreldrar segja einfaldlega ég teysti barninu mínu og spyrja einskis.

Við verðum að vita hvað er verið að gera í skólanum, hvað er verið að gera með félögunum, hvernig félagarnir eru og hvert er farið.

Ég er máski svona gamaldags en við vitum að í dag leynist hættan á hverju horni og við getum ekki teyst félögum barnsins, barninu eða umhverfinu.

Ég er bara gömul amma sem er Guði þakklát fyrir það að vera komin úr barneign, ekki vildi ég ala upp ungling í dag. 

egvania, 25.3.2009 kl. 12:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Guðný
Anna Guðný

Langar að æfa mig í að setja saman texta. Sé til hvað ég gef mér mikinn tíma í það.

Sjálfstæður Herbalife dreifingaraðili. www.heilsufrettir.is/anna

Þeir sem vilja hafa samband má benda á netfang sem er: ollana@simnet.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 201305

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Um bloggið

ollana

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband