Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2009

Mikið er nú gott....

að rabbínarnir séu ánægðir með hann. Það hlýtur að vera aðalmálið þarna.
mbl.is Skilur við 11 eiginkonuna og slær met
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóla, jóla jóla. Myndablogg

Frá því upp úr 20. nóv. og fram að jólafríi í skólanum gengur lífið ansi mikið út á jólin og undirbúning þeirra. Þar sem elsta mín er komin í 9. bekk er ekki lengur mikið sem ég geri með þeim þar.

Ég hef ekki verið mikið með myndavélina síðustu mánuði en tók mig á núna til að ná undirbúningnum á filmu.

Við byrjuðum á aðventustund í skólanum með 6. bekk. Við fengum lánaða heimilisfræðistofuna og mötuneytið. Þar skrifuðum við jólakort, lærðum að gera kreppujólaóróa og síðast en ekki síst bökuðum við piparkökur og hituðum kakó sem við gæddum okkur svo  á í lok tímans.

Picture 002

Litla systir heppin að fá að koma með.

Picture 006

Jólatrésgerð.

 

Picture 008

Jólakortin búin til.

 

Picture 009

Kakóið hitað.

Picture 010

Pabbi settur í vinnu.

 

Þá var komið að útskrift hjá unglingnum. Hún hefur verið í valgrein  á haustönn sem kallast Matur úr héraði. Þau hafa mætt einu sinni í viku upp á Friðirik V. Þar hafa þau lært ýmislegt tengt mannasiðum, eldamennsku, þjónustusrörfum og fl. og fl. Svo hafa Friðrik að Adda farið með þau í vettvangsferðir út um allan fjörð.

Picture 012

Naut og bernaise.

 

Picture 013

Kynning.

 

Picture 016

Þjónarnir.

 

Picture 017

Foreldrar á smakki.

 

Picture 018

 Yngri systkinin ánægð með matinn.

 

Picture 021

Adda og Friðrik. Sjáið hver er í smakkprófi upp á vegg.

 

 Þá erum við komin niður í skóla aftur. Nú með 3. bekk. Jólakortagerð og kreppuskraut. Það hittist nú svoleiðis á að ég þufti að vera mætt á danssýningu hjá unglingnum á sama tíma þannig að ég klónaði mig bara.

Picture 023

Agnes með mömmu sinni.

 

Picture 025

Teresa með mömmu sinni. Þær höfðu varla tíma til að líta upp.

 

Picture 026

Birgitta með mömmu og Ingunn Erla með ömmu.

 

Picture 029

Pabbarnir sem mættu. Þessir mæta oftast.

 

Hér erum við komin upp í Ketilhús á danssýninguna.

Picture 031

Gestirnir sem komu að styðja vinkonu sína. Jana, Viktoría, Ylfa, Inga Steina , Eva og Anna Elísabet litla systir.

 

Picture 036

Flottir dansarar.

 

Enn erum við komin í skólann. Nú er komið að sameiginlegri sýningu hjá 5. og 6. bekk.

Picture 053

Verið að klæða sig í búningana.

 

Picture 059

Jólaguðsspjallið.

 

Picture 063

Lagið tekið.

Desember hálfnaður og meira en það. Litlu jóla í skólanum á morgun. Myndavélin fer þangað þannig að hver veit, kannski nenni ég að setja inn meira annað kvöld.

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Hundfúl.

Einmitt. Og er ég hundfúl yfir þessu. Hélt að það væri nú þokkaleg upphæð sem ég er búin að spara þjóðfélagið með því að vera heima öll þessi ár. Þetta eru þakkirnar.
mbl.is Tekjuskipting getur ráðið miklu um skattgreiðslur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Anna Guðný
Anna Guðný

Langar að æfa mig í að setja saman texta. Sé til hvað ég gef mér mikinn tíma í það.

Sjálfstæður Herbalife dreifingaraðili. www.heilsufrettir.is/anna

Þeir sem vilja hafa samband má benda á netfang sem er: ollana@simnet.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Um bloggið

ollana

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband