Leita í fréttum mbl.is

Kominn tími á nýtt.

Veit ekki með ykkur en ég var orðin hundleið á að sjá alltaf færsluna um Jarp þegar ég opnaði síðuna mína. Hef bara einfaldlega ekki gefið mér tíma til að skrifa. Hef verið að sinna andlegum hugðarefnum í vikunni. Farið á eitt námskeið hjá Rauða Krossinum. Frábær upprifjun. Veit ekki hvort ég hef minnst á það að ég starfa sem sjálfboðaliði þar og hef gert í nokkur ár.

En þeir sem ekki vita þá er ég heimavinnandi húsmóðir í fullu starfi og Herbalife dreifingaraðili í hlutastarfi.  Herbalife vinnan gerir mér mögulegt að vinna að heiman, ég skipulegg vikuna sjálf og get þar að leiðandi leyft mér að taka  að mér sjálfboðaliðastörf. Alla mánudagsmorgna svara ég í símann fyrir félagasamtök hér í bæ og sinni mun meira starfi fyrir þau samtök þegar á þarf að halda, eins og núna um helgina. Enda verður mjög gaman hjá okkur þá. Búin að fá að vera með í skipulaginu og fæ svo að hitta allt fólkið þessa þrjá daga.

En áfram með Rauða Krossinn. Það er alveg ótrúlega gefandi að starfa þar. Ég er mest í þeirri deild sem kallast heimsóknarvinir. Það þýðir að ég tók að mér aðila út í bæ, heimsæki hana einu sinni í viku, klukkutíma í senn. Sit og spjalla, fer út að ganga eða með hana í búðina, bara það sem hentar hverju sinni. En flestir held ég fara bara í heimsókn og halda fólkinu selskap í þennan tíma. Auðvitað eru mjög margir sem sinna þessu án þess að gera það í nafni einhverra félagasamtaka og það er bara frábært. Hugsiði ykkur bara hvernig það væri ef allir svona þokkalega venjulegt fólk tæki að sér að heimsækja manneskju sem liði illa, væri einmana, væri veik, ætti erfitt með gang eða hvað sem er einu sinni í viku, klukkutíma í senn? Vá ég get alveg séð fyrir mér hvað myndi gerast.

Námskeiðin sem okkur sjálfboðaliðunum er boðið upp á eru líka mjög fróðleg. Væri gaman að vita hvort einhver sem les þessi skrif hafi farið á sálrænt skyndihjálparnámskeið. Ég fór á eitt svoleiðis í fyrra og fékk svo upprifjun núna í vikunni. Það er mjög gott að læra aðeins um hvað gerist þegar fólk lendir í svona hremmingum eins og eru að ganga yfir landann þessa dagana. Og hremmingar eru það, alveg sama hvort við höfum kallað það yfir okkur eða ekki. Þetta námskeið fékk mig líka til að líta orðið kreppa allt öðrum augum. Þetta krepputal fór í taugarnar á mér áður en ekki lengur. Kreppa þarf ekki endilega að þýða það sem hún var hér áður fyrr. Stigsmunurinn er mikill en kreppa má það heita.  Kreppa er í raun bara röskun á annars stöðugu ástandi.

En nóg um það. Ég ætlaði alltaf að setja inn mynd sem ég tók af unglingnum og bekkjarsystrum hennar. Þær eru nefninlega í hljómsveit sem Siggi kafteinn stjórnar. Ég skrapp í heimsókn einn daginn og smellti þessum myndum af.

PA080110

Unglingurinn minn, trommarinn.

 

PA080111

Rafmagnsgítarleikarinn og hljómsveitarstjórinn. Bassaleikarinn er í fríi.

PA080112

Söngkonurnar.

Flottar stelpur, gangi ykkur vel.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: JEG

Flott hjá þér.  Þetta er svo sannarlega þarft að sinna fólkinu sem á engann eða fá að sem "nenna" að sinna sínu fólki.  Mætti sko vera meira um þetta og þá íslendingar ekki útlendingar því þetta fólk vill það ekki.

Flottu unglingurinn þinn

Knús og klemm mín kæra og það er nú í lagi stundum að vera of upptekinn að sinna sínu lífi að maður hafi ekki bloggskriftartíma.

JEG, 16.10.2008 kl. 22:58

2 Smámynd: Erna

Þú ert mikill mannvinur Anna mín

Erna, 16.10.2008 kl. 23:03

3 Smámynd: Anna Guðný

Takk fyrir þetta stelpur mínar.

Jóna. Svo er líka eitt. Oft er auðveldara fyrir fólk að fara og heimsækja ókunnugt fólk heldur er nákomna. En með útlendinga á dvalarheimilinum. það bara fengust ekki íslendinga í vinnu. Það breytist trúlega núna þegar ekki er pláss fyrir allan þennan fjölda í peningageiranum. Þá koma fleiri íslendingar inn, trúi ég.

Já stelpan er flott. Svo finnst henni þetta svo gaman. En ég viðurkenni að ég var undrandi þegar hún sagðist spila á trommur. Búin að fara sjálf og kaupa sér kjuða.

Erna. Takk fyrir þetta Erna mín. Ég veit þú ert það líka.

Anna Guðný , 16.10.2008 kl. 23:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Guðný
Anna Guðný

Langar að æfa mig í að setja saman texta. Sé til hvað ég gef mér mikinn tíma í það.

Sjálfstæður Herbalife dreifingaraðili. www.heilsufrettir.is/anna

Þeir sem vilja hafa samband má benda á netfang sem er: ollana@simnet.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 201282

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Um bloggið

ollana

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband