Leita í fréttum mbl.is

Síðustu vikur.

Ég er að upplifa svipað og á sama tíma á síðasta ári. Svo margt sem þarf að gera að mér dugar ekki sólarhringurinn til þess. Haustverkin að byrja. Mæta á þennan fund þarna og annan fund annar staðar. Eins gott að ég á ekki fleiri börn.

Aðeins búin að kíkja í berjamó. Í fyrsta skiptið sem ég fer bara hér vestan meginn í firðinum en ekki austan. Fór í Glerárdalinn og fékk leiðsögn svona í fyrsta skiptið. Enda veit ég alls ekki hvar ég hefði endað annars.

P8190007

Fór svo seinna í Krossanesborgir og það var líka í fyrsta skiptið sem ég fór þangað.

P8230043

Valkirjan duglega með fötuna sína.

WinkÞegar mætt var í skólann um daginn þurfti ég að sitja allar skólasetningarnar því ég er að byrja þetta árið með börn á öllum deildum og verð það næstu þrjú árin, eða þar til unglingurinn úrskrifast.

P8220018

Komin í 2.bekk. Stundarskráin skoðuð.

P8220022

5.bekkingar á tali.

 

Unglingurinn  komin á unglingastigið.

P8220023

 

Yndislegt veður dag eftir dag.

P8240001

 

Stutt í allt, meira að segja leggja stóru skemmtiferðaskipin rétt við húsið mitt.

P8240005

 

Svona er rifsberjarunninn minn flottur.

 

P8240011

 

Nú er ég mætt á Akureyrarvöku. Fór í bæinn fljótlega upp úr hádeginu, gekk um svæðið og skoðaði hvað væri í boði fyrir gesti og gangandi.

 

Það er í fyrsta skipti sem ég sé svona líf í þessu porti.

P8300015

Var rétt að byrja þegar ég kom.

 

P8300017

Markaðsstemmning á torginu.

P8300018

Áslaug var auðvitað mætt á svæðið til að skemmta sér.

 P8300019

Andinn nærður.

 

P8300021

Siggi kapteinn.

P8300020

Haldiði að ég hafi ekki mætt Unni Maríu bloggvinkonu minni á göngu með strákana sína.

P8300023

Svo kannast ég eitthvað við þessar.

P8300053

Það var margt í boði í bænum þennan dag og í Amaro húsinu var t.d. Sunna spákona að störfum.

 

P8300052

Wally trúður að störfum. Hann er sko með húmör að mínu skapi.

P8300048

Hér sést að fylgst er með af áhuga.

 

P8300055

Hér eru dömurnar komnar á tískusýningu í miðbænum. Tónlistin sem spiluð var með var af Mamma Mia diskinum, svo þær stóðu kyrrar mikið spenntar allann tímann.

P8300059

Einn og einn að fylgjast með.

 

P8300066

Stelpurnar í Amaro húsinu í pásu.

P8300068

Hér er hún Jóhanna Vala safnstjóri Ástarsafnsins á Akureyri að lesa yfir okkur. Náði ekki betri mynd af henni. Hún er nú óvenju hátt uppi þarna.

 

Þegar við gengum í bæinn aftur mætti þessi sjón okkur.

Rosalega flott, en jesús minn, er þeim ekki kalt?

Rómó.is

P8300070

P8300071

 

P8300073

Eins og þið hafið kannski fylgst með í fréttum , þá hafa tvær andanefjur svamlað um hér á pollinum í nokkrar vikur. Á sunnudagskvöldinu gerðum við tilraun til að kíkja á þær. Nenntum þó ekki að bíða lengi, heldur skelltum okkur yfir fjörðinn. Lögðum þar á túrhestabílastæði og gengum niður í átt að sjólbúðunum. Hefði verið gaman að fara niður í fjöru en veit ekki hvort sé fært. Smellti þessari af þeim þar.

 

P8310081

Berglind, gaurinn og valkirkjan.

 

P8310082

Séð yfir til Akureyrar.

:etta er að verða gott í bili.

Hafið það gott um helgina. Það ætla ég að gera.

 

Sjáumst á bloggkaffi á Akureyri á morgun, þið sem getið.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Margrét Bragadóttir

Flottar myndir

Góða skemmtun á morgun ;)

Knús á þig

Anna Margrét Bragadóttir, 5.9.2008 kl. 23:49

2 identicon

Hvar fannst þú þetta froðupar???      Flottar myndir annars. Og góða skemmtun á morgun , eg fæ fréttir síðar.

Unnur María Hjálmarsdóttir (IP-tala skráð) 6.9.2008 kl. 01:16

3 Smámynd: JEG

Já vá mikið um að vera hjá þér góða mín. 

Flottur rifsrunninn.  Fær hann frið fyrir fuglinum ??? Ekki minn sko verð að girða hann vel af annars klárar fuglinn allt.  Er að fara að týna af honum nú um helgina og svo verður hleypt á fullu. 

Eigðu góða helgi mín kæra. Knús og klemm úr sveitinni.

JEG, 6.9.2008 kl. 13:00

4 Smámynd: Renata

Gaman að sjá myndinar með útskýringar, virðist vera mikið gaman hjá þér og þínum. Hafðu það gott um helgina...

Renata, 6.9.2008 kl. 14:28

5 identicon

Æðislegar myndir - og gaman að hitta ykkur í dag!!!

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 6.9.2008 kl. 19:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Guðný
Anna Guðný

Langar að æfa mig í að setja saman texta. Sé til hvað ég gef mér mikinn tíma í það.

Sjálfstæður Herbalife dreifingaraðili. www.heilsufrettir.is/anna

Þeir sem vilja hafa samband má benda á netfang sem er: ollana@simnet.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 201348

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Um bloggið

ollana

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband