Leita í fréttum mbl.is

Sunnudagur enn á ný.

Tíminn líður svo hratt. Ég er ekki fyrr vöknuð á mánudagsmorgni en að ég þarf að fara að sofa á sunnudagskvöldi.

Heimilislífið er allt að fara í venjulegann vetrargír þessa dagana. Börnin byrja að koma með heimaverkefni á morgun. Verður spennandi að fylgja því eftir. Valkirjan var nú ekkert yfir sig spennt þegar hún mundi eftir því hér í kvöld.Wink

Á föstudag kom Unna Mæja bloggvinkona mín í kaffi til mín. Fórum við út á svalir og kíktum á sólina. Sá ég þá hana Ernu bloggvinkonu mína í dyrunum hjá sér. Við uppgötvuðum hvor aðra eftir að við urðum bloggvinkonur. Hún býr í næstu götu en sjáiði bara hvað ég sé vel yfir til hennar.

 

P9120006

Þarna var hún útí í dyrum að kveðja gesti og við auðvitað kölluðum á hana í kaffi og kleinur. Fyndið þegar þær hittust. Erna er að vísu ekki með af sér á síðunni en það er Unnur og Erna þekkti þá hana auðvitað um leið. Gaman að sjá manneskjur sem þekkjast ekki neitt heilsast eins og aldavinkonur þegar þær hittast í fyrsta sinn.

Við auðvitað stilltum okkur upp fyrir myndatöku en sólin var svo sterk að það voru alveg vandræði með það hvernig við áttum að snúa. Wink

P9120002

Og þarna sjáiði dyrnar hennar Ernu bera við eyrað á Unni.Wink

Eftir kaffisopann fórum við á göngu um eyrina, ég, Unnur og frú Breiðfjörð sem kom í heimsókn líka. Við gengum niður að sjó og suður með. Las færslu eftir hana Huld um daginn þar sem hennar húsband hafði boðið henni á siglingu út á fjörð. Fannst henni aðkoma fyrir ferðamenn sem koma á skemmtiferðaskipunum ekkert mjög spennandi og  verð ég að vera henni sammála.

P9120009

P9120012

Ég veit, öryggiskröfur og allt það .

 

Þokkalega stórt byggt handan fjarðar.

P9120011

 

Starfsmenn Bústólpa hugsa til mögru áranna.

P9120013

 

Við tókum góðan túr um svæðið og þarna er Unna að sýna okkur hvar stóri vöðvinn er, þessi sem hún notaði þegar hún stikaði heiman að frá sér til mín.

P9120014

Það er þessi hérna, sérðu til.

Á föstudagskvöld var ég með sætaferðir á Skautadiskó. Þar sem við keyrðum framhjá staðum þar sem andanefjarnar eru alltaf sáum við þetta og ég smellti út um gluggann nánast á ferð. Nei, nei ég var stopp.

P9120015

Sjáiði uggann.

 

Fyrst þarf að fara í skautana.

P9120022

 

Vá hvað ég er flínk.

P9120019

 

Um hádegi á laugardag var svo boð í  sjö ára afmæli.

P9130023

Erum við nokkuð bleikar?

Borðuðum í fyrra lagi í kvöld og svo skelltum við okkur, ég og gaurinn að athgua hvort við myndum nokkuð sjá andanefjurnar. Ég hef alveg séð þær en ekki hitt á eins flott og margir aðrir.

P9140050

Þarna er hann á göngu og sjáiði bílaröðina.

Ég náði bara einni en hún var hreyfð. Skelli henni samt inn. Veit að gæðið eru ekki góð.

P9140053

Ótrúlegt að sjá þær svona nálægt. Tók smá video líka. á eftir að skoða það. Set það inn ef ég er ánægð.

Annars bara sigli ég nú inn í nýja viku með kortið í myndavélinni tómt. Stefni á ferð í borg óttans um næstu helgi.  Skóli á laugardag og svo flotta ráðstefnan á sunnudag. Er einhver bloggari til í kaffihús á hádegi á sunnudag?

Eigiði góða vinnuviku, það ætla ég að gera.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga skjol

Það vantar ekki Anna mín, alltaf nóg að gera hjá þér og ekkert smá gaman að sjá þetta í máli og myndum.

Knús inní nýja viku mín kæra.

Ps. síminn minn er kominn í gagnið aftur ef þú vilt bjalla og boða þig í kaffi

Helga skjol, 15.9.2008 kl. 05:53

2 Smámynd: Erna

Við eru flottar Anna mín  Takk fyrir myndirnar ef þú verður kaffiþyrst þá veistu hvar ég á heima

Erna, 15.9.2008 kl. 09:54

3 identicon

Ótrúlegur fjöldi mynda og alltaf gaman að skoða slíkt. Heimalærdómur, afmæli, andanefjur... þetta er mikið að skoða og það er bara fínt. Kærar kveðjur, dúlla.

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 15.9.2008 kl. 10:11

4 identicon

Þetta var sko gaman líka þegar við sáum að við vorum á bannsvæði!!!!  Já sannarlega erum við flottar og stóri vöðvin líka ( gaman að finna svona vöðva sem maður veit ekki að eru til humm) Flottar myndir.  Já Erna eg veit líka hvar þú átt heima     Svo á eg stundum kaffi þó íbúðin mín sé lítil 

Unnur María Hjálmarsdóttir (IP-tala skráð) 15.9.2008 kl. 10:14

5 Smámynd: Renata

ég sakna svo Akureyri þegar ég skoða myndir   smá nostalgía í mér í dag.

Flottar myndir og flottar konur

Renata, 15.9.2008 kl. 12:57

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Æði Anna Guðný mín  frábærar myndir, og ég sé að ég get ekki komið í heimsókn til Ernu nema að þú komist að því elskan
Knús kveðja
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 15.9.2008 kl. 17:25

7 Smámynd: Anna Margrét Bragadóttir

Þú ert svo dugleg að setja inn myndir,enda gaman að skoða bloggið þitt ;)

Anna Margrét Bragadóttir, 15.9.2008 kl. 22:01

8 Smámynd: Anna Guðný

Já Helga mín, nóg að gera. Ætlaði að heyra í þér í fyrramálið en tók auka símavakt.

Erna: Er kaffiþryst oft þannig að ég kem þegar þú átt síst von á því, samt ekki miðvikudag

Doddi: Já nóg að gera ef maður bara vill. Hef oft verið að hugsa um hvernig í ósköpunum móðir min fór að þessu með átta börn á tíu árum.

Unnur: Ég er svo ánægð með að eiga svona kaffiboð í öllum hverfum Bara gaman. Svo reytti frú Breiðfjörð upp grænmetisuppskeruna hjá starfsmönnum Bústólpa.

Renata: Bara koma í heimsókn. Færð gistingu hjá mér, ef þú þarft.

Milla mín: Kemst ekki í heimsókn, nema vitandi af mér á gæjum. Annars væru það meiri líkur á því að eiginmaðurinn sæi þig, því hann fer út að reykja. Hafðu það gott ljúfan.

Nafna mín: Takk fyrir þetta. Mér finnst svo gaman að setja þetta inn. Gaman að einhverjum líkar það.

Halldóra: Ég geymi kleinurnar

ditta: Takk fyrir innlitið og hafðu það gott ljúfan.

Anna Guðný , 15.9.2008 kl. 23:29

9 Smámynd: JEG

Já vá mín kæra mikið er lífið skemmtilegt og annasamt hjá þér.  Hér er maður að setja olíu á gírkassann fyrir smalahelgina sem verður næstu helgi og svo allt fjárragið sem því fylgir. 

Já jæja best að fara að baka.

Knús og kelmm úr sveitinni.

JEG, 16.9.2008 kl. 11:21

10 Smámynd: Anna Guðný

Halldóra, ef þú vilt súkkulaðiköku þá verðurðu að láta vita með fyrirvara hvenær þú kemur.Ok?

Jóna mín: Smalahelgin mikla framundan, eins og það verði ekki sæmilegt að gera hjá þér líka. Ég keyri framhjá þér á föstudag og svo aftur heim á sunnudagskvöl. Mun vinka í þig. Verð ekki sjálf á bíl, svo ég kíki ekki við.

Anna Guðný , 16.9.2008 kl. 12:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Guðný
Anna Guðný

Langar að æfa mig í að setja saman texta. Sé til hvað ég gef mér mikinn tíma í það.

Sjálfstæður Herbalife dreifingaraðili. www.heilsufrettir.is/anna

Þeir sem vilja hafa samband má benda á netfang sem er: ollana@simnet.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 201286

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Um bloggið

ollana

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband