Leita í fréttum mbl.is

Kalla eftir upplýsingum!

Hef verið að hugsa, hvernig stendur á því að einhver hælisleitandi hefur verið hér í þrjú ár og hefur ekki fengið , ja annaðhvort reisupassann eða landvist? Ég er ekki að leita eftir: þá á að eða mér finnst það eigi að, heldur af hverju er ekki hægt að taka á þessu fyrr? Verð að viðurkenna að ég hef ekki skoðað þessi mál svo gjörla, kannski aðallega vegna þess að þau hafa ekki snert mig persónulega. Bý eins langt frá svæðinu sem allt þetta er að gerast og hægt er.Mér dettur ekki í hug að vera eitthvað með eða á móti. Það er með þessa lögregluagerð, eins og flestar aðrar. Það koma alltaf eftirá einhverjir besservisserar og tjá sig um hvað hafi farið úrskeiðis  og hvað lögreglumennirnir hafi gert vitlaust.

Hvað segiði um þetta?

Vinsamlegast almenna kurteisi, annað verður hreinsað út.


mbl.is Hælisleitandi mótmælir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Sæl Anna Guðný.

Ég var einmitt að setja inn færslu um þetta mál. Það er undarlegt ef fólk má ekki eiga skotsilfur í fórum sínum þó það sé hælisleitendur. Og enn óeðlilegra hlýtur það að vera fyrir hvern og einn að mega ekki vinna fyrir sér í allt að þrjú ár, á meðan beðið er eftir afgreiðslu á umsókn um hæli.

Hvaða tilgangi þjónar þessi seinagangur á að afgreiða umsóknir þessa fólks? Spyr sú sem ekki veit.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 13.9.2008 kl. 20:21

2 Smámynd: Anna Guðný

Takk fyrir þetta Ólína. Þarna eru einmitt spurningar sem ég hef verið að velta fyrir mér. Mega hælisleitendur  ekki eiga peninga þegar þeir koma til landsins? Og ef þeir mega það, eiga þeir þá að tilkynna það þannig að það séu til upplýsingar. Þetta með vinnuna, ok get alveg keypt að það sé ósanngjarnt að þeir megi ekki vinna á meðan þeir bíða en lögin eru nú samt svoleiðis og þeir vita það og við vitum það. Það má ekkert frekar brjóta ósanngjörn lög heldur en sanngjörn.  Þessi seinagangur minnir mig á störf umhverfisráðherra hérna þegar tók hana heila sex mánuði að tilkynna ákvörðun í sambandi við heilstæða umhverfismatið. Þetta kalla ég að draga fólk á asnaeyrunum.

 Takk fyrir athugasemdina.

Anna Guðný , 13.9.2008 kl. 23:18

3 identicon

ég tekki til málana og svona er staðan. Peningar voru haldlagðir ekki gerðir upptækir. Tað er verið að skoða málin. Tetta fólk er á dagpeningum vegna tess að tað sagðist ekki eiga KRÓNU! og svo er fólk tarna sem við vitum að er frá Evrópu enn tað er að segja að tað sé frá Afríku! Svo eru tarna nokkrir með mörg vegabréf í sínum fórum og ganga undir mörgum nöfnum og eru hér í svartri vinnu. Er eitthver sem ekki vill láta kanna svona mál hérna!?

óskar (IP-tala skráð) 13.9.2008 kl. 23:54

4 Smámynd: Anna Guðný

Takk fyrir þetta Óskar. Þetta verður allt kannað, efast ekki um það. Ég fylgist með. En það svarar samt ekki aðalspurningu minni. Af hverju tekur þetta þennan óskapa tíma? Eða tekur þetta  kannski ekki langan tíma? Kannski lengri tíma með suma? Held að það væri áhugavert að fá útskýringar þannig að allavega við sem erum að velta þessu fyrir okkur skiljum þetta ferli.

Endilega hafðu samband við mig ef þú getur. ollana@simnet.is

Anna Guðný , 14.9.2008 kl. 00:28

5 Smámynd: Erna

Ég er sammála þér, ótrúlegur seinagangur í þessum málum. En takk fyrir síðast, kaffið og kleinurnar. Eigðu góðan dag .

Erna, 14.9.2008 kl. 13:09

6 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Svona er þetta í Danaveldi og mikið verra, fólk er í flóttamannabúðum alt uppí 9 ár og margir hafa hreint út sagt orðið geðbilaðir, sérstaklega konur, þola ekki þessa innilokun

Kristín Gunnarsdóttir, 14.9.2008 kl. 15:57

7 Smámynd: Anna Guðný

Takk fyrir innlitið stelpur. Er búin að vera að fá viðbrögð í dag á netpósti. Skrýtið að sumir treysta sér einfaldlega ekki til að koma undir nafni, eða svara í athugasemdadálkinn. Allt sem ég hef fengið er skrifað á mjög kurteisan hátt og þakka ég fyrir það. Er búin að fá að hluta til skýringar á spurningum mínum. T.d. að það er ekki nóg að einhver fyrirspurn sé send héðan fljótt og vel. Það eru litlar líkur á því að þeir aðilar í þeim löndum sem fyrirspurnirnar eru senda til svari fljótt og vel. Ég get skrifað mikið meira um það sem er í kollinum en læt það bíða.

Hafið það gott.

Anna Guðný , 14.9.2008 kl. 16:13

8 Smámynd: Anna Guðný

Samt eitt hérna. Skil alveg að manneskja verði geðbiluð eftir níu ár á biðlista. Ég yrði það trúlega líka.

Anna Guðný , 14.9.2008 kl. 16:15

9 Smámynd: Anna Guðný

Elsku Halldóra min, ég skal bara geyma kleinupoka spes fyrir þig og svo hellum við uppá þegar þú kemur í bæinn. Sátt við það?

Anna Guðný , 14.9.2008 kl. 23:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Guðný
Anna Guðný

Langar að æfa mig í að setja saman texta. Sé til hvað ég gef mér mikinn tíma í það.

Sjálfstæður Herbalife dreifingaraðili. www.heilsufrettir.is/anna

Þeir sem vilja hafa samband má benda á netfang sem er: ollana@simnet.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 201285

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Um bloggið

ollana

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband