Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008

Stuð á rokkurunum.

Kannski hafa þetta bara verið svona gamaldags slagsmál  þar sem þú bara lemur gaurinn og ef hann er kominn í jörðina þá ert þú búinn að vinna og labbar í burtu ánægður með sjálfan þig. Gaurinn stendur svo upp eftir nokkrar mínútur, illt í hausnum að vísu en er búinn að ná sér eftir nokkra daga.

Gaman að heyra hvað allt er þokkalegt rólegt hér á Akureyri. Við erum allaveg búin að hafa það gott hér.

Við dreifingaraðilar fengum góða gesti í heimsókn og héldum fund í gær. Í dag er meiningin að fara út á göngu og reyna að draga börnin með. Hver veit nema myndavélin fari með.


mbl.is Erill á Ísafirði en rólegt á Akureyri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er í vinning?

Ég gat nú ekki annað en brosað þegar ég sá þessa frétt. En fyrst þeir eru að mótmæla þá er nú fínt að það er eitthvað svona saklaust eins og Bingó.
mbl.is Vantrúaðir spila bingó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Venjulega betra að vera nr. 1 en nr. 2.

Verður spennandi að fylgjast með keppninni. Friðrik Ómar, Regína og öll hin. Gangi ykkur rosalega vel.
mbl.is Ísland fer fyrst á sviðið í forkeppni Eurovision
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

hann hringir oft þegar maður er í baði.

Stundum hef ég tekið hann með ef börnin eru einhverstaðar sem þarf að ná á mér, en oftar set ég bara á á tali. Málið er nefninlega að það er alveg ótrúlega oft sem hann hringir á þessum tíma.


mbl.is Í bað með símann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jahá.

Þetta er í fyrsta skipti sem ég upplifi það að vera fréttamaturinn á mbl og vita allt frá A-Ö. Ég er nefninlega eigandi kattarins. Skrýtið að sjá þessa frétt og vitnað í íbúa í hverfinu. Af hverju var ekki talað við eigendurna? Skrýtið!!  "Að endingu kölluðu íbúarnir til slökkvilið". Ég var búin að vera í sambandi við þá síðan um morguninn, og þeir voru búnir að keyra fram hjá oftar til að sjá hvort hún færi ekki neðar.

Stigi var reistur við tréð og slökkviliðsmaður klifraði upp en kötturinn fór ofar og ofar þegar maðurinn nálgaðist. Á endanum var kisi kominn upp í topp trésins og komst því ekki lengra og brá þá á það ráð að spræna á bjargvættinn.   Drama,drama. Bíddu við, svona verða ýkjurnar til. Hún var nánast efst  og fór aðeins ofar. En mikið rétt að slökkviliðsmennirnir eru ýmsu vanir og eiga þeir miklar þakkir skildar. 

Var að sjá eitt núna seinna. Það stendur að þeir hafi mætt með sjúkrabíl með stigann en auðvitað var það slökkviliðsbílinn. Stiginn er heldur stór fyrir sjúkrabíl.

 Það má örugglega deila um hvort átt hafi að bjarga kettinum eða ekki. En stelpur, hvað eigum við að gera ef stór, ljótur karl kemur og eltir okkur? Ok, við komumst kannski ekki upp í tré en við reynum allavega að flýja, eins langt og við komumst.

Og ég er alveg viss um að hún Kisa min pissaði af gleði og engu öðru þegar bjargvætturinn nálgaðist hana.Wink

Picture 105Gunnar klifurmeistari með Kisu.


mbl.is Sprændi á bjargvættinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kisa orðin fræg.

 

 Picture 104Bið.

Anna Elisabet tilbúin með teppið, Eliana Sól bíður spennt eftir því að sjá Kisu. Hún var nefninlega of langt uppi til að hún gæti séð hana. Axel gamli situr við gluggann og fylgist vel með.Það er langt síðan það hefur verið svona mikið fjör í garðinum hans . Hann hafði orð á því að tréin væru nú orðin nokkur há. Villa stendur fyrir aftan. Allir bíða.

Kisa orðin fræg og komin í blöðin. Fékk símal utan af sjó áðan og var sagt að fréttin hefði verið lesin. En ég á nú samt miklu betri mynd af Gunnari bjargvætti. Hefði getað sent þeim hana.


Ég og dýr.

Þetta er nú búið að vera meiri dagurinn. Kisa föst í tré í heilan sólarhring og ég miður mín. Ég hélt bara ég færi að grenja þegar ég heyrði að hún hafi verið þar alla nóttina. En þessi dagur hefur kennt mér nokkuð og það er að Kisa er sterkari en ég hélt. Og annað að ég verð meirari með hverju árinu sem líður. Ég er orðin svo "soft" að það er eins gott að Kisa eignist ekki kettlinga. Ég gæti ekki horft upp á hana eignast þá og þurfa svo að láta þá fara. Ég myndi bara gráta með henni.

En það var annað áfall" í fjölskyldunni í gær. Málið er að hún Agla Rún hefur átt tvo hamstra í nokkra mánuði. Svo gaf annar upp öndina þannig að Trítill var einn eftir. Ég hálfvorkenndi honum fyrir að vera svona einn alltaf þannig að ég lét undan þegar Freyja vinkona þurfti að losna við kall hjá sér. Það væru svo mikil slagsmál og læti að ég væri bara að gera henni greiða.

Þegar sá nýji kom í búrið upphófust slagsmál og við ákváðum að gefa þeim tímann yfir nóttina og sjá svo til. Heyrðu, daginn eftir allt komið í það fína. Voru að vísu búnir að rústa öllu í búrinu. Skil ekki alveg hvernig þeir gátu tekið lokið af húsinu, ýtt sjálfu húsinu til hliðar en sett þakið útí horn og svo lágu þeir þar undir í mesta bróðerni morguninn eftir.En vitiði bara hvað? Haldiði að stóri, feiti kallinn frá henni Freyju hafi ekki átt unga í fyrrinótt. Og ekki bara einn heldur þrjá. Þannig að stóri feiti kallinn sem var ekki lengur stóri, feiti kallinn heldur  stóra ólétta kellingin fjölgaði hamstrakyninu þarna. Mér skilst að það sé frekar óvanalegt að kallinn hafi ekki étið þá og hann hefur enn ekki gert það. En liggur alltaf í húsinu með kellu sinni og ungunum.

Veit ekki alveg hvernig ég á að höndla þetta. Hef ekki samvisku í að skila kellingunni, þau eru svo miklir vinir. Svo fékk ég annað áfall í gær þegar mér var sagt að meðgangan væri bara 16 dagar. Það þýðir að ef ég skila henni ekki þá get ég verið komin með tugir unga eftir nokkrar vikur. Ætli ég sofi ekki á þessu þangað til Olli kemur heim.


Kisan laus úr trénu eftir sólarhring.

Picture 099  Picture 105

 

Picture 104       Picture 106Slökkviliðin mætt til bjargar. Þarna eru Gauti, Vigfús og Gunnar held ég að bjargvætturinn heiti. Ef einhver veit betur þá endilega leiðréttið mig.

Neðri myndirnar eru af Önnu Elísabet tilbúin að taka á móti Kisu sinni.

En ég komst að því að aumingja Kisa okkar var búin að vera þarna í heilan sólarhring. Þau í næsta húsi voru búin að reyna mikið í gær að ná henni niður en vissu auðvitað ekki hverjir ættu hana.


7-8 tímar upp í tré.

Picture 085Og þarna er Picture 087hún ennþá í trénu sem ber við strompinn á húsinu.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Anna Guðný
Anna Guðný

Langar að æfa mig í að setja saman texta. Sé til hvað ég gef mér mikinn tíma í það.

Sjálfstæður Herbalife dreifingaraðili. www.heilsufrettir.is/anna

Þeir sem vilja hafa samband má benda á netfang sem er: ollana@simnet.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Um bloggið

ollana

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband