Leita í fréttum mbl.is

Laugardagur til lukku.

Ákváðum að túristas í dag. Skella okkur austur í Mývatnssveit og koma við á Húsavík í bakleiðinni. Var sniðug og boðaði mig í kvöldmat hjá coca cola frænda á Húsavík. Og til að hafa þetta nú eins ódýrt og hægt var, (nóg er nú olían) voru smurðar samlokur í nesti svo ekki þyrfti að stoppa í sjoppu á leiðinni.  Rigning alla leið austur og skyggni því ekki upp á það besta en þegar þangað kom rétt dropaði. Á leið austur áttaði ég mig á því að börnin mín höfðu aldrei komið í Dimmuborgir. Svona rétt að ég kunni við að viðurkenna það.Var því ákveðið að labba einn hring þar.

P7120025

Komin í Dimmuborgir og eru bara spennt.

 

Við lentum með í  hópi erlendra ferðamanna og fengum að sjá fálka upp í kletti. Þar sat mamman í hreiðrinu. Hafði átt fjóra unga. Allir farnir á fljúga, sá síðasti fyrir tveim dögum. Því miður var smárigning, annars hefðum við fengið að sjá í kíki en þetta verður að duga.

P7120026

Fálkamamma súmmuð eins og hægt en við fengum ekki að koma nær.

 

Börnin mín, og þá sérstaklega valkirjan var mjög upptekin af því hvort það byggju álfar þarna í hrauninu. Eða hvort jólasveinarnir kæmu nokkuð og hrekktu okkur.

P7120041

Mamma, það eru örugglega álfar þarna.

Ég var eiginlega búin að gleyma kirkjunni. Hversu tignarlega hún væri og flott. Orðið alltof mörg ár síðan ég kom síðast.

P7120054

Þarna var birtan mjög skrýtin, veit ekki hvort það var vélin eða veðrið svona.

P7120070

Valkirjan ánægð með gönguna en fannst þó alveg komið nóg.

 Þó við værum með nesti með okkur var þó ekkert salerni í bílnum. Ég skellti mér því  í biðröð með hinum túristunum í Samkaup. Og hm.... ekki get ég nú alveg verið ánægð með aðstöðuna þar.  1 kvennaklósett!!!!! Er ekki allt í lagi???? Allar þessa rútur sem koma og fæstir geta yfirleitt verslað í búðinni af því að þeira eyða svo löngum tíma í biðröð við klósettið. Karlmennirnir voru auðvitað fljótir og drifu þetta af. En þegar þær ætluðu síðan að flýta fyrir sér og nota þetta eina klósett sem var inni hjá þeim þá var það læst!!!! Halló, er ekki ennþá í lagi??   Ég ætlaði svo að fara inní verslunina og spyrja hvort ekki væri hægt að opna en þegar ég fór út, þá mætti ég einni með lykil. Veit ekki hver sér um þetta. Ekkert víst að það sé verslunin en þetta finnst mér nú einum of. Það myndi strax breyta miklu að hafa annað kvennaklósett. Það er enginn smá fjöldi sem rennur þarna í gegn á sumrin. Ég hefði ekki boðið í það að vera með smábarn í spreng.

En allavega, við brenndum til Húsavíkur og mættum þar á góðum tíma í steiktan kjúkling og tilbehör. Frábær matur og það er svo gaman að koma með börnin í mat þar sem þau borða allt sem er á boðstólum. Það munar öllu hvort maður nýtur sín sjálfur.

Börnin fóru beint í coka cola herbergið og nú fékk valkirjan leyfi til að mynda gersemarnar.

P7120076

Nokkrar flöskur.

P7120079

Nokkur glös líka.

P7120090

Og hér knúsar hún eina flösku.

P7120098

Hér er svo frændi sjálfur.

Eftir góðan mat, marga kaffibolla og langt spjall, aðallega um "gamla daga" í Bárðardal var lagt af stað heim.  Unglingurinn var að fara að passa í kvöld þannig að við máttum ekki koma of seint. En þó vildi ég  endilega koma við í Vaglaskógi á leiðinni og ná nokkrum góðum myndum. Þær urðu nú ekki svo góðar af því við gáfum okkur ekki tíma til að stoppa en þó fannst mér samt nokkrar flottar. Og set ég því þrjár inn inn í lokin.

P7120103

Hver man ekki eftir þessari?

P7120110

Tjaldað á ferð.

P7120133

Skýrir sig sjálf, ég hef aldrei séð svona.

En þá er þessi dagur að kvöldi kominn, eða eiginlega nóttu og því best að ég fari að kíkja á koddann.

Eigiði ljúfa helgarrest.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: JEG

Þetta hefur verið frábær dagur hjá þér eddagn mín. Ég hef jú séð Dimmuborgir en það er allt og sumt innfór ég ekki (tímaskortur)

Já sæll kóksafnið Váá..... Minn fyrrverandi fyrrverandi var svona kókari líka og átti slatta af kókdóti. En þetta er magnað.

Flottar myndir. Gaman að eiga svona ferðir á mynd. Nauðsynlegt sko.

Knús og klemm úr sveitinni.

JEG, 13.7.2008 kl. 10:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Guðný
Anna Guðný

Langar að æfa mig í að setja saman texta. Sé til hvað ég gef mér mikinn tíma í það.

Sjálfstæður Herbalife dreifingaraðili. www.heilsufrettir.is/anna

Þeir sem vilja hafa samband má benda á netfang sem er: ollana@simnet.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 201321

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Um bloggið

ollana

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband