Leita í fréttum mbl.is

Tölvur.

Eitt af því gáfulegasta  sem ég hef  lært í sambandi við þessi stóru tæki okkar eins og tölvur og routera er að ef eitthvað virkar ekki þá er það það fyrsta sem þú gerir að restarta. Þú hefur alls ekki samband við viðgerðarmann fyrr er þú ert allavega búin að restarta einu sinni. Ef það virkar ekki , þá er allt í lagi að hafa sambandi við viðgerðarmanninn, þ.e.a.s. ef þú ert með viðgerðarmann eins og ég sem virðist aldrei verða þreyttur á mér, sama hversu oft ég hringi til að fá ráðleggingar.

En þetta byrjaði sem sagt þannig í gær að ég hætti að geta komist inn á mbl.is, eða réttara sagt ég sá kynninguna á bloggurunum en svo þegar ég ætlaði að ýta á nánar datt allt út. Séstaklega pirrandi þegar ég sá eitthvað spennandi en komst svo ekki lengra. Mikið rosalega er maður háður því að komast á netið. Hvorug tölvan á heimilinu virkaði  þannig að ég gat útilokað tölvubilun. Netið var líka inni því ég gat sótt póstinn. Allavega ekkert virkaði í gærkveldi og ennþá bilað í morgun., Mín ekki alveg ánægð. Eftir hádegi gafst ég upp og hringi í Reyni tölvugúrúinn . Ertu búin að restarta routernum? spyr hann. Routerinn er það eina sem sameinar tölvurnar

Úbbs, nei ekki ég. En ég vissi samt að ég hafi átt á byrja á því.  Ok, ég prófaði að restarta fína routernum frá Símanum.  og vitið menn, allt virkar eins og smurt. Ég gat farið að lesa blogg, en finn nú samt ekki þetta sem ég sá smá um í  gærkveldi. Það var kona sem hafði skrifað færslu og svo fengið frá einhverjum ja hvað ættum við að kalla þá þessa sem fara alltaf í neikvætt, ekki endilega dónar eða kjaftur heldur geta ekki samglaðst neinum, öfunda alla og trúa alltaf því versta upp á fólk. Verð að leita að henni  í kvöld.

En ef ég tek þetta saman þá þá er bara ein ráðlegging til ykkar.

Byrja á að restarta!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Guðný
Anna Guðný

Langar að æfa mig í að setja saman texta. Sé til hvað ég gef mér mikinn tíma í það.

Sjálfstæður Herbalife dreifingaraðili. www.heilsufrettir.is/anna

Þeir sem vilja hafa samband má benda á netfang sem er: ollana@simnet.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 201351

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Um bloggið

ollana

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband