Leita í fréttum mbl.is

Sumargaman!

Þó það sé nú ekki beint sumarlegt verðurfarslega hér á Akureyri í augnablikinu þá er nú ýmislegt sem við gerum okkur til skemmtunar.Og sitthvað sem bæjarfélagið býður börnum upp á í sumar fyrir ekki svo mikið pening.

Í síðustu viku var gaurinn á námskeiði sem heitir Sumarlestur.

Alltaf kemur betur og betur í ljós að þau börn sem ná fljótt og vel tökum á lestri standa mun betur að vígi í öllu námi en önnur börn. Með því að hvetja barnið ykkar til að taka þátt í Sumarlestri stuðlið þið að því að það hætti ekki að lesa í sumar og haldi þeirri lestrarfærni sem það öðlaðist í vetur.

Þetta segja aðstandendur námskeiðsins. En auðvitað gerðu þau miklu meira. Heimsóttu fleiri söfn, fengu að gera bát og sigla honum og fl. og fl.

En í dag voru gaurinn og valkirjan að byrja í nýju.

Byggja kofa.

Þetta er mánaðarprógramm, þrír tímar í senn alla virka daga.Fullt af krökkum eða réttara sagt fullt af strákum. Mér skilst að mín sé eina stelpan í hópnum. Henni leist ekkert á það til að byrja með en svo reddaðist það þegar hún vissi að þau mættu taka kofana með heim.

Meiningin er að þau byggi tvo kofa saman. Þannig að þau klári einn og taki svo annan ef tími vinnst til.

Mér líst mjög vel á aðstoðarmennina sem þau fá.

P6300004

Óðinn og Eggert. Kofabyggingarsérfræðingar.

 

 Stoltir smiðir.

P6300002

Afrakstur dagsins. Hornin komin.

Ég set svo inn hérna myndir og þá getiði fylgst með þegar mynd kemur á byginnguna.

Þar til næst


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: JEG

Mikið satt ! Það er ekert sumarlegt við veðurfarið á Akureyri þessa dagana. En ég var einmitt þarna í gær. Birrr..... kalt og snjór niður á veg á Öxnadalsheiðinni úfff um hásumar. En þetta var nú engin ósköp. En Sem betur fer var nú ekki mikið þoka svo ég gat notið útsýnisins hjá stjúpdóttur minni en hún er á flottum stað með gott útsýni.

Frábært svona námskeið. Iss ekkert svona hjá okkur nema íþróttaæfingar á þri og fim KVÖLDUM já þegar maður er að koma litlu ormunum í bælið og já ég er um 20-25 mín að keyra aðra leiðina. Svo nei minn fær bara verkefni heimafyrir. (enda bensínið rándýrt og ég vond mamma)

En til stendur að byggja kofa hér í sumar og hann verður ca. 4-6x stærri en þessi sem þín byggja.  Já gaurarnir eru sko búnir að minna afa sinn á það að hann ætlaði að smíða með þeim kofann. Nú vantar bara að taka grunninn hehehe....

Knús á þig og vona að það fari nú að hlína hjá okkur.

JEG, 30.6.2008 kl. 22:01

2 identicon

já það er alltaf eitthvað að gerast í kringum þig.

Unnur María Hjálmarsdóttir (IP-tala skráð) 30.6.2008 kl. 23:22

3 Smámynd: Tiger

Ég er alveg sammála því að maður á að vera duglegur að ýta bókum að börnunum á sumrin. Snilld að taka með góðar bækur með einhverju sem snýr að áhugasviði barnanna - og láta þau lesa á meðan keyrt er í ferðalögum t.d.

Sannarlega satt að góðir lestrarhæfileikar stuðla að meiri árangri í námi.

Þau eru stórglæsileg bæði tvö - börnin. Yndislegt að geta leyft þeim að taka þátt í svona ævintýrum á sumrin, enda líka mun heilbrigðara að koma þeim í svona en að leyfa þeim endalaust að vera inni í leikjum og tölvu ...

Brilljant bara og hlakka til að sjá smíðavinnuárangurinn. Knús yfir til ykkar allra og eigðu ljúfa viku framundan.

Tiger, 1.7.2008 kl. 01:16

4 Smámynd: Helga skjol

Dugleg ertu kona, ég er einmitt að velta því fyrir mér að bjóða títluni að fara þarna þegar hún kemur frá Akranesi.

Knús á þig og þína mín kæra

Helga skjol, 1.7.2008 kl. 09:12

5 Smámynd: Renata

vá, það er nú blogggleði hjá þér, hahaha, ég létt náði að klára lesa eitt og það er komið nýtt. Gaman á þessu.

Það sem ég er bókaormurinn hinn mikli finnst frábært framtak með lestranámskeiði, áfram, áfram!!!

Renata, 1.7.2008 kl. 10:00

6 Smámynd: Anna Guðný

Takk öll fyrir innlitið.

JEG: Já, það er svona í sveitinni, allt miðst við eftir mjaltir.Og þá er bara komið að svefntíma yngri barnanna. En við getum huggað okkur við að þau eldast.Þetta er fyrsta árið mitt sem ég finn að við getum gert eitthvað eftir kvöldmat.Ekki bara beint að útbúa svefn.Og á ekki að hlýna á fimmtudag?

Helga: Takk fyrir innlitið.

Unnur: Gaman að sjá að þú ert komin heim aftur. Og að þið höfðum það gott í Tyrklandi.

Tiger: Sammála þessu, og svo frábært að bæjarfélagið bjóði upp á þetta og kostar mjög lítið þannig að allir geta sett börnin sín á svona námskeið. Valkirjan min bíður spennt eftir því að komast. Og þetta með kofabyggðina. Sem betur fer kom ein önnur stelpa þannig að ég held þær séu tvær og svo vonandi títlan hennar Helgu.Og sammála með frábært að vera úti í veðrinu, ekki bara góða heldur líka smá kalt og rigning. Nóg til að hlífðarfötum.Bara gott að fá rjóðar kinnar.

Helga: Endilega lofa henni að vera með. Er bara gaman.Svo á ég bara eftir að finna pláss fyrir tvo kofa á lóðinni hjá okkur. Dugleg? Já, ok takk fyrir það en veistu ég  er með tíma fyrir mig á meðan.  Það er líka gott. Og svo passlegur tími.

Renata: Já, veistu svo eyddi ég löngum tíma í sunnudagsbloggið og fék ein viðbrögð og svo nokkrum mínútum í það næsta og komin með nærri 30 viðbrögð. Svona er þetta misjafnt.

Þetta með lesturinn. Sem betur fer hafa öll mín börn gaman að lestri og lesa alltaf áður en þau fara að sofa. Gaurinn á kannski erfiðast með að hætta , ef bókin er spennandi

Anna Guðný , 1.7.2008 kl. 10:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Guðný
Anna Guðný

Langar að æfa mig í að setja saman texta. Sé til hvað ég gef mér mikinn tíma í það.

Sjálfstæður Herbalife dreifingaraðili. www.heilsufrettir.is/anna

Þeir sem vilja hafa samband má benda á netfang sem er: ollana@simnet.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 201258

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Um bloggið

ollana

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband