Leita í fréttum mbl.is

Verðlag!

Eins og þeir sem hafa lesið bloggið mitt hafa séð þá erum við að fara í sólarlandaferð, við hjónin og börnin þrjú. Nú í morgun kom í ljós að ferðataskan okkar var ónýt eftir síðustu ferð og við höfðum bara ekki tekið eftir því. Eiginmaðurinn ferð því í innkaupaleiðangur að kaupa nýja tösku. Hann hringir eftir stutta stund og segir: Anna , taska, svipuð að stærð og okkar gamla kostar yfir 36 þúsund krónur!!Devil

Verð að viðurkenna að ég var ekki alveg að kaupa að þetta væri bara venjuleg ferðataska af stærri gerðinni. En ákvað nú samt að fara sjálf og sjá t.d. hvað tegund þetta væri eiginlega og fyrir hverja þessar töskur væru.Ekki svo mikið af yfirstéttarfólki hér í bæ. (hélt ég allavega)Svo var þetta "bara bókabúð" en ekki ránýr sérverslun. En ég sá merkið og því ákváðum við að leita betur og sjá hvort við gætum virkilega ekki fundið ódýrari tösku.

Fórum í aðra "bókabúð" og fundum tösku stærri, 140 lítra í stað 122, að vísu á tilboði og hafði lækkað um ca. 5000 krónur.

Kostaði þar að leiðandi um 15.000 í stað tæp 20.000

15.000 þúsund króna munur!!! Er ekki allt í lagi?????

Önnur taskan er Delsey og hin Samsonite. Bæði held ég ágæt vörumerki.

Hvor haldiði nú að hafi veri dýari og hvor ódýari?

Og þið sem þekkið til , hvaða verslanir haldiði að þetta hafi verið?

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Er það ekki penninn sem er með samsonite...er þá hin verslunin office one?

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 20.5.2008 kl. 13:09

2 Smámynd: Lindan

Anna mín... Bara pakka í íþróttatöskur og kaupa svo ferðatösku úti.  Krakkarnir verða á sundfötunum allan tímann ;-)

Lindan, 20.5.2008 kl. 13:19

3 Smámynd: Anna Guðný

Krumma: Office One er lokuð vegna flutninga á Glerártorg , svo það er ekki þar. Enda held ég að hann Jón hefði haft töskur á góðu verði.

Linda: Börnin eiga öll sínar töskur , þau sjá um sig.

Anna Guðný , 20.5.2008 kl. 13:28

4 Smámynd: Renata

Jaaaa hérna...

Ég er orðin von að kaupa mér ódýru töskur í Rúmfó, enda er engin virðing borin fyrir töskunnar á flugvöllum og hvort hún kostaði 4 þús eða 40  þús - kemur jafn mikið ónýtt á færibandi eftir flugi.

En njóttu ferðarinnar og komdu brún og sæl til baka  

Renata, 20.5.2008 kl. 13:29

5 Smámynd: Anna Guðný

Renata: Ég set það eiginlega sem skilyrði að ég komist heim úr fyrstu ferðinni. Það tókst ekki með töskunni úr RL búðinni. Þannig að ég bara að ég sleppi þeim. En gott að þú varst heppnari en ég.

Anna Guðný , 20.5.2008 kl. 13:47

6 Smámynd: Anna Guðný

ég held auðvitað að ég sleppi þeim.

Anna Guðný , 20.5.2008 kl. 13:48

7 identicon

Eg keypti tösku handa Helga um daginn í Rúmfó sem er mjúk og LÉTT. Hún virðist vera fín og sterk. Og fæst í svörtu og neongrænu man ekki hvort það voru fleiri litir. Annars á maður bara að fara með lítið og skola bara úr því , stundum eru þvottavélar á staðnum.        Svo á maður að vefja allt upp þá kemst meira í töskuna og það fer betur með fatnaðinn

Unnur María Hjálmarsdóttir (IP-tala skráð) 20.5.2008 kl. 14:06

8 Smámynd: Erna

Ég var heppinn fór á útsölu hjá Office one og fékk þriggja töskusett á 8000, sem átti að kosta tæpar 15000, mjög fínar og vandaðar töskur.Annars hef ég yfirleitt keypt töskur úti það hefur borgað sig. Ég segi góða ferð við þig og þína Anna min og njótið lífsins á Tenerife Ég fer út á morgun.

Erna, 20.5.2008 kl. 14:58

9 Smámynd: JEG

Kallinn minn keypti 3 tösku sett fyrir 3 árum sem við höfum aldrei notað. Lánuðum eina og það sér nú ekki á henni samt. En það er lítið að marka svona sveitalubba eins og mig sem fer ekkert nema til að versla í matinn hehe.... Skrepp í Rvík af og til en ekki til þess að gista enda er maður ekki lengi á milli.

En ég myndi ekki tíma að versla mér rándýrar töskur eins og farið er með þetta á völlunum. Í þetta eina skipti sem ég hef farið út og btw ekki með nyja tösku en þeim tókst að skemma töskuna mína á vellinum (á heimleiðinni)

En góða ferð og skemmtið ykkur vel.

JEG, 20.5.2008 kl. 17:52

10 Smámynd: Linda litla

Ég myndi halda að alla vega önnur verslunin hafi verið Eymundsson, þar eru dýrar ferðatöskur.

Ég mæli nú bara með því að þið kaupið ykkur ferðatösku úti, það margborgar sig. Ég gerð það á Spáni í fyrra, fékk mjög góða tösku til að draga, hún var stækkanleg og kostaði 12 evrur. Það er gjafverð.

Hvenær farið þið annars út ??

Linda litla, 20.5.2008 kl. 17:55

11 Smámynd: Anna Guðný

Linda: Rétt hjá þér , sú dýra var Eymundsson en hin var A4. Förum til Rvíkur á sunnudag og út á þriðjudag.

Unnur: Ég pant svona neongræna, hljómar vel.

Erna: Ef ég hefði bara athugað þetta fyrir nokkrum dögum , þá hefði ég náð Office One. En þeir voru bara búnir að loka.

JEG: Það er svona með þetta sveitafólk sem kann ekki á borgarmenninguna.. Við erum svo oft í útlöndum, þannig að við erum búin að klára nokkrar á þeim tíma.

Anna Guðný , 20.5.2008 kl. 18:55

12 Smámynd: Brynja skordal

Vá svaka verð er þetta á rosalegar fínar töskur sem keyptar voru í ameríku fyrir nokkuð mörgum árum en nenni bara ekki að druslast með þær lengur verða allt of þungar!! En á samt fínar töskur sem eru aðeins minni og þær voru keyptar á írlandi á skítaprís Æ það fylgir nú alltaf svo mikið með manni þegar börnin eru líka með í ferð en mín eru sko með sér tösku takk fyrir fá ekki að róta í minni hehe ....við erum einmitt líka að fara til krít 28 í mánuð þannig að slatti þarf að troðast með

Brynja skordal, 21.5.2008 kl. 00:41

13 identicon

þessi töskuvandamál þekki ég, skrapp til r-víkur um jólin og piltunum á egilsstaðaflugvelli tókst með sóma að eyðileggja tvær töskur.

EN það var ekki þetta sem ég ætlaði að segja : heldur,,,,,góða ferð Anna mín og njóttu dvalarinnar í sólinni. kv petrea 

petrea (IP-tala skráð) 21.5.2008 kl. 11:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Guðný
Anna Guðný

Langar að æfa mig í að setja saman texta. Sé til hvað ég gef mér mikinn tíma í það.

Sjálfstæður Herbalife dreifingaraðili. www.heilsufrettir.is/anna

Þeir sem vilja hafa samband má benda á netfang sem er: ollana@simnet.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 201212

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Um bloggið

ollana

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband