Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2009

Mis... hvað?

Nú er spurning hvort maðurinn megi misskilja. Eða mismæla, eða misheyra. Þið sem eru fljót að grípa allt og snúa því á versta veg, slakiði nú aðeins á.  Að baki sumra ákvarðanna eru bara mannleg mistök.

Ég t.d. ætlaði að mæta á fundinn hjá SAFT í gær en bara gleymdi fundinum. ÆÆ, leiðinlegt að gleyma honum en engin annarleg sjónarmið.

Hafið það gott í dag.


mbl.is Misskilningur skýrir fjarveruna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kann ekki að koma orðum að því.

Til allra sem lesa bloggið mitt venjulega og líka hinna sem droppuðu hér inn alveg óvart.

Margir Akureyringar kannast við barna- og dúkku körfurnar sem Kristján blindi smíðaði. Nú er málið að ég er að leita að einhverjum sem tekur að sér að sauma utan um svona körfu. Bróðir minn var að kaupa svona til að eiga handa afkomendunum. Fyrsta barnabarnið hans er að fæðast nú í vor og því vantar okkur svona fljótlega. Ég kann  ekki einu sinni að orða þetta rétt , kann þau bara ekki.

Þannig að ef einhver veit þá endilega látið mig vita.

 

 


Byssa æltuð börnum?????

Er ekki allt í lagi? Eru virkilega til byssur sem eru ætlaðar börnum?

Nú er ég alveg hætt að fatta.


mbl.is 11 ára drengur ákærður fyrir morð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á skíðum skemmti ég mér tra la la la

Góða skemmtun öll í  fjallinu. Held það séu bara komnir óvenjumargir góðir helgardagar þar í vetur. Ég man þá tíð að skemmtilega veðrið var alltaf í miðri viku og þetta leiðinlega um helgar, þegar maður var í fríi.  Var þetta virkilega svona eða eru bara minningarnar að stríða?

 

 Ég verð niður í Norðurporti í dag, eins og venjulega um helgar. Er það markaður okkar Akureyringa. Staðsettur í Laufásgötu, þar sem Sjóbúðin var til húsa. www.norðurport.is fyrir þá sem vilja vita meira um starfssemina.

Um að gera að kíkja á  okkur eftir skíðaferðina, gönguferðina, sundferðina, heimsóknina eða hvað það nú er sem þú ætlar að gera eftir hádegi í dag. Hlakka til að sjá ykkur.

Eigiði góðan dag í dag.Wink


mbl.is Á skíðum fyrir norðan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lætur lítið yfir sér.

Ég var búin að heyra eitthvað um þetta nám sem fer fram þarna og hef séð þetta unga fólk að meðaltali þrisvar í viku þegar ég keyri dætur mínar í dans. Dansskólinn er með aðsetur í kjallaranum en orkuskólinn á jarðhæð. Held að það sé engum sem detti í hug að þessi starfssemi fari fram þarna inni. Ef ekki væri skiltið á útveggnum vissum við það ekki einu sinni. Og þetta er meint sem hrós. Það er sko ekki skrautið og prjálið að sjá að utan sem gerir starfssemina merkilega, heldur einmitt starfssemin sjálf. Til hamingju með þennan frábæra árangur.
mbl.is 10 fyrir meistaraprófsritgerð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heilræði SAFT

Eins og flestir sem hafa lesið bloggið mitt vita þá reyni ég alltaf að vera þokkalega kurteis og í flestum tilfellum náð að telja upp á tíu áður en ég læt gamminn geysa hér. Ef ég er að skrifa færslu sem ég hef grun um að ég fái dónalegar eða grófar  athugasemdir við, þá tek ég það fram að ég eyði hiklaust athugasemdum  sem ég kann ekki við. Í raun hef ég verið mjög heppin með að hafa ekki þurft að eyða út nema minnir mig tvisvar. Og í annað skiptið var það athugasemd sem var á engan hátt hægt að skilja sem athugasemd við sjálft umræðuefnið.

Núna síðustu daga hef ég verið svolítið upptekin af því hvernig við, fullorðna fólkið, hvernig fyrirmyndir við erum á netinu almennt en kannski sérstaklega hér á blogginu og á fésinu, þar  sem ég er mest. Auðvitað eru langflestir bara allt í góðu, almenninlegir og allt það. En inn á milli eru netdónar, bloggbullur eða hvaða nafni  nú best er að kalla þessa aðila. Ég þarf svo sem ekkert að útskýra það betur, þið vitið hvað ég meina.

Ástæðan fyrir því að ég er svolítið upptekin af þessu akkúrat núna er að ég var á kynningarfundi  hjá Akureyrarbæ fyrir foreldra barna í 8.- 10. bekk. þar var verið að kynna nýtt efni í forvarnarfræðsu.

Þetta var aldeilis frábær kynning. Hún var svo góð að ég var eiginlega í sjokki í smástund yfir því að hafa verið að fæða börn inn í þennan heim.

Eitt af atriðunum sem tekið var fyrir er Tölvu og farsímanotkun barna.

Hafið þið heyrt um Netorðin fimm?

Það eru ansi margir hér inni sem mættu lesa og nýta sér þessi orð. Því hvernig í ósköpunum getum við ætlast til þess að börnin okkar hegði sér vel ef við látum vaða svona í netheimum?

 Ég sá ekkert um að þessi netorð væru einkaeign eða einhver með einkarétt á þeim. Vona að ég megi setja þetta hér inn.

 

1. Allt sem þú gerir á Netinu endurspeglar hver þú ert
Allt sem við gerum og segjum er endurspeglun á því hvernig við hugsum og hvað við sjáum í kring um okkur. Þó aðrir þekki okkur ekki vitum við alltaf sjálf hver við erum. Stundum veljum við að koma fram á Netinu undir dulnefni eða nafnlaust. Það getur stundum verið nauðsynlegt og stundum skemmtilegt, en við getum ekki verið nafnlaus eða undir dulnefni gagnvart okkur sjálfum. Þess vegna viljum við vera sátt við allt sem við gerum og geta litið í eigin barm án þess að líða illa.

 2. Komdu fram við aðra eins og þú vilt láta koma fram við þig
Það er auðvelt að nota Netið til að særa annað fólk. Ljót skrif eða myndbirtingar af öðrum eru ofbeldi gagnvart öðrum og geta valdið mikilli vanlíðan. Þær valda vanlíðan hjá þeim sem verður fyrir því og þær valda líka vanlíðan hjá þeim sem setur slíkt á Netið. Mörgum líður illa og eru með samviskubit vegna þess að þeir hafa sært aðra. Þegar við setjum ljótt efni á Netið um einhvern annan er það opið fyrir alla og það er aldrei hægt að taka það aftur. Hugsum okkur því vel um áður en við segjum eitthvað eða setjum efni á Netið sem getur sært eða meitt aðra manneskju. Komum fram við aðra eins og við viljum láta koma fram við okkur.


3. Ekki taka þátt í neinu sem þú veist ekki hvað er
Það er nauðsynlegt að vita alltaf hvað maður er að gera þegar maður tekur þátt í einhverju á Netinu. Það getur verið hættulegt að vera í samskiptum við fólk sem maður þekkir ekki nema í gegn um Netið. Förum varlega þegar við gefum persónulegar upplýsingar um okkur á Netinu. Það getur valdið miklum vandræðum að setja upplýsingar um sig á Netið ef maður veit ekki hver fær upplýsingarnar. Margir hafa fengið vírus sem skemmt hefur tölvuna eða eru í miklum vandræðum með ruslpóst vegna þess að þeir hafa skráð sig inn á vefsíður sem þeir þekkja ekki og vita ekki hverjir halda úti.
Það er líka nauðsynlegt að athuga vel hvort hægt er að treysta upplýsingum sem fengnar eru af Netinu. Athugum hvaðan upplýsingarnar eru og hvort þær eru réttar áður en við notum þær.


4. Mundu að efni sem þú setur á Netið er öllum opið, alltaf
Það er ekkert einkalíf til á Netinu. Allt sem sett er þar inn er opið fyrir alla, alltaf. Ef við viljum ekki að allir sjái hvað við erum að segja eða gera skulum við ekki setja það á Netið. Hver sem er getur skoðað bloggsíður
og annað sem við setjum á Netið og auðvelt er að finna vefsíður. Hver sem
er getur líka náð í það efni sem við setjum á Netið og vistað það hjá sér.
Þess vegna þurfum við að hugsa okkur vel um áður en við setjum upplýsingar um okkur eða myndir af okkur eða öðrum á Netið. Þó við tökum þær út af vefsíðunum okkar getur hver sem er náð í þær meðan þær eru inni.


5. Þú berð ábyrgð á því sem þú segir og gerir á Netinu
Við berum ábyrgð á því sem við segjum og gerum. Það á við um Netið eins og allt annað. Þess vegna þurfum við að geta svarað fyrir allt sem við setjum þar inn. Hægt er að rekja tölvupóst og allar færslur sem settar eru inn á Netsíður. Það er ekki notaleg tilhugsun að þurfa að standa frammi fyrir foreldrum, skólastjórnendum, vinnuveitanda eða jafnvel lögreglunni og þurfa að svara fyrir eitthvað sem við hefðum ekki átt að setja á Netið. Munum líka að lögin í landinu gilda líka um það sem fólk gerir á Netinu.

 

Þið sem hafið áhuga á að fræðast meira þá er vefsíðan hjá þeim: www.SAFT.is

 

 

 

Svo mörg voru þau orð.

Góða nótt


Ekkert skrýtið

Í mínu huga hefur þetta ekkert að gera með markaðssetningu eða fjölmiðlastíð. Ég fylgdist ekkert með því . Það er einfaldlega bara miklu meira stuð og læti í Elektru. Mun fjörugra lag. Sama hver úrslitið í keppninni eru þá þarf fólk á hressum og flottum lögum spiluðum í útvarpi að halda, leikin og spilað af öruggum og líflegum flytjendum.

Hvernig eru aftur vinsældarlistarnir valdir? Hringir fólk inn, eða?

Hafið það gott í dag


mbl.is Elektra miklu vinsælli en Jóhanna?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útstreymi

Held að við, fjölskyldan höfum aðeins hjálpað til við þennan fjölda. Frá þessu heimili fóru nefninlega 9 manns. Unglingurinn tók að sér að fara með gaurinn, valkirjuna og vinkonur hennar. Einhverjir fleiri bættust við og talan endaði í 9.Allir hittust hér svo útstreymið var þó nokkuð þarna upp úr kl. 13.00. Hef trú á að eiginmanninum hafi létt þá.  Þau komu svo flest niður í Norðurport eftir bíó og heilsuðu upp á mig. Allir mjög ánægðir með myndina.
mbl.is Íslendingar með hundaæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað erum við að senda núna?

Verður fróðlegt að fylgjast með.Megi henni ganga rosalega vel. Nú hef ég ekkert á móti Jóhönnu Guðrúnu og heyri í henni syngja hér alla daga. Unglingurinn minn fékk nefninlega disk með henni í jólagjöf tvö ár í röð og nú er valkirjan að hlusta á þá fyrir svefninn. Valkirjan fór með hlustrið utan af diskinum fram fyrir sjónvarpið í kvöld og bar saman myndina á því og á skjánum. Jú, þær eru líkar, sagði hún.

Nú var ég bara búin að hlusta á lögin með öðru eyranu fyrir kvöldið í kvöld. Og úrslitin, ég var undrandi. Ég var eiginlega jafngáttuð og Jónsi yfir því að hún væri nefnd á nafn í vinningssætið.

Ég að vísu dæmið lagið númer eitt og svo flytjandann. Ég líka hef engan áhuga á að senda rólegt lag, vil einfaldlega hafa fjör í þessu. Þannig að líflegu lögin fara í efstu sætin hjá mér. Sem þýðir að vinningslagið komst aldrei á topp 5. Ég gat alveg sætt mig við að nokkur lögin væru send, þar á meðal Undir regnboganum með Ingó.

En þetta er svo ekki í fyrsta skipti sem ég er ekki sammála úrslitum. Mér skilst að það séu merki um sjálfstæðan vilja að vera í straumnum Smile 

Ákveð hér með að það sé málið núna.

 


mbl.is Lagið Is it true til Moskvu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eiginlega allt annað!

Tvær sögur af börninum.

Gaurinn minn hefur eins og fleiri börn verið að fylgjast með landsmálunum. Hann var að biðja um eitthvað um daginn og ég neitaði. Þá kom: Nú, er kreppan ekki búin? Er ekki Davíð Oddsson farinn? Nei, sagði  ég , hann vill ekki fara. Nú, getur ekki forsetinn rekið hann?

 Valkirjan mín kom svo heim í gær með þær fréttir að frænka vinkonu hennar væri svo veik að hún væri eiginlega bara að deyja. Eins og þið sem lesið bloggið mitt vitið, þá eru samskiptin á milli barnana og foreldrana það mikil að trúlega myndi ég vita ef þetta væri tilfellið. Ákvað nú samt að spyrja meira. Veistu hvað er að henni? Jú, það var eiginlega sko allt annað en krabbamein.

Jahá, það er naumast. Sagði henni að við skyldum ræða það betur á morgun. Hún fór svo í heimsókn til vinkonunnar og á meðan hringdi  ég í móðurina. Úbbs, hún hefur sem sagt heyrt mig segja þetta við mömmuna.

Hafiði einhverntímann heyrt einhvern segja: Ég er að drepast í maganum, ég er að drepast í hausnum.

Það sem hún heyrði mömmu frænkunnar ekki segja frá voru fylgikvillar flensunnar sem frænkan hefði fengið, sem margir kannast við en þessi stelpa hafði fengið höfuðverk, beinverki, magaverki og ýmislegt fleira.

Heldur heyrir hún mömmu sína bara segja: Æi, hún er að drepast greyjið.

Það sem átti að koma út sem meðaumkun eða vorkunnsemi kom út sem dauðadómur. Auðvitað meinti hún þetta bara sem áhersluorð.

Annars komst ég að því um daginn að börnin okkar hafa lært meira úr Spaugstofunni en úr fréttunum. Ýmislegt sem þau láta vaða núna. Mér finnst Spaugstofan frábær en kemur kannski í ljós núna að ekki allt er barnvænt þar frekar en annarstaðar.

 

Hafið það gott í dag.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Anna Guðný
Anna Guðný

Langar að æfa mig í að setja saman texta. Sé til hvað ég gef mér mikinn tíma í það.

Sjálfstæður Herbalife dreifingaraðili. www.heilsufrettir.is/anna

Þeir sem vilja hafa samband má benda á netfang sem er: ollana@simnet.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 201212

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Um bloggið

ollana

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband