Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2008

Hjálpum Gísla Sverrissyni og fjölskyldu hans.

Birti þessa hjálparbeiðni sem ég afritaði hennar af síðunni hennar Millu minnar á Húsavík.

 

Gísli Sverrisson er formaður Þríþrautarfélags Norðurlands, sem hefur staðið fyrir þríþraut á Laugum og víðar um Norðurland undanfarin ár. 

"Gísli Sverrisson féll af hjóli sínu 2. september síðastliðinn þar sem hann var við æfingar ásamt félögum í hjólahóp frá líkamsræktar- stöðinni Bjargi á Akureyri.  Við fallið hlaut Gísli hryggbrot og alvarlegan mænuskaða.  Afleiðingar slyssins eru þær að hann er lamaður fyrir neðan brjóstkassa.

Gísla bíður löng sjúkrahúslega og endurhæfing.  Þetta er mikil áfall fyrir hann, konu hans og fjögur börn og mikilvægt að fjárhagslegar áhyggjur bætist ekki ofan á það sem fyrir er.  Fyrir liggja ferðalög fyrir fjölskyldu hans til að styðja við hann í Reykjavík þar sem hann liggur á sjúkrahúsi, auk kostnaðar sem fylgir því að laga sig að breyttum aðstæðum.

Vinir og kunningjar Gísla hafa ákveðið að leggja honum og fjölskyldu hans lið með fjársöfnun.  Í kringum söfnunina verður skíðastaðasprettur þann 20. september n.k.  Nánari upplýsingar um sprettinn eru á www.bjarg.is

Það er einlæg ósk og trú aðstandenda að sem flestir geti lagt Gísla lið með fjárframlagi.  Þú ræður upphæðinni.  Það eina sem þú þarft að gera er að millifæra á söfnunarreikning fyrir Gísla. Reikningurinn er skráður á nafn og kennitölu Gísla.

Reikningsnúmerið er: 0565-14-400216

Gísli Sverrisson: kt. 180561-7069

Aðstandendur og fjölskylda Gísla þakka þér kærlega fyrir veittan stuðning og biðja þig að koma upplýsingunum á framfæri". 

Undir þetta skrifar Hjólahópurinn Bjargi, Akureyri.

Ég biðla til allra minna bloggvina að setja þessa færslu inn hjá sér,
og sér í lagi alla sem eru á Akureyri.
Þar býr Gísli og hans fólk.

            

Takk fyrir

Anna Guðný


Sunnudagur enn á ný.

Tíminn líður svo hratt. Ég er ekki fyrr vöknuð á mánudagsmorgni en að ég þarf að fara að sofa á sunnudagskvöldi.

Heimilislífið er allt að fara í venjulegann vetrargír þessa dagana. Börnin byrja að koma með heimaverkefni á morgun. Verður spennandi að fylgja því eftir. Valkirjan var nú ekkert yfir sig spennt þegar hún mundi eftir því hér í kvöld.Wink

Á föstudag kom Unna Mæja bloggvinkona mín í kaffi til mín. Fórum við út á svalir og kíktum á sólina. Sá ég þá hana Ernu bloggvinkonu mína í dyrunum hjá sér. Við uppgötvuðum hvor aðra eftir að við urðum bloggvinkonur. Hún býr í næstu götu en sjáiði bara hvað ég sé vel yfir til hennar.

 

P9120006

Þarna var hún útí í dyrum að kveðja gesti og við auðvitað kölluðum á hana í kaffi og kleinur. Fyndið þegar þær hittust. Erna er að vísu ekki með af sér á síðunni en það er Unnur og Erna þekkti þá hana auðvitað um leið. Gaman að sjá manneskjur sem þekkjast ekki neitt heilsast eins og aldavinkonur þegar þær hittast í fyrsta sinn.

Við auðvitað stilltum okkur upp fyrir myndatöku en sólin var svo sterk að það voru alveg vandræði með það hvernig við áttum að snúa. Wink

P9120002

Og þarna sjáiði dyrnar hennar Ernu bera við eyrað á Unni.Wink

Eftir kaffisopann fórum við á göngu um eyrina, ég, Unnur og frú Breiðfjörð sem kom í heimsókn líka. Við gengum niður að sjó og suður með. Las færslu eftir hana Huld um daginn þar sem hennar húsband hafði boðið henni á siglingu út á fjörð. Fannst henni aðkoma fyrir ferðamenn sem koma á skemmtiferðaskipunum ekkert mjög spennandi og  verð ég að vera henni sammála.

P9120009

P9120012

Ég veit, öryggiskröfur og allt það .

 

Þokkalega stórt byggt handan fjarðar.

P9120011

 

Starfsmenn Bústólpa hugsa til mögru áranna.

P9120013

 

Við tókum góðan túr um svæðið og þarna er Unna að sýna okkur hvar stóri vöðvinn er, þessi sem hún notaði þegar hún stikaði heiman að frá sér til mín.

P9120014

Það er þessi hérna, sérðu til.

Á föstudagskvöld var ég með sætaferðir á Skautadiskó. Þar sem við keyrðum framhjá staðum þar sem andanefjarnar eru alltaf sáum við þetta og ég smellti út um gluggann nánast á ferð. Nei, nei ég var stopp.

P9120015

Sjáiði uggann.

 

Fyrst þarf að fara í skautana.

P9120022

 

Vá hvað ég er flínk.

P9120019

 

Um hádegi á laugardag var svo boð í  sjö ára afmæli.

P9130023

Erum við nokkuð bleikar?

Borðuðum í fyrra lagi í kvöld og svo skelltum við okkur, ég og gaurinn að athgua hvort við myndum nokkuð sjá andanefjurnar. Ég hef alveg séð þær en ekki hitt á eins flott og margir aðrir.

P9140050

Þarna er hann á göngu og sjáiði bílaröðina.

Ég náði bara einni en hún var hreyfð. Skelli henni samt inn. Veit að gæðið eru ekki góð.

P9140053

Ótrúlegt að sjá þær svona nálægt. Tók smá video líka. á eftir að skoða það. Set það inn ef ég er ánægð.

Annars bara sigli ég nú inn í nýja viku með kortið í myndavélinni tómt. Stefni á ferð í borg óttans um næstu helgi.  Skóli á laugardag og svo flotta ráðstefnan á sunnudag. Er einhver bloggari til í kaffihús á hádegi á sunnudag?

Eigiði góða vinnuviku, það ætla ég að gera.

 

 


Kalla eftir upplýsingum!

Hef verið að hugsa, hvernig stendur á því að einhver hælisleitandi hefur verið hér í þrjú ár og hefur ekki fengið , ja annaðhvort reisupassann eða landvist? Ég er ekki að leita eftir: þá á að eða mér finnst það eigi að, heldur af hverju er ekki hægt að taka á þessu fyrr? Verð að viðurkenna að ég hef ekki skoðað þessi mál svo gjörla, kannski aðallega vegna þess að þau hafa ekki snert mig persónulega. Bý eins langt frá svæðinu sem allt þetta er að gerast og hægt er.Mér dettur ekki í hug að vera eitthvað með eða á móti. Það er með þessa lögregluagerð, eins og flestar aðrar. Það koma alltaf eftirá einhverjir besservisserar og tjá sig um hvað hafi farið úrskeiðis  og hvað lögreglumennirnir hafi gert vitlaust.

Hvað segiði um þetta?

Vinsamlegast almenna kurteisi, annað verður hreinsað út.


mbl.is Hælisleitandi mótmælir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Foreldrarnir.

Hvernig ætli foreldrum ítölsku stúlkunnar líði? Í einhverja klukkutíma eða daga héldu þau að jafnvel þau ættu hana, en svo bara púff, nei því miður. Þetta er ekki dóttir ykkar.
mbl.is Reyndist ekki vera ítalska stúlkan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klukkuð aftur.

Nú var hún Jóna María frænka mín klukkaði mig

 

4 störf.

KEA þegar það var og hét, í nokkrum verslunum á Akureyri

Í fiski hér og þar, t.d. á Seyðisfirði, Tálknafirði, Ólafsvík og svo Akureyri

Í Sveinbjarnargerði, þar sem nú er hótel en áður var kjúklingabú.

 

 

 4 bíómyndir

Mamma Mia

Dirty Dancing

Shall we dance

The Notebook

 

4 staðir sem ég hef búið á

Akureyri

Reykjavík

Svíþjóð



 

4 sjónvarpsþættir

C:S:I

Missing
Medium

4 staðir í fríum

Tenerife

Grikkland

Ungverjaland

Frakkland

4 netsíður

heilsufrettir.is/anna

facebook.com
mbl.is
akureyri.is

fernt matarkyns

Lambasteikin mín
Kjúklingabringur
nautasteik

Steiktur fiskur

4 óskastaðir akkúrat núna

Líður fínt heima, en er á leið til Berlínar fljótlega

4 sem ég klukka

Ragga

Ljósmyndarinn

Rolf

Ziggi

 


Einn villtist af leið!

Ég sá einn svona á Glerárgötunni áðan á göngu. Spurnig hvort hann hafi farið upp í vitlausa vél eða farið á vitlausan flugvöll. Nei, en fannst samt gaman að sjá hann á göngu hér á Akureyri  kl. 8. að morgni í kilt og öllu.


mbl.is Skotarnir drukku stíft á börunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Missi alltaf af þeim!

Ætli getið verið að það sé vegna þess að ég gef mér ekki tíma til að stoppa og bíða smástund? Gæti verið.  En mér finnst þetta alveg frábært framtak af þessum aðilum að setja upp þessi skilti. Virkilega margir sem stilla sér upp þarna og bíða eftir þeim.
mbl.is Upplýsingaskilti um andarnefjur við Pollinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að láta drauma sína rætast.

Eins og fram kom í færslu hér á undan, þá var hausthátíð í skólanum okkar hér í hverfinu um helgina. Ég hef líka sagt áður að okkar skóli er sá skóli á Akureyri sem er með nýbúadeildina. Þetta þýðir að börn þeirra aðila sem koma hingað tímabundið fara í skóla hér. Ég var að labba um svæðið og er þá kallað í mig til að biðja mig  um að útskýra eitthvað á ensku. Hvernig segir maður ratleikur á ensku? Veit ekki ég en útskýringar mínar á því hvernig ratleikur fer fram varð til þess að ég bauð þeim mæðgum ferð í berjamó á sunnudag.

Unglingarnir í Ástralíu eru ekkert öðruvísi en á Íslandi. Önnur systirin, sú sem borðar ekki einu sinni bláber, nennti ekki með og vildi heldur vera heima á msn eða eitthvað.

Þetta er sem sagt kona með tvær dætur sem tók sig upp upp og ferðaðist alla leið til Íslands til að fara í háskóla. Hún ætlar að vera eina önn. Hún gat valið um hvort hún yrði á Akureyri eða í Reykjavík. Valdi Akureyri út af því að hún átti von á  að hún myndi frekar kynnast fólki hér og eins yrði það auðveldara fyrir stelpurnar af sömu ástæðu. Með fullri virðingu fyrir stór Garðabæjarsvæðinu, þá er hæpið að hún hefi hitt á manneskju sem hefði boðið henni með á rúntinn.

Við týndum ber í Hrísmóunum nálægt Dalvík í einhverja tvo tíma

P9070004

Séð til Dalvíkur.

P9070027

Hér sitja þau í berjamónum. Gaurinn, unglingurinn,Marika, Mirei, valkirjan og Silke.

Hún var svo undrandi, Silke, þegar ég sagði að krækiberin væru mitt uppáhald. Henni fannst þau svo súr að hún gat ekki borðað þau.

Lyklaborðið mitt gafst upp á þessum stað í gærkveldi. Sem betur fer kom eiginmaðurinn heim í nótt og gat ráðlagt mér. Hvernig ætti að láta punginn(kallaður þetta út á sjó) snúa. Er með þráðlaust lyklaborð.

Þetta með útlendingana og mig. Ég virðist laðast að þeim.Hefur verið síðan ég  var 15.ára og var að vinna með allra þjóða kvikyndum. Það hefur aldrei dugað mér að umgangast bara landann. En það sem mér fannst skemmtilegast núna var hvað krakkarnir voru dugleg að tjá sig. Unglingurinn talar orðið reiprennandi daglega ensku. Gaurinn skilur helling og getur tjáð sig eitthvað og valkirjan er byrjuð líka.

Eftir að hafa týnt berin skelltum við okkur til Dalvíkur , þar sem sólveig og Frikki höfðu boðið upp á kaffi og kleinur. Kleinurnar fannst þeim alveg sælgæti og pantaði Silke að vera með næst þegar við ætluðum að baka.

Nú er gott að eiga strumpastrætó.Kem sjö strumpum með.

P9070032

Hvað ertu að gera?

Lambasteikin beið okkar í pottinum þegar heim kom. Smakkaðist vel nammi namm.Smile

Hafið það gott í dag.


Búin að fá leyfi.

Skrýtið. Venjulega er málið að allir eru  búnir að fá, ja svona næstum því, nóg mér með myndavélina þegar ég kem á mannamót, en það var ekki tilfellið í gær á blogghittingnum. Ég hafði svo mikið að gera, bara að hlusta. Talaði auðvitað ekki mikið, geri það venjulega ekki ekki.Smile  Það vitið þið sem þekkið migWink

                                                                                                     
P9060002

 

 

 

 

 

 

 

 

 ´

Hér sitja þau Gísli og Milla komin frá Húsavík.

 

Hún Dóra Birgis á Laugum gat ekki komið og sendi okkur því tvöfalda sendingu með mömmu.

P9060003

Englarnir hennar Millu.

 

Ég hefði getað sett inn mynd, þar sem Huld var með opin augu og þar sem Halli var ekki akkúrat að stinga upp í sig tertubita en...... sjáið til, þá væri enginn Doddi á myndinni. Það væri auðvitað stórslys. Þannig að þarna situr Doddi dúlludóni, eða var það dónadúlla? Man það ekki alveg en það var virkilega gaman að fá hann.

P9060005

 

Hér koma svo hjónakornin, aðeins upplýst en hvað er það á milli vina.

P9060004

Tók enga mynd af Ásgerði, hún var örugglega of nálægt mér. En fékk mynd af henni hjá Huld og hér kemur hún. Takk fyrir að redda mér Huld.

prufa_2_036

Hér er Ásgerður frá Ólafsfirði. Lítill heimur alltaf. Hún þekkir eiginmanninn úr hans fyrra lífi.

Þá er þetta komið. Lyklaborðið er enn í fýlu.

Hafið það gott


Laugardagur til lukku.

Það er svo partýstandið á þessu heimili að það er farið að standa frá morgni til kvölds. Fæ þó að hvíla mig á nóttunni. Smile

Dagurinn í dag byrjaði á Haustfagnaði eyrarpúka. Skólinn okkar hefur staðið fyrir þessari hátíð í mörg ár en hverfisnefndin hefur komið inn í dæmið síðustu ár. 10. bekkur sér um hátíðina með aðstoð foreldrafélagsins og 1. bekkur er sérstaklega boðinn velkominn. 

Byrjað er  að fara í skrúðgöngu í hverfinu. Göngustjórar voru að þessu sinni Arnrún og Sessa. Þær stóðu sig að sjálfsögðu með prýði, báðar tvær. Ekki við öðru að búast.

Eftir gönguna er safnast saman og farið í leiki. Bekkirnir skora á  hvern annan eða kennara í reipitog, fótbolta  og eggjakast, svo eitthvað sé nefnt. 2 hestar voru á svæðinu, þar sem hægt var að prófa snilli sína í reiðmennsku. 

Síðan var boðið upp á grillaðar pylsur ( með ypsiloni), (ekkert rauðkál) og drykk. Ég sá ekki betur en að allir hafi skemmt sér vel, eins og raunar myndirnar sýna. Kannski finnst einhverjum sumar myndirnar vera nánast eins, en svo er ekki. Set svona margar inn svo meiri líkur séu á því að sem flest börnin sjá sjálfa/nn sig.

Njótiði vel.

 

 

Seinnipartinn var svo komið að blogghittingnum. Við hittumst á Kaffi Karolínu. Aldeilis frábær staður til að hittast á. Fengum að vera uppi í ró og næði. Ekki það að við höfum verið að ræða eitthvað leyndó, en bara það að vera laus við hvissið úr kaffivélunum er meiriháttar fyrir mig.

Ég gleymdi mér aðeins við myndatökuna. Tók fáar myndir þær tókust ekki nógu vel. Þarf eiginlega að fá leyfi fyrir þeim fyrst.  

Mikið var þetta samt gaman og mikið var hlegið, við leystum landsmálið, allavega svona flest. Slúðruðum pínu, það var ekki mikið. Fengum okkur gott kaffi og góðar kökur. Sem sagt, frábært.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Anna Guðný
Anna Guðný

Langar að æfa mig í að setja saman texta. Sé til hvað ég gef mér mikinn tíma í það.

Sjálfstæður Herbalife dreifingaraðili. www.heilsufrettir.is/anna

Þeir sem vilja hafa samband má benda á netfang sem er: ollana@simnet.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Um bloggið

ollana

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband