Leita í fréttum mbl.is

Góða vísa aldrei of oft kveðin.

Hefur alltaf fundist þetta svo flottur texti og fann þetta svo inni hjá henni Renötu bloggvinkonu minni núna og nappaði því handa ykkur að lesa.

 

 

Bill Gates hélt fyrirlestur fyrir unglinga í gagnfræðaskóla í Bandaríkjunum. Hann talaði um reglurnar 11 sem þau munu ekki læra um í skólanum.

Hann talaði um agaleysi og nýjar áherslur í kennslu sem munu skila nýrri kynslóð út í þjóðfélagið, dæmdri til að mistakast.

Regla 1: Lífið er ekki réttlátt, reyndu að venjast því.

Regla 2: Veröldinni er sama um þitt sjálfsálit. Allir ætlast til að þú áorkir einhverju áður en þú ferð að vera ánægð/ur með sjálfa/n þig.

Regla 3: Þú munt ekki þéna 4 milljónir á ári strax þegar þú útskrifast úr skóla og þú verður ekki framkvæmdastjóri fyrr en þú hefur unnið fyrir því.

Regla 4: Ef þér finnst kennarinn þinn strangur og erfiður, bíddu þangað til að þú færð yfirmann.

Regla 5: Að snúa hamborgurum á skyndibitastað er ekki fyrir neðan þína virðingu. Amma þín og afi áttu til annað orð yfir það að snúa hamborgurum. Þau kölluðu það TÆKIFÆRI.

Regla 6: Ef þú klúðrar, þá er það ekki foreldrum þínum að kenna svo hættu að væla og lærðu af mistökunum.

Regla 7: Áður en þú fæddist þá voru foreldrar þínir ekki svona leiðinleg eins og þau eru núna. Þau urðu svona eftir að hafa borgað fyrir uppeldi þitt, þvegið fötin þín, þrifið til draslið eftir þig og hlustað á hvað þú ert COOL og þau eru hallærinsleg. Svo áður en þú og vinir þínir bjarga regnskógunum og leysið heimsmálin, reyndu þá að taka til og koma reglu á herbergið þitt.

Regla 8: Það getur vel verið að skólinn útskrifi bæði sigurvegara og tapara en lífið gerir það EKKI. Í sumum skólum er hægt að taka sama prófið aftur og aftur. Þannig er þetta ekki úti í atvinnulífinu.

Regla 9: Lífið skiptist ekki í annir og þú munt ekki hafa frí öll sumur. Mjög fáir samstarfsmenn munu hafa áhuga á að hjálpa þér að finna sjálfan þig. Gerðu það í þínum eigin tíma!

Regla 10: Sjónvarpið er ekki raunveruleikinn. Í raunveruleikanum þarf fólk í alvörunni að yfirgefa kaffihúsið og fara í vinnuna.

Regla 11: Vertu NICE við nördana í skólanum, það endar mjög líklega með því að þú þarft að vinna hjá einhverjum þeirra.


fyio... eg var nord i skola....

 

 

Svo ætla ég að minna á blogghittinginn sem verður á morgun

Kaffi Karolína Listagilinu

kl. 16.00

Sjáumst

Eigiði góðan dag.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Herdís Alberta Jónsdóttir

Þetta er flott, ég er með þetta á ísskápnum mínum, einn kunningi minn gaf okkur þetta um daginn.

Herdís Alberta Jónsdóttir, 30.4.2009 kl. 08:56

2 Smámynd: JEG

JEG, 30.4.2009 kl. 10:31

3 Smámynd: Erna

Er hittingurinn á morgun???? Ég hélt að hann væri á laugard.

Erna, 30.4.2009 kl. 11:13

4 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég segi það líka, er hann ekki á laugardaginn???

Huld S. Ringsted, 30.4.2009 kl. 13:28

5 Smámynd: Anna Guðný

Oh stelpur er ekki í lagi hjá mér? Það er kominn föstudagurt hjá mér.

Auðvitað er hann á laugardag.

Anna Guðný , 30.4.2009 kl. 13:38

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Já já það mætti nú ráða ýmislegt í þetta, en þar sem ég þekki þig þá allir geta ruglast á dögum.
Flott hjá Bill Gates.
Knús til þín
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 30.4.2009 kl. 15:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Guðný
Anna Guðný

Langar að æfa mig í að setja saman texta. Sé til hvað ég gef mér mikinn tíma í það.

Sjálfstæður Herbalife dreifingaraðili. www.heilsufrettir.is/anna

Þeir sem vilja hafa samband má benda á netfang sem er: ollana@simnet.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 201212

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Um bloggið

ollana

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband